Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 36
8 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Rau› lilja í fiverholti
Steinunn Marínósdóttir, eigandi blómaverslunarinnar Rauð lilja.
Svo virðist sem fáar hverfis-
búðir séu eftir í Reykjavík á
tímum stórkaupmanna.
Þannig er það í það minnsta
við fyrstu sýn en stundum
þarf einfaldlega að opna aug-
un aðeins betur. Blómaversl-
unin Rauð lilja er í Þverholti
og vilja eigendur hennar
endurvekja rómað andrúms-
loft smáverslana.
Lítil blómabúð hefur nú litið
dagsins ljós í Þverholti. Þetta er
blóma- og gjafavöruverslun og
leggja eigendur hennar mikið
upp úr persónulegum samskipt-
um við viðskiptavini sína.
Steinunn Marinósdóttir á búð-
ina ásamt eiginmanni sínum
Pétri Gunnarssyni og hefur búðin
verið opin frá því í ágúst. „Okkur
fannst skorta litlar notalegar
búðir í þessum hverfisanda og
við vildum ná þeim anda upp,“
segir Steinunn og bætir við að
markmið þeirra sé að koma til
móts við þarfir kúnnanna með
því að halda verðlaginu í lægri
kantinum. Rauð lilja er í raun
andstæða við það framúrstefnu-
lega sem má finna svo víða, „við
erum ekki alveg laus við nýjung-
arnar en viljum leggja meira upp
úr því persónulega,“ segir Stein-
unn og segja þau hjón að verslun-
in sé skapandi verslun.
Í búðinni eru seldar skreyting-
ar, bæði blóma- og þurrskreyt-
ingar og silkiblómaskreytingar.
Einnig má finna þar hefðbundnar
gjafavörur, kerti, engla, innpakk-
aðar smágjafir, gjafakörfur,
myndir, litlar pakkaskreytingar
og fleira. Steinunn býr mikið til
skreytingarnar sjálf og tekur við
sérpöntunum, stórum sem smá-
um, fyrir hvaða tilefni sem er.
Fyrir jólin ætlar Rauð lilja að
bjóða upp á hráefni í jólaskreyt-
ingar fyrir þá sem óska eftir að
föndra sínar eigin skreytingar.
Nú standa yfir tilboðsdagar í
versluninni. Fram yfir helgi er
helmingsafsláttur af þurrskreyt-
ingum og blómvöndum. ■
Þú verður bara líka…
Sturtuklefar og
baðker í úrvali!
Ótrúleg verð!!!!
Símaþjónusta frá 10-19: 899-4567
Öll viðgerða/varahluta og
uppsetningaþjónusta fyrir hendi
www.sturta.is
allan sólarhringinn!
IL TUCANO
Tryggvagata 11, 101 Reykjavík
Sími: 534 6100
Sérverslun
með húsgögn
og gjafavörulífstílsverslun
í miðbænum
Útsala
frá 40%
afsláttu
r
RÝMIN
GARSA
LA
Glæný aðferð
í korta og
myndagerð !
Hvernig væri að breyta til og
gera Jólakortin eða myndir
með nýju efnisaðferðinni okkar!
www.fondurstofan.is
Síðumúli 15
Opið mán. til fös. 13 -18 og
laug. 10 -14 s. 553 1800
Rósaskreyting með reyniberjum. Fjólublá og falleg skreyting sem er prýðilegt stofustáss.
Silkiblómaskreyting með engli.