Fréttablaðið - 29.09.2005, Page 13

Fréttablaðið - 29.09.2005, Page 13
FIMMTUDAGUR 29. september 2005 13 Héraðsdómur Reykjavíkur: D‡rt bú›ahnupl DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur dæmdi í síðustu viku rúm- lega fertugan karlmann fyrir þjófnað úr Hagkaupum í Skeif- unni. Maðurinn var sakaður um að hafa stolið fatnaði og búsáhöldum að verðmæti 12.500 krónur. Við réttarhöld hélt hann fram sakleysi sínu og sagðist hafa ætlað að bjarga barni sem var hætt komið á bílastæði fyrir utan verslunina, og hefði því farið út án þess að greiða fyrir vörurnar. Dómara fannst þessi útskýring hins vegar ólíkleg. Manninum er gert að greiða 20.000 króna sekt í ríkissjóð, eða sitja ella í fangelsi í tvo daga. Jafn- framt þarf hann að greiða 100.000 krónur í sakarkostnað. - smk Flutningur þjóðskrár: fijó›skrá ratar heim STJÓRNMÁL Meðal þess sem rætt var á ríkisstjórnarfundi á þriðju- dag var flutningur þjóðskrár frá Hagstofu til dómsmálaráðuneytis. Það var Davíð Oddsson, sem þangað til í gær gegndi embætti hagstofuráðherra sem viðraði málið. „Það hefur verið lengi á dag- skrá að gera þessa breytingu bæði til hagræðis og til að styrkja framkvæmd stjórnsýslureglna,“ segir Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra. Ef tillagan verður að lögum flytur þjóðskráin aftur í Skuggasund þar sem hún var áður til húsa. - saj LANDSPÍTALINN Atvikanefnd hefur tekið til starfa. Landspítalinn: Öryggi sjúk- linga auki› HEILBRIGÐISMÁL Atvikanefnd hefur verið skipuð á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi. Markmiðið með starfi hennar er að auka öryggi sjúklinga og starfsmanna. Hún skal fjalla skilmerkilega um af- brigðileg atvik í starfsemi spítal- ans sem víkja frá því sem vænst er og viðurkenndum starfsregl- um, að því er segir á vefsíðu spít- alans. Nefndin skal eiga frumkvæði að athugun einstakra mála en jafnframt geta forstjóri og fram- kvæmdastjórar lækninga og hjúkrunar óskað eftir því að hún skoði tiltekin málefni. Þá geta ein- stakir starfsmenn komið ábend- ingum til nefndarinnar. ■ Feminístafélag Íslands: Fordæmir vinnubrög› LÖGREGLUMÁL Femínistafélag Ís- lands átelur vinnubrögð lögregl- unnar í Reykjavík sem urðu til þess að saksóknari ákvað að láta niður falla mál þriggja manna sem sakaðir voru um hópnauðgun. Konan leitaði strax til lögreglu, sem flutti hana á neyðarmóttök- una, og kærði hún nauðgunina í framhaldi af því. Saksóknari féll frá ákæru vegna skorts á sönnun- um frá lögreglu. „Málið er áfall fyrir fórnar- lömb kynferðisafbrota, og sýnir að réttaröryggi þeirra er ekki tryggt,“ segir í tilkynningu frá fé- laginu, sem óskar þess að vinnu- brögð lögreglunnar verði bætt. ■ HVAÐ NÆST? 100 vísindamenn frá ýmsum löndum spreyta sig nú í keppni um hæf- asta vélmennið á sýningu sem fram fer í ll- menau í Þýskalandi. Ekki er gott að segja í hverju hæfileikar þessa vélmennis liggja. BRETLAND, AP Jack Straw, utanríkis- ráðherra Bretlands, varaði í ræðu á flokksþingi breska Verkamanna- flokksins í gær við því að framund- an væru fleiri „myrk augnablik“ í Írak. En hann ítrekaði yfirlýsingu forsætisráðherrans Tonys Blair frá því daginn áður um að útilokað væri að breska herliðið í Írak yrði kallað heim í bráð. „Að byggja upp nýtt ríki hefur aldrei verið auðvelt,“ sagði Straw og tók þannig undir orð Blairs um að það væri skylda Breta að verja lýðræðið í Írak. Straw tók einnig fram að það væri „óhugsandi“ að beita hernaði gegn Íran til að fá þarlend stjórnvöld til að hverfa frá meintri kjarnorkuvígbúnaðaráætl- un sinni. Í ræðu sinni í fyrradag sýndi Blair heldur ekkert fararsnið á sér, það er hann gaf engar vísbending- ar um hvenær hann hygðist víkja úr forsætisráðherrastólnum. Blair lýsti metnaðarfullri stefnuskrá rík- isstjórnarinnar á þessu þriðja kjör- tímabili hennar undir hans stjórn. Virtist hann með þessu vonast til að sá armur flokksins, sem þrýst hefur á um að hann viki sæti fyrir Gordon Brown innan tíðar, hefði sig hægan. Blair er í mun að tryggja að stjórnartíðar sinnar verði minnst fyrir önnur og upp- byggilegri mál en Íraksmálið. - aa JACK STRAW Breski utanríkisráðherrann brýndi áherslumál utanríkisstefnunnar fyrir flokksmönnum. Þing Verkamannaflokks: Breski herinn áfram í Írak

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.