Fréttablaðið - 29.09.2005, Qupperneq 35
7FIMMTUDAGUR 29. september 2005
Hamraborg 1-3
200 Kópavogi
Gsm: 894 8404
Sænska fyrirtækið Lamm-
hulst kynnir nýja framleiðslu
stóla sem nefnast Imprint og
eru framleiddir úr umhverfis-
vænu efni sem kallast Cellu-
press. Þeir fást í Epal.
Cellupress nefnast pressaðar
viðar- og plöntutrefjar. Þetta efni
hefur aldrei verið notað áður í
húsgagnaframleiðslu og er því
algjör bylting á sínu sviði.
Imprint-stólarnir eru því
athyglisverðir enda sameinast í
þeim náttúrulegt efni og hátækni-
framleiðsluaðferðir. Liturinn og
áferðin eru náttúruleg en lagið
gefur til kynna að stólarnir hafa
verið steyptir líkt og plaststólar.
Hugmyndina að þeim eiga
dönsku hönnuðirnir Peter Hiort-
Lorenzen og Johannes Foersom
sem vildu stuðla að endurnýtingu.
Mismunandi plöntutrefjar gefa
stólunum fjölbreytilegan lit, frá
ljósum upp í dökkan. Hönnuðirnir
völdu að nota furu og sellulósa
sem grunn í stólskeljarnar og
bættu síðan út í plöntutrefjum, til
dæmis venjulegum trjáberki,
kókoshnotu og eik svo hver stóll
fær sinn sérstaka svip. ■
Imprint-stólarnir fást bæði með viðar- og krómfótum og þeir eru bæði með ávölum og
hvössum hornum. Kosta 48.910 kr. og 38.566 krónur.
Hver stóll fær sinn svip
Sumir vilja marga kodda
Þegar haustkuldinn klípur í
tærnar á kvöldin er góð sæng
gulli betri. Ekki spillir að
hafa hana inni í vönduðu veri.
Fatabúðin á Skólavörðustíg
hefur verslað með slíka vöru í
áratugi.
„Góðar dúnsængur seljast alltaf
vel á haustin,“ segir Karólína
Sveinbjörnsdóttir sem er öllum
hnútum kunnug í Fatabúðinni
enda hefur hún rekið hana frá
1998 og er búin að vera þar við-
loðandi miklu lengur því faðir
hennar eignaðist verslunina 1958.
Hún tínir til danskar sængur
stoppaðar með hvítum gæsadúni
og kodda í stíl. Bendir líka á ullar-
sængur og ullarkodda sem hún
mælir sérstaklega með fyrir þá
sem eru með liðverki og gigt.
„Þessar sængur eru frá Hefel í
Austurríki sem er stórt fyrirtæki
þar og þær eru úr fyrstu ull sem
klippt er af lömbum sem ganga
úti. Ytra byrðið er úr bómull og
þetta eru sængur sem
anda vel og
þola þvott á
60 gráðum.
Mjög vönduð
vara,“ segir
Karólína
s a n n -
f æ r -
andi. Frá Hefel á hún líka góðar
gervisængur og kodda sem hún
segir þó seljast betur á sumrin.
Tvíbreiðar sængur á hún líka og
fyrir utan einstaklingssængur í
hefðbundinni tveggja metra
lengd á hún bæði styttri og lengri
gerðir. Þær styttri eru 1,40 m og
þær löngu 2,20 m.
Sængurverin og koddaverin
eru til í hundraðavís, einlit í ýms-
um litum, mynstruð og rósótt.
Mörg þeirra eru saumuð hjá Fata-
búðinni. „Yfirleitt flytjum við öll
efnin inn sjálf og látum sauma úr
þeim hér, einkum gæðaefni eins
og damask, bómullarsatín og
lyocell sem er náttúruvænt efni
með marga góða eiginleika,“ segir
Karólína og bætir við að saumað
sé eftir pöntunum líka. „Þá er
hægt að fá aukakoddaver úr sama
efni því sumir vilja hafa marga
kodda,“ segir hún. Einnig má geta
þess að í Fatabúðinni er rúmfatn-
aður merktur með útsaumuðum
stöfum ef óskað er.
gun@frettabladid.is
Þetta svart/hvíta sængurverasett er með
kínverskum útsaumi.
Haustlitirnir fara vel í sængurfötum líka.
Glæsilegt bómullarsatínsett í rauðu og
svörtu.
Ljós og fínleg
rúmföt í ýmsum
tónum.