Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 10
ÞÝSKALAND, AP Aðstoðarmenn
Gerhards Schröder, fráfarandi
kanslara Þýskalands úr Jafnaðar-
mannaflokknum, og Angelu Mer-
kel, formanns Kristilegra demó-
krata, sýndu engin merki um vilja
til málamiðlunar í deilunni um það
hvort þeirra ætti að verða kanslari
er forystumenn beggja flokka
settust niður í Berlín í gær til að
halda áfram þreifingum um hugs-
anlegt stjórnarsamstarf.
Talsmenn flokkanna sögðu við-
ræðurnar að svo komnu máli að-
eins myndu snúast um frekari
þreifingar um stefnulega
snertifleti, einkum og sér í lagi að
því er varðar ríkisfjármálin.
Ekki liggur fyrir enn nein
ákvörðun um að flokkarnir fari út
í formlegar stjórnarmyndunarvið-
ræður. Merkel sagði í gær að
„mörg skref“ yrði að stíga enn
áður en til slíks kæmi. Meðal skil-
yrða sem hún hefur sett fyrir því
er að Schröder og hans menn sætti
sig við að hún, sem leiðtogi
stærsta þingflokksins, hefði tilkall
til þess að leiða slíka ríkisstjórn.
Í þýskum fjölmiðlum eru kenn-
ingar um að hugsanleg lausn á
„kanslaraspurningunni“ kunni að
felast í því að bæði Schröder og
Merkel víki fyrir þriðja manni. Sá
gæti orðið Christian Wulff, vin-
sæll forsætisráðherra Neðra-
Saxlands úr flokki Merkel. Önnur
lausn er sögð geta falist í því að
Schröder og Franz Müntefering,
formaður SPD, hefðu stólaskipti
og Müntefering yrði varakanslari
í stjórn sem einhver annar CDU-
maður en Merkel færi fyrir. Þessi
síðarnefnda tilgáta var tíunduð í
dagblaðinu Süddeutsche Zeitung í
gær, en Klaus-Uwe Benneter,
framkvæmdastjóri SPD, vísaði
henni á bug sem „hreinum getgát-
um“. „Stefnumál okkar eru sam-
tvinnuð leiðtoga okkar, Gerhard
Schröder – það er ekki hægt að
skilja þau að,“ sagði hann.
Báðir aðilar hafa sagst eiga von
á því að þreifingaviðræður haldi
áfram í næstu viku, en þá verða
loks endanleg úrslit þingkosning-
anna ljós, þar sem á sunnudag
verður kosið í því eina kjördæmi
þar sem fresta þurfti kosningun-
um vegna andláts eins frambjóð-
andans. Skoðanakannanir benda
þó ekki til að úrslitin úr þessu
kjördæmi í Dresden breyti neinu
um valdahlutföllin milli stóru
flokkanna á þingi, þar sem CDU
hefur þremur fulltrúum fleiri en
SPD.
audunn@frettabladid.is
REYKT Í ÁRÓÐURSSKYNI Á þingi Verka-
mannaflokksins sem nú stendur yfir í
Brighton vakti það athygli þegar lista-
maðurinn David Hockney kveikti sér í sí-
garettu til að knýja á um réttindi til
handa reykingamönnum.
10 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Kona á sjötugsaldri
varð fyrir líkamsárás í Vest-
mannaeyjum aðfaranótt sunnu-
dags eftir að hafa kvartað undan
hávaða hjá nágrönnum.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum er atburðarásin
óljós, en konan virðist hafa bank-
að upp á í íbúðinni fyrir ofan
hennar og gert athugasemdir við
gleðskapinn. Það vakti ekki mikla
lukku og svo fór að nokkrir gest-
anna réðust að konunni og veittu
henni áverka. Húsráðandi er ekki
talinn hafa tekið þátt í árásinni.
Málið er enn í rannsókn.
Konan var lögð inn á sjúkra-
hús eftir árásina og er talið að
hún sé með sprungur í tveimur
hryggjarliðum eftir árásina, en
hún hefur nú verið útskrifuð.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
vildi koma því á framfæri að fólk
hefði frekar samband við lög-
regluna en húsráðendur á þess-
um tíma sólarhringsins, þegar
allur gangur er á því hvort fólk
sé þá í ástandi til að jafna ágrein-
ing og óvíst hverjir séu gestir
húsráðanda. - grs
Félagsmálaráðherra um nýgert samkomulag:
Mikil flörf fyrir
leiguíbú›ir
FÉLAGSMÁL „Það er mikil þörf fyrir
íbúðir af þessu tagi,“ segir Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
um nýgert samkomulag stjórn-
valda þess efnis að veitt verði lán
á sérstökum kjörum til bygginga
allt að 40 leiguíbúða á ári í fjögur
ár.
Samkvæmt samkomulaginu
mun Íbúðalánasjóður veita sér-
stök lán á 3,5 prósenta vöxtum til
byggingar íbúðanna. Vextir af
lánunum verða niðurgreiddir úr
ríkissjóði, um 33 miljónir króna á
ári. Lánin verða veitt þeim er
leigja íbúðirnar til einstaklinga
eða fjölskyldna er uppfylla skil-
yrði um tiltekin tekju- og eigna-
mörk. Gert er ráð fyrir að sveit-
arfélög, félög fatlaðra, öryrkja
og aldraðra auk námsmanna njóti
forgangs innan þessa lánaflokks.
Félagsmálaráðherra segir að
viðlíka samkomulag hafi verið
gert fyrir fimm árum. Það sé nú
að renna út.
„Okkur þótti árangurinn af því
vera þess eðlis að ástæða væri til
að framlengja það,“ segir ráð-
herra og bætir við að það hafi
ekki síst komið sér vel fyrir bygg-
ingafélög námsmanna og fleiri
slík. Vitað sé um mikil áform um
fjölgun íbúða af þessu tagi. - jss
Halda áfram flreifingum
Forystumenn stóru flokkanna tveggja í fi‡skalandi, CDU og SPD, héldu í gær áfram vi›ræ›um um hugs-
anlegt stjórnarsamstarf. Deilan um fla› hverjum beri a› lei›a slíka stjórn er enn óleyst.
BURT MEÐ KARLREMBUNA Maria Rauch-
Kallat, kvennamálaráðherra Austurríkis.
Jafnrétti í Austurríki:
fijó›söngnum
breytt
AUSTURRÍKI Austurríkismenn hafa
ákveðið að uppræta karlrembuna
í þjóðsöng landsins. Að frum-
kvæði kvennamálaráðherrans
Maríu Rauch-Kallat verður texta
þjóðsöngsins nú breytt þannig, að
línan „Ættjörð ert þú mikilla
sona“ verður „Ættjörð mikilla
dætra, sona“. Þá verður á öðrum
stað í söngnum „bræðrakór“
breytt í „gleðikór“ og „föðurland“
í „ættjörð“.
Þjóðsöngurinn var saminn fyr-
ir samkeppni eftir að Austurríki
varð aftur sjálfstætt ríki í kjölfar
Síðari heimsstyrjaldar. Höfundur
vinningstextans var kona, Paula
von Preradovic, en lagið er eftir
Mozart. -aa
VESTMANNAEYJAR Partígestir kunnu ekki að meta kvartanir vegna hávaða.
Dæmdur morðingi:
Gefin banvæn
eitursprauta
BANDARÍKIN Yfirvöld í Indiana tóku
í fyrrinótt Alan Matheney af lífi
með eitursprautu en hann var
dæmdur til dauða fyrir morðið á
fyrrverandi eiginkonu sinni árið
1989.
Matheney framdi morðið
þegar hann fékk átta klukku-
stunda langt leyfi úr fangelsi en
hann sat þá inni fyrir að hafa ráð-
ist á eiginkonuna fyrrverandi,
nauðgað henni og skilið eftir nær
dauða en lífi.
Matheney er 41. maðurinn sem
tekinn er af lífi í Bandaríkjunum í
ár og sá fimmti í Indiana en þar
hafa ekki fleiri verið teknir af lífi
á einu ári síðan 1938. ■
ÁRNI MAGNÚSSON Segir samkomulag um lánveitingar til byggingar leiguíbúða hafa borið
góðan árangur.
Ráðist á konu á sjötugsaldri í Vestmannaeyjum:
Kvarta›i undan nágrönnum
STENDUR FAST Á FORYSTUTILKALLI Angela Merkel, formaður CDU, setur þingflokksfund í
gær, en eftir hann gekk hún til viðræðna við SPD.