Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 51

Fréttablaðið - 29.09.2005, Síða 51
35 Óvissa me› flátttöku Árna Gauts í leiknum gegn Svíum Sölvi Geir Ottesen er eini n‡li›inn í íslenska landsli›inu fyrir leikina gegn Pólverjum og Svíum. Samb‡lis- kona Árna Gauts á von á barni daginn eftir Svíaleikinn og flví óvissa um hvort hann leiki gegn Svíum. FÓTBOLTI Óvíst er hvort Árni Gautur Arason landsliðsmarkvörður geti leikið gegn Pólverjum og/eða Sví- um 7. og 12. október næstkomandi þar sem sambýliskona hans á von á barni og er skrifuð á fæðingar- deildina daginn eftir Svíaleikinn. „Ég ræddi við Árna Gaut í dag [í gær] og við fórum yfir málin. Lík- lega verður hann með gegn Pól- verjum en við verðum að sjá til með Svíaleikinn,“ sagði Ásgeir Sig- urvinsson landsliðsþjálfari við Fréttablaðið eftir að hann og Logi Ólafsson völdu íslenska landsliðið fyrir vináttuleik gegn Pólverjum og leik gegn Svíum í undankeppni HM. Báðir leikirnir eru ytra. Ásgeir sagði að tveir mark- menn væru efstir á listanum til að kalla inn í landsliðshópinn ef Árni Gautur verður fjarri góðu gamni, þeir Daði Lárusson hjá FH og Fjalar Þorgeirsson hjá Þrótti. Tveir af okkur bestu leikmönn- um, Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson, eru í leik- banni gegn Svíum. Ásgeir segir að hvorugur þeirra hafi beðið um frí í Póllandsleikinn og hann og Logi líti á þann leik sem hreinan undirbún- ing gegn Svíaleiknum og því hafi verið ákveðið að gefa Eiði og Her- manni alveg frí. Einn nýliði er í íslenska lands- liðinu, Sölvi Geir Ottesen, varnar- maður Djurgården í Svíþjóð. Sölvi Geir er fastamaður í U21 árs landsliðinu sem mætir Svíum dag- inn fyrir A-landsleik þjóðanna. „Sölvi Geir nýtist okkur í leik- inn gegn Pólverjum og svo er alltaf möguleiki að nýta hann á bekknum gegn Svíum þótt hann hafi spilað daginn áður með ung- mennaliðinu. Við höfum fylgst með honum í síðustu leikjum hjá U21 árs liðinu og hann hefur staðið sig virkilega vel. Við vitum að hann hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Djurgården en hann er leik- maður framtíðarinnar og við vilj- um prófa hann. Það eru stór skörð höggvin í vörnina. Auk Hermanns vantar þrjá tvo menn vegna meiðsla, þá Pétur Marteinsson og Ólaf Örn Bjarnason,“ segir Ásgeir. Aðspurður um Harald Guð- mundsson, leikmann Aalesund, sagði Ásgeir að hann hefði fengið sitt tækifæri en nú væri komið að Sölva Geir að spreyta sig. Að sögn Ásgeirs hefur ekki verið tekin ákvörðun um hver verður fyrirliði í leikjunum í fjar- veru Eiðs Smára og Hermanns. Ás- geir viðurkenndi að Árni Gautur væri sterkur kandídat enda hefði hann áður gegnt þeirri stöðu. En hafa Ásgeir og Logi gert það upp við sig hvort þeir gefa kost á sér áfram sem landsliðsþjálfarar þegar undankeppni HM lýkur eftir leikinn í Svíþjóð? „Þetta hefur ekkert verið rætt og við höfum alltaf sagt að við klárum þessa tvo leiki og þá kem- ur í ljós hvað verður,“ sagði Ásgeir. Leikurinn gegn Pólverjum fer fram á heimavelli Legia, Wojska Polskiego-leikvanginum í Varsjá, sem var upphaflega byggður árið 1916 og tekur rúmlega 15.000 manns í sæti. Allt stefnir í að uppselt verði á leik Svíþjóðar og Íslands á Råsunda-leikvanginum í Stokk- hólmi. Þegar hafa selst 31.000 mið- ar en leikvangurinn tekur 37.000. Þetta gæti verið úrslitaleikur fyrir Svía að komast á HM í Þýskalandi næsta sumar. thorsteinngunn@frettabladid.is FIMMTUDAGUR 29. september 2005 Stuðningsmannaklúbbur LeedsUnited á Íslandi ætlar sér að fara í hópferð hinn 20. október til þess að sjá tvo leiki í enska boltanum, Leeds United gegn Sheffield United og Manchester United gegn Tottenham Hotspur. Athygli vekur að einung- is er hægt að kaupa miða á leik Manchester United og Tottenham fyrir fram en klúbbmeðlimir verða að kaupa miða á staðnum til þess að sjá Leeds spila. Sennilega er ástæðan sú að Leeds leikur þessa stundina í 1. deild á Englandi en Manchester United og Tottenham eru vitanlega í úrvalsdeildinni. Stjórn Leedsklúbbsins getur þó útvegað miða á hagstæðum kjörum. Knattspyrnusamband Íslands varsektað um 500 þúsund íslenskar krónur vegna fjölda áminninga sem A-landslið karla fékk í tveimur síð- ustu leikjum í undankeppni heims- meistaramótsins í knattspyrnu. Fjórir leikmenn íslenska liðsins fengu að líta gula spjaldið í leikn- um gegn Króatíu á Laugardalsvelli og í leiknum gegn Búlgaríu voru fimm leikmenn áminntir. Fyrir þessar níu áminningar var KSÍ sektað um 500 þúsund krónur. Eið- ur Smári Guðjohnsen landsliðsfyrir- liði og Hermann Hreiðarsson voru meðal þeirra fimm sem áminntir voru í leiknum gegn Búlgaríu og verða þeir tveir því í banni í leiknum gegn Svíþjóð í næsta mánuði. Alex Ferguson, knattspyrnustjóriManchester United, var æfur út í fjölmiðla eftir leikinn gegn Benfica í Meistaradeild Evrópu en þá gagn- rýndu nokkrir blaðamenn leikskipu- lag liðsins. Ferguson sagðist ekki ætla að reyna að fræða blaða- mennina um fót- bolta, hann væri einfaldlega bú- inn að gefast upp á því. „Það er alltaf sama sagan með ykkur blaðamenn. Þið teljið mig vera að stjórna liðinu illa og viljið breyta leikskipulaginu. Mér finnst breskir fjölmiðlar vera á villigötum. Þið viljið alltaf breyta öllu, sama hvernig gengur. Látið mig um að stjórna lið- inu. Ég hef náð ágætis árangri með því að treysta á mína eigin vitneskju um fótbolta. Ekki vera að skipta ykk- ur af mínum störfum því ég held að það muni engu breyta um hverni ég sé hlutina fyrir mér,“ sagði reiður Alex Ferguson. Matthías E. Sigvaldason hefurskrifað undir samning við Fjölni um að þjálfa meistaraflokk kvenna í knattspyrnu hjá félaginu næstu tvö árin. Matthías hefur lengi þjálfað yngri flokka en hann hefur starfað sem þjálfari hjá Leiftri og Fjölni. Matthías lék á sínum tíma með Fjölni, Leiftri og Dalvík og þjálfaði meðal annars meistaraflokk kvenna hjá Leiftri árið 1999. Matthías hefur einnig þjálfað meistaraflokk karla hjá Fjölni en það var árið 2001. Gott unglingastarf í Grafarvoginum á vafalaust eftir að styrkja meistarflokk Fjölnis á næstu árum. Fabio Capello, knattspyrnustjóriJuventus, er ekki hrifinn af hugs- unarhætti Svíans Zlatan Ibra- himovic, sem er á mála hjá Juvent- us. Capello gagnrýndi Zlatan nokk- uð eftir leikinn á móti Rapid Vín, þó hann hafi skorað eitt mark og lagt upp annað fyrir David Trezeguet þar að auki. „Zlatan er vissulega frá- bær knattspyrnumaður, en hugarfar hans verður að breytast. Hann hugs- ar ekki nógu mikið um liðsfélaga sína. Hann vill alltaf vera með boltann sjálfur og spilar ekki nægilega mik- ið. Þetta er nokkuð sem ég verð að vinna í með honum en forsendan fyrir því að ná árangri er að hann breyti um hugarfar.“ ÚR SPORTINU LANDSLIÐSHÓPUR ÍSLANDS Markverðir: Árni Gautur Arason Vålerenga Kristján Finnbogason KR Aðrir leikmenn: Brynjar Björn Gunnarsson Reading Arnar Þór Viðarsson Lokeren Tryggvi Guðmundsson FH Heiðar Helguson Fulham Auðun Helgason FH Indriði Sigurðsson Genk Gylfi Einarsson Leeds Kristján Örn Sigurðsson Brann Veigar Páll Gunnarsson Stabæk Stefán Gíslason Lyn Grétar Rafn Steinsson AZ Alkmaar Kári Árnason Djurgården Gunnar Heiðar Þorvaldsson Halmstad Jóhannes Þór Harðarson Start Bjarni Ólafur Eiríksson Valur Sölvi Geir Ottesen Djurgården Landslið Svía valið: Sterkur hópur FÓTBOLTI Lars Lagerbäck, þjálfari sænska landsliðsins í knatt- spyrnu, hefur valið leikmannahóp Svía sem mætir Króatíu og Ís- landi í undankeppni HM í næsta mánuði. Hópur sænska liðsins er mjög sterkur enda liðið í toppsæti riðilsins. Markverðir: Andreas Isaksson (Rennes), Eddie Gustafsson (Ham-Kam). Varnarmenn: Christoffer And- ersson (Lilleström), Mikael Nils- son (Panathinaikos), Erik Edman (Rennes), Petter Hansson (Heer- enveen), Teddy Lucic (Häcken), Olof Mellberg (Aston Villa), Alex- ander Ostlund (Feyenoord). Miðjumenn: Niclas Alexand- ersson (IFK Gautaborg), Daniel Andersson (Malmö), Kim Käll- ström (Rennes), Tobias Linderoth (FC Kaupmannahöfn), Fredrik Lj- ungberg (Arsenal), Anders Svens- son (Elfsborg), Christian Wil- helmsson (Anderlecht). Framherjar: Marcus Allbäck (FC Kaupmannahöfn), Johan Elmander (Bröndby), Zlatan Ibra- himovic (Juventus), Mattias Jöns- son (Djurgärden), Henrik Larsson (Barcelona), Markus Rosenberg (Ajax). Tite Kalandadze: Frá í 4-6 vikur? HANDBOLTI Georgíumaðurinn Tite Kalandadze, stórskytta Stjörn- unnar, er fingurbrotinn og gæti misst af næstu 4-6 vikum. „Það sem hrjáir hann er brotið bein í handarbakinu, held að það sé kallað miðbein. Það gæti farið svo að hann verði ekki með okkur næstu fjórar til sex vikurnar en á mánudaginn er hann að fara í nýja röntgenmyndatöku og vonandi að þá komi þetta betur í ljós,“ sagði Sigurður Bjarnason, þjálfari Stjörnunnar. Logi Ólafsson landsliðsþjálfari prísar sig sælan að fá bara tvö göt á hausinn: FÓTBOLTI Logi Ólafsson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, lenti í gær í alvarlegum árekstri við 17 tonna malarflutningabíl fyrir utan höfuðstöðvar KSÍ. Bíll Loga er líklega ónýtur en betur fór en á horfðist því hann slapp með minniháttar meiðsli. Logi sagði í samtali við íþróttadeildina að hann hefði verið að keyra frá Laugardals- vellinum þegar malarflutninga- bíllinn keyrði á vinstra fram- brettið. Malarflutningabíllinn var að keyra efni vegna fram- kvæmda við stækkun stúkunnar í Laugardalnum. Logi var fluttur á slysadeild þar sem gert var að sárum hans. „Ég prísa mig sælan að vera þó ekki með meira en tvö göt á hausnum og sokkið auga. Hefði malarflutningabílinn lent hálfum metra innar og á bílstjórahurðina værum við ekki að ræða málin núna. Það má segja að þetta hafi verið lán í óláni,“ sagði Logi, sem hafði nýlokið við að velja ís- lenska landsliðið fyrir leikina gegn Pólverjum og Svíum þegar hann ók frá höfuðstöðvum KSÍ. Logi átti að lýsa stórleik Liverpool og Chelsea í Meistara- deildinni í gær en var fjarri góðu gamni vegna árekstrarins. Hann verður hins vegar tilbúinn til starfa fyrir landsleikina 7. og 12. október næstkomandi. - þg Lenti í árekstri vi› 17 tonna trukk Sigurður Valur Sveinsson, þjálfari Fylkis, eftir sigur á FH í Árbænum í gær: Erum a› s‡na li›unum hvernig á a› spila vörn HANDBOLTI „Við erum að sýna lið- unum hvernig á að spila vörn. Þetta hefur ekki sést í mörg ár,“ sagði Sigurður Sveinsson, þjálf- ari Fylkis, eftir að lærisveinar hans sigruðu FH-inga 27-22 í Ár- bænum í gær. Gestirnir komust aldrei yfir í leiknum en voru skammt undan í fyrri hálfleik. Í þeim síðari hafði Fylkir síðan yfirhöndina algjör- lega. Heimir Örn Árnason var markahæstur með átta mörk en öll nema eitt skoraði hann í fyrri hálfleiknum. „Við ætlum ekki að gefa neitt eftir á heimavelli. Við náðum góðri vörn og fækkuðum tæknivitleysunum og þar með fengum við fleiri hraðaupphlaup- um en venjulega, það er stígandi í sókninni hjá okkur,“ sagði Sig- urður en Fylkismenn hafa aðeins fengið á sig 62 mörk í fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu, þrettán færri en næsta lið fyrir ofan og aðeins 20,7 í leik. Atli Hilmarsson, þjálfari FH, var ekki jafn hress. „Við vorum að spila mjög illa og sóknarleik- urinn heldur áfram að vera vandamál hjá okkur, hann þurf- um við að skerpa. Þá var mark- varslan óvenjuslök. Fylkir hefur skemmtilegt lið sem berst vel og átti skilið að sigra,“ sagði Atli Hilmarsson en FH-liðið hefur tapað þremur fyrstu leikjunum undir hans stjórn. FH tapaði einnig leikjum sínum fyrir Aftureldingu (21–22) og Fram (21–26) en þeir voru báðir á heimavelli. - egm VERÐUR HANN MEÐ? Árni Gautur Arason gæti misst af landsleikjunum gegn Póllandi og Svíþjóð. GETTYIMAGES SVONA Á AÐ SPILA VÖRNINA Sigurður Valur Sveinsson, þjálfari Fylkismanna sem hafa spilað bestu vörnina í DHL-deild karla til þessa. FRÉTTABLAÐIÐ/ATNON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.