Fréttablaðið - 29.09.2005, Qupperneq 44
12 Tónar síðasta vígi
íslenskrar plötuverslunar
Hver er uppáhaldsbúðin þín?
Plötuverslunin 12 Tónar við Skólavörðustíg. Hún er síðasta vígi plötuverslunar í
landinu, allt annað eru bara súpermarkaðir. Svo gera þeir líka svo gott kaffi.
Hvað finnst þér skemmtilegast að kaupa?
Mér finnst skemmtilegast að týnast í góðri plötuverslun. Þar get ég eytt stund-
unum.
Verslar þú í útlöndum?
Já, ég geri það oft. Helst kaupi ég þar föt og plötur.
Einhverjar venjur við innkaup?
Eyða miklu og vera í jakka með stórum vösum svo það komist geislaplötur fyrir
í vasana.
Tekurðu skyndiákvarðanir í fatakaupum?
Já, oftast.
Sammi í Jagúar hefur gaman af verslunarferðum,
sérstaklega ef þær fela í sér plötukaup.
KAUPVENJUR
29. september 2005 FIMMTUDAGUR16
Færð þú MasterCard
Ferðaávísun?
B a n k a s t r æ t i 1 0 + S í m i 5 6 2 2 3 6 2 + i n f o @ e x i t . i s + w w w . e x i t . i s
Allar nánari upplýsingar á www.exit.is
Costa Rica, Mexíkó, Kúba, Ecuador & Galapagos, Thailand,
Borneo, Indland, Sri Lanka, Kenya, Tanzania, Botswana,
Suður Afríka, Egyptaland og Marokkó.
Allt um mat
á föstudögum í Fréttablaðinu.
Allt sem þú þarft
og meira til
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
P
R
E
28
04
9
0
4/
20
05
Skálar á Langanesi./Ljósmynd Vilhelm
SJÓNAR-
HORNFR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Vissir þú ...
... að hæsta staðfesta verð sem hefur
verið greitt fyrir bíl er um einn millj-
arður króna? Bíllinn var 1931 árgerð af
Bugatti.
... að lengsta stökk limúsínu af ská-
braut er 31,4 metrar? Limúsínan vó 3
tonn.
... að Bandaríkin framleiddu 12,27
milljónir bíla árið 2002?
... að Þjóðverkinn Markus Riese hjólaði
29,1 kílómetra afturábak á einni
klukkustund?
... að lengsta nothæfa mótorhjólið
mældist 8,9 metrar á milli hjóla og er
1,72 metrar þar sem það er hæst?
... að minnsta mótorhjólið sem hefur
verið smíðað vó 1,1 kíló, komst mest í
2 km hraða á klukkustund og framhjól
þess var aðeins 16 millimetrar í þver-
mál?
... að vísbendingar eru um að maður-
inn
hafi tamið hesta til reiðar allt frá árinu
4.000 fyrir Krist?
... að elsta þekkta stafrófið er talið vera
frá 1450 fyrir Krist? Útdautt semitískt
mál var ritað með því stafrófi.
... að Gary Thuerk sendi fyrstu óum-
beðnu fjöldaruslpóstsendinguna árið
1978? Hann sendi 397 tölvubréf til
móttakenda til að bjóða þeim á tölvu-
sýningu. Við hugsum Gary þegjandi
þögnina fyrir þetta framlag í tölvu-
heiminum.
... að fyrsta símtalið sem fór á milli
manna sem staðsettir voru hvor á sínu
heimskautinu fór fram í apríl árið
1999? Það voru tveir starfsmenn NASA
sem tóku þátt í 45 mínútna löngum
símafundi með öðrum starfsmönnum
NASA.
...að lengsti sæsímastrengurinn er alls
27.000 kílómetrar og liggur frá Japan
til Bretlands? Strengurinn getur flutt
600.000 símtöl samtímis.
.
.. að Bandaríkjamaðurinn James
Trusler var eina mínútu og sjö sekúnd-
ur að skrifa 160 tákna smáskilaboð á
símann sinn?
.
.. stærsti sjónvarpsskjárinn sem hefur
verið byggður er 70,4 metra breiður og
átta metra hár?
... að Douglas Engelbart skapaði fyrstu
tölvumúsina árið 1964 og fékk einka-
leyfi fyrir hana árið 1970?