Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 52
36
Magnús Gylfason tekur væntanlega vi› Víkingi af Sigur›i Jónssyni sem er me›
tilbo› frá sænsku li›i en segist spenntur fyrir flví a› taka vi› U21 árs landsli›i
Íslands.
Magnús verður líklega
næsti þjálfari Víkings
FÓTBOLTI Magnús Gylfason verður
að öllum líkindum næsti þjálfari
Víkinga, samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins og leysir Sigurð
Jónsson af hólmi. Magnús var
sem kunnugt er leystur undan
störfum hjá KR í sumar. Víkingar
settu sig strax í samband við
Magnús þegar samningar náðust
ekki við Sigurð og er vilji beggja
aðila að ganga til samninga.
„Magnús kemur alveg eins til
greina og aðrir. Hann er í golfi á
Spáni. Ég neita því ekki að við
höfum rætt við Magnús og reynd-
ar fleiri þjálfara. Það verður
gengið frá þjálfaramálunum síðar
í vikunni, hver sem það verður,“
sagði Ágúst Friðrik Hafberg,
varaformaður knattspyrnudeildar
Víkings, við Fréttablaðið. Ekki
náðist í Magnús í gær.
Tvö tilboð
Sigurður, sem er í fríi í San
Marinó, sagði við Fréttablaðið að
því miður hefði ekki náðst sam-
komulag við Víking um áfram-
haldandi samstarf.
„Þetta er eins og hjónaband,
stundum eru aðilar bara ekki
sammala og þá gengur dæmið
ekki upp. Annars er ég mjög sátt-
ur við aðskilnað minn hjá Víkingi.
Ég skilaði liðinu aftur upp í
Landsbankadeildina.“
Sigurður sagðist vera með tvö
tilboð í höndunum um þjálfun,
annað þeirra er frá Svíþjóð sem
aðstoðarþjálfari í góðu liði og hitt
er hér heima. Sigurður vildi ekk-
ert tjá sig frekar um það.
Sigurður hefur aðstoðað Eyjólf
Sverrisson hjá U-21 árs landsliði
Íslands í sumar. Þrálátur orðróm-
ur er á kreiki að Eyjólfur taki við
íslenska A-landsliðinu í haust og
Sigurður hefur verið orðaður sem
næsti þjálfari U-21 árs landsliðs-
ins.
„Ég neita því ekki að mér
finnst það spennandi kostur. Það
hentar mér vel að þjálfa efnilega
knattspyrnumenn,“ sagði Sigurð-
ur sem ætlar að leggjast undir
feld þegar hann kemur heim úr
sumarfríi.
thorsteinngunn@frettabladid.is
29. september 2005 FIMMTUDAGUR
Körfuboltahreyfingin horfir fram á hvimleitt vandamál:
Dómaraskortur í körfuboltanum
KÖRFUBOLTI „Það hefur vantað
körfuboltadómara undanfarin ár.
Dómarar hafa verið yfirhlaðnir
verkefnum og hver einasta helgi
frá október og fram í apríl hefur
verið undirlögð. Við þurfum að
manna leiki í meistaraflokkum og
yngri flokkum og alls eru þetta
1500 leikir,“ sagði Hannes Þ. Jóns-
son, formaður dómaranefndar
Körfuboltasambandsins við
Fréttablaðið. Körfuboltaleiktíðin
hefst eftir hálfan mánuð. Met-
mæting var á haustfund dómara-
nefndar KKÍ í vikunni en 36 dóm-
arar mættu sem er samt engan
veginn nóg fyrir verkefni vetrar-
ins. Stærsta vandamálið í dóm-
gæslunni er höfuðborgarsvæðið.
„Okkar sárvantar dómara á
höfuðborgarsvæðinu og reyndar á
Suðurnesjunum líka. KR á t.d.
engan dómara, Valur á einn og
Grindavík engan. Hins vegar er
nóg af dómurum á Suðurlandi og
Vesturlandi. Í Borgarnesi eru sex
dómarar, hjá sameiginlegu liði
Hamri/Selfoss eru fimm og
Hrunamenn sem eru í 2. deild eiga
3 dómara,“ segir Hannes.
Dómurum er skipti í þrjá
flokka og þeir sem dæma í Inter-
sport-deild karla eru í A flokki.
Þeir eru 18 en 15 þeirra verða
virkir í vetur. „Það má ekkert út
af bregða því það þarf tólf dómara
í hverja umferð. Það er ljóst að
þegar líða fer á veturinn að ein-
hverjir B-dómarar fá tækifæri í
efstu deild. Okkur vantar fleiri
dómara. Undanfarin þrjú ár hafa
200 manns tekið dómarapróf en
örfáir hafa skilað sér. Sem dæmi
mættu tíu manns á dómaranám-
skeið í vor í Reykjavík en enginn
af þeim skilaði sér í dómgæslu á
vegum sambandsins,“ segir
Hannes.
Um helgina verður dómara-
nefnd KKÍ með annan dómara-
fund og vonast Hannes til þess að
þeir dómarar sem ekki komust í
vikunni mæti og taki skriflegt og
verklegt próf. Nóg er af verkefn-
um og ágætis aukapening að hafa
upp úr dómgæslunni.
- þg
TEKJUR DÓMARA Í BOLTA-
GREINUM FYRIR HVERN
DÆMDAN LEIK:
Körfubolti
Úrvalsdeild 6.400
Úrslitakeppni úrvalsdeildar 10.100
1. deild kvenna 5.500
Handbolti
Úrvalsdeild ka. og kv. 8.300
Úrslitakeppni 14.190
Fótbolti
Úrvalsdeild karla 11.545
Aðstoðardómarar 9.035
Úrvalsdeild kvenna 6.035
Auk þessa fá allir dómarar bílastyrk og
dagpeninga í lengri ferðir.
KÖRFUBOLTI „Oscar var á reynslu-
tíma og okkur fannst hann ekki
vera að gera réttu hlutina. Það er
stutt í mót og liðið ekki í formi,
leikkerfin voru varla farin að
mótast og við sáum einfaldlega í
hvað stefndi.
Þess vegna var hann látinn
fara,“ sagði Þorgeir Einarsson,
formaður körfuknattleiksdeildar
ÍR við Fréttablaðið um ástæður
þess að þjálfarinn Oscar
Pedroche frá Spáni var rekinn
frá félaginu skömmu fyrir Ís-
landsmót. Halldór Kristmanns-
son og Jón Örn Guðmundsson
voru ráðnir í hans stað en báðir
hafa leikið með ÍR og þjálfað hjá
félaginu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins reyndist Oscar
Pedroche óhæfur þjálfari og var
gríðarleg óánægja með hann hjá
leikmönnum liðsins sem fannst
ótrúlegt að hann hefði áður kom-
ið nálægt körfuboltaíþróttinni.
ÍR-ingar réðu Oscar í sumar í
gegnum íslenskan umboðsmann
en þá voru þeir komnir í hálfgerð
vandræði því þjálfaraleitin gekk
vægast sagt illa.
„Við réðum hann eftir mikla
leit en hann uppfyllti ekki okkar
væntingar. Þjálfaraskiptin kosta
okkur smáaura en í hans stað
koma tveir frábærir ÍR-ingar
sem vita út á hvað þetta gengur,“
sagði Þorgeir.
- þg
Spænskur þjálfari ÍR í körfuboltanum reyndist algjörlega óhæfur í starfi:
fijálfaraskiptin kosta okkur smáaura
ÁFRAM MEÐ YKKUR Magnús Gylfason mun væntanlega öskra á leikmenn Víkings í
Landsbankadeild karla í knattspyrnu næsta sumar.
LOMANO LUA LUA Lua Lua hefur verið
einn af bestu leikmönnum Portsmouth
síðustu tvö tímabil.
FÓTBOLTI Lomano Lua Lua, fram-
herji enska úrvalsdeildarfélags-
ins Portsmouth, veiktist illa á dög-
unum og hefur nú komið í ljós að
hann er með malaríu. Lua Lua var
á ferð um Afríkuríkið Kongó þeg-
ar hann veiktist en hafði þó ekki
meiri áhyggjur af því. „Ég hélt að
þetta væri ekkert alvarlegt,“
sagði Lua Lua.
Á æfingu á dögunum féll Lua
Lua svo saman og var fluttur í
skyndi á sjúkrahús þar sem kom í
ljós að Lua Lua var mað malaríu.
Talsmaður Portsmouth sagði líðan
Lua Lua stöðuga. „Hann verður að
hvíla sig næstu vikurnar og verð-
ur á sjúkrahúsi þangað til hann
hefur jafnað sig af þessum alvar-
legu veikindum.“
Lua Lua hefur verið einn af
bestu leikmönnum Portsmouth
síðan hann kom til félagsins frá
Newcastle United og er því ljóst
að hans verður sárt saknað í
næstu leikjum. - mh
Illa veikur framherji:
Lua Lua me›
malaríu
■ ■ LEIKIR
19.15 KR og ÍR mætast í DHL-
höllinni í Reykjavíkurmótinu í
körfubolta karla.
20.15 ÍS og Fjölnir eigast við í
íþróttahúsi Kennaraháskólans í
Reykjavíkurmótinu í körfubolta karla.
■ ■ SJÓNVARP
17.35 Handboltakvöld á RÚV.
17.40 Meistaradeild Evrópu á Sýn.
Sýndur verður gamall leikur úr
meistaradeildinni.
19.35 Meistaradeildin með
Guðna Bergs á Sýn.
20.15 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
20.40 Bardaginn mikli. Frægur
bardagi á milli Mohamed Ali og Joe
Frazier.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Strandblak á Sýn.
23.25 Bandaríska mótaröðin í
golfi á Sýn.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
26 27 28 29 30 1 2
Fimmtudagur
SEPTEMBER
FIBA-DÓMARAR Sigmundur Már
Herbertsson og Kristinn Óskarsson.