Fréttablaðið - 29.09.2005, Side 56
„Hugmyndin með þessari sýn-
ingu var að fjalla um það hvað
hver dagur er margvíslegur og
hvað það er margt sem við erum
að fást við,“ segir Ásta Ólafsdótt-
ir myndlistarkona um sýningu
sína í Nýlistasafninu. Sýninguna
nefnir Ásta Áttarhorn eða
Azimuth sem er tílvísun á stjarn-
fræðilega vídd. Áttarhornið er
hornið sem er á milli þeirrar átt-
ar sem þú vísar til og höfuðáttar.
„Að vísu er minn dagur og
okkar sem erum í myndlist í
sjálfu sér kannski dálítið mynd-
rænn, þannig að ég tek mynd-
rænu hliðina á þessu og vinn með
hana.“
Í sýningunni eru margvísleg
áhugamál Ástu komin saman og
úr þeim býr hún til eina heild þar
sem hún stefnir saman ýmsu úr
náttúrunni og öðrum menningar-
heimum.
„Ég stilli þessu upp pínulítið
eins og augað alsjáandi og bý til
ákveðna stemningu, meðal ann-
ars út frá áhuga mínum á forn-
leifum.“
Ásta segir tímann leika stórt
hlutverk í sýningunni og þá horfir
hún frekar á jarðsögulegann tíma
en tíma hversdagsveruleikans.
„Jarðfræðilega er tíminn allt
annar en þegar við erum að
vakna á morgnana og hverjar
fimm mínútur eru málið. Sama
gildir um menningarheimana.
Þótt ég sjálf sé innan vestrænnar
menningar hef ég gaman af að
fást við heiminn allan og skoða
hann sem heild. Ég er svona að
leggja minn skerf til þess.“
Ásta segist samt ekki gera
neinar sérstakar kröfur til sýn-
ingargesta.
„Ég ætlast bara til þess að fólk
upplifi sýninguna eins og þegar
það fer á Þingvöll að skoða haust-
litina. Það þarf engar skýringar
af minni hálfu. Hver og einn get-
ur bara fundið sína nálgun.“
Tvær aðrar sýningar eru
einnig í Nýlistasafninu og lýkur
þeim báðum um helgina, eins og
sýningu Ástu. Annars vegar er
það sýning Daða Guðbjörnssonar
sem sýnir þar Málverk og er að
hans sögn eins konar uppgjör við
hugmyndalist. Hins vegar er sýn-
ing Unnars Jónassonar Auðarson-
ar sem kallar sýningu sína „Sam-
anSafn, Rjóður Ákvarðanir“.
40 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
> Ekki missa af ...
... djasshátíð Reykjavíkur, sem stendur
yfir þessa dagana með fjölmörgum sjóð-
heitum tónleikum fram á sunnudag.
... hádegissmelli Stígamóta, þar sem
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir lögfræðingur
fjallar um nauðgun frá sjónarhóli kvenna-
réttar í húsi Stígamóta við Hlemm.
... sýningunni Hvernig borg má bjóða
þér?, sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu.
Bækur Guðrúnar Helgadóttur hafa heillað
unga sem aldna síðustu áratugina. Hún varð
sjötug nýverið og í dag kemur út bókin Í Guð-
rúnarhúsi, sem er greinasafn um bækur Guð-
rúnar. Í bókina skrifa níu fræðimenn, en rit-
stjórar eru þær Brynhildur Þórarinsdóttir og
Dagný Kristjánsdóttir.
Í tilefni af útkomu bókarinnar bjóða Bók-
menntafræðistofnun Háskóla Íslands og
Vaka-Helgafell til útgáfuhátíðar í Hátíðasal
Háskóla Íslands í dag klukkan 17. Dagskráin
stendur í tvo tíma og fyrst tekur Silja Aðal-
steinsdóttir til máls. Erindi hennar nefnist „Í
upphafi var afmæli“.
Dagný Kristjánsdóttir flytur síðan erindi sem
hún nefnir „Að standa með barninu. Guðrún
Helgadóttir – stjórnmálamaður barnanna.“
Þær Brynhildur Þórarinsdóttir og Sigþrúður
Gunnarsdóttir flytja einnig erindi, Brynhildur
um kímni í verkum Guðrúnar og Sigþrúður
um þýðingar á verkum hennar.
Leikarar úr Þjóðleikhúsinu lesa einnig upp úr verk-
um hennar og loks verður Guðrúnu afhent bókin Í
Guðrúnarhúsi.
Kl. 12.15
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
prófessor í mannfræði við HÍ, fjallar
um Ólafíu Jóhannsdóttur í hádegis-
fyrirlestri sínum, sem haldinn er á
vegum RIKK í Öskju, stofu N132.
menning@frettabladid.is
Til hei›urs Gu›rúnu Helgadóttur
Margbreytileiki daganna
!
Djasshátí› heldur áfram
Djasshátíð Reykjavíkur hófst í
gær og heldur áfram af fullum
krafti í dag. Tónleikar verða í
kvöld bæði á Kaffi Reykjavík og í
Þjóðleikhúskjallaranum. Einnig
verður klúbbur djasshátíðar op-
inn á Póstbarnum.
Á Kaffi Reykjavík leikur Sept-
ett Óskars Guðjónssonar, sem er
skipaður þeim Óskari Guðjóns-
syni og Ólafi Jónssyni á tenórsax-
ófóna, Jóni Páli Bjarnasyni og
Ómari Guðjónssyni á gítara, Jó-
hanni Ásmundssyni á bassa, Pétri
Grétarssyni á slagverk og Matthí-
asi Hemstock á trommur.
Í Þjóðleikhúskjallaranum leik-
ur Karmelgebach, hljómsveit
þeirra Róberts Reynissonar gítar-
leikara, Tobiasar Schirrer á
saxofón, Niko Meinhold á píanó,
Eiríks Orra Ólafssonar á trompet
og Helga Svavars Helgasonar á
trommur.
Í djassklúbbnum á Póstbarnum
leikur síðan kvartettinn Land-
rover frá klukkan 23.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
ÓSKAR GUÐJÓNSSON Septett Óskars
leikur á djasshátíð á Kaffi Reykjavík.
ÁSTA ÓLAFSDÓTTIR Sýningu hennar í Nýlistasafninu við Laugaveg lýkur um helgina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
„Þannig banka örlögin á dyrnar,“
sagði Ludwig van Beethoven um
upphafið að fimmtu sinfóníu
sinni, sem Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands flytur á tónleikum sínum í
Háskólabíói í kvöld. Engir upp-
hafstaktar hafa náð þvílíkri frægð
og ekkert verk Beethovens hefur
haft jafn mikil áhrif á síðari kyn-
slóðir. Hinn mikli dramatíski
kraftur sem í verkinu býr hefur
ekkert dvínað á tvöhundruð árum.
Barátta tónskáldsins við eigin ör-
lög, heyrnarleysi og einmanaleika
verður næstum áþreifanleg fyrir
eyrum manns.
Stjórnandi hljómsveitarinnar í
kvöld verður Anne Manson, sem
er ein af þeim fjölmörgu konum
sem undanfarið hafa látið að sér
kveða sem hljómsveitarstjórar.
Hún komst í sögubækurnar fyrir
að hafa fyrst kvenna stjórnað óp-
eruflutningi á Salzburg-hátíðinni.
Auk fimmtu sinfóníu Beet-
hovens verður í kvöld fluttur
flautukonsert eftir Kalevi Aho. Á
flautuna leikur engin önnur en
Sharon Bezaly, sem tónskáldið
segir vera stórfenglegasta
flautuleikara sem hann hafi
nokkru sinni heyrt í.
Síðast en ekki síst verður verk
Þorsteins Haukssonar, Bells of
Earth, á dagskránni. Gagnrýnend-
ur hafa keppst við að lofa verkið
og sumir vilja meina að það sé
„hápunkturinn á glæsilegum tón-
smíðaferli Þorsteins Hauksson-
ar.“ Þorsteinn er kominn til lands-
ins til þess að vera viðstaddur
flutninginn.
Örlögin drepa á dyr
SHARON BEZALY Hún þykir einn stórkostlegasti flautuleikari heims um þessar mundir.