Fréttablaðið - 29.09.2005, Blaðsíða 70
54 29. september 2005 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2 kvæði 6 Austfirðir 8 stórt her-
bergi 9 þrot 11 skóli 12 talía 14 slagsmál
16 bardagi 17 hljóma 18 æðri vera
20 bor 21 ögn.
Lóðrétt: 1 afkvæmi 3 klaki 4 skemmt-
un 5 fæða 7 þögull 10 frestur 13 nögl 15
góla 16 siða 19 tveir eins.
Lausn
Lárétt: 2vísa,6af, 8sal,9mát,11ma,
12blökk,14áflog,16at,17óma,18
guð,20al,21arða.
Lóðrétt: 1lamb,3ís,4samkoma,5ala,
7fálátur, 10töf, 13kló,15gala,16aga,
19ðð.
Þessa dagana er verið að leggja
lokahönd á val þeirra fjórtán þátt-
takenda sem leita munu á náðir
ásta og ævintýra undan Tyrklands-
ströndum í næsta mánuuði, vegna
raunveruleikaþáttanna Ástarfleyið
sem sýndir verða á sjónvarpsstöð-
inni Sirkus. Að sögn ástarkafteins-
ins Valdimars Arnar Flygenring,
sem stýra mun þáttunum á hafi úti,
sóttu 400 manns um að taka þátt í
þessu mikla ævintýri.
„Viðbrögðin hafa einungis verið
jákvæð og ég vona svo sannarlega
að það verði tilfinningin áfram,“
segir Valdimar, sem nýlega skoðaði
aðstæður í Marmaris á Tyrklandi.
„Þetta er æðislegur staður, al-
gjör paradís. Það er ljóst að ég fer
með krakkana mína til Marmaris á
næsta ári,“ segir hann hrifinn og
sannfærður um að Amor muni
færa keppendur saman á lúxus-
snekkjunni syðra.
„Fólk getur farið á skítugan bar
í Reykjavík, dottið ofan í ölkrús og
náð sér í maka fyrir lífstíð í hávaða
og reyk á styttri tíma en það tekur
að kaupa sér skó. Þarna erum við
saman í tíu daga, fjórtán vel gefin
ungmenni, hress og skemmtileg, og
satt best að segja finnst mér það
heilbrigð leið til að kynnast,“ segir
Valdimar og bætir við að hópurinn
sýni þverskurð þjóðarinnar.
„En auðvitað er alltaf hégómi í
kringum sjónvarp. Mín aðkoma
verður með þeim hætti að ég mun
alltaf vera trúr því sem mér finnst
skipta máli í lífinu, frekar en ein-
hverju bulli. Auðvitað verður þetta
eitthvert flipp líka, en það verður
bara gaman,“ segir Valdimar, glað-
beittur og spenntur með kaskeitið.
Fjölda manns langa›i á Ástarfleyi›
Valdimar Örn Flygenring, ástarkafteinn á Ástarfleyinu.
Einn af fjölmörgum spennandi
liðum á Reykjavík International
Film Festival fer fram í Tjarnar-
bíói á morgun. Þá munu sýndar
eftirlætishryllingsmyndir Páls
Óskars Hjálmtýssonar. „Þeir báðu
mig að vera með hryllingsmynda-
kvöld og höfðu haft spurnir af því
að ég hefði áhuga á þessu en ég
hef einmitt safnað hryllings-
myndum og sérstaklega átta milli-
metra filmum,“ segir Páll Óskar.
Páll Óskar ákvað að sýna
myndirnar Texas Chainsaw
Massacre frá 1974 og Night of the
Living Dead frá 1968. Fyrri mynd-
in hefst stundvíslega klukkan
23.00 en athuga skal að rangt er
farið með tímann í bæklingi kvik-
myndahátíðarinnar. „Gaman er að
segja frá því að sá sem leikur Leð-
urfés í Texas Chainsaw Massacre
heitir Gunnar Hansen og var ís-
lenskur en fluttist til Bandaríkj-
anna þegar hann var lítill strákur.
Ég held að með þessu hlutverki
hafi hann skapað eftirminnileg-
ustu fígúru hryllingsmyndanna.“
„Við ætlum að búa til rosalega
stemningu og sýna þessar klass-
ísku myndir í einni röð, byrjum á
Night of the Living Dead. Mynd-
irnar eru báðar svokallaðar
„költ“-myndir en þannig myndir
eiga sér stóran áhorfendahóp sem
horfir á þær aftur og aftur og
tengjast myndunum einhvers
konar tilfinningalegum böndum.
Myndirnar eru einnig báðar gerð-
ar fyrir utan Hollywood-kerfið,
eru sem sagt „independent“
myndir,“ segir Palli, sem talar af
mikilli ástúð um efnið og áhuginn
skín úr augunum.
„Þessar myndir brutu upp frá-
sagnartæknina sem áhorfendur
áttu áður að venjast í hryllings-
myndum og persónurnar bregðast
við eins og venjulegt fólk. Þær
eru svo fallegar í ljótleika sínum
og handritin og persónusköpunin
eru mögnuð. Fyrst og fremst hafa
þær báðar staðist tímans tönn og
búa báðar yfir þeim hæfileika að
geta rifið iðrin úr áhorfandanum
og traðkað á þeim.“
Myndirnar verða báðar sýndar
á filmu, með rispum og öllu að
sögn Palla og einnig verður fleira
gert til að endurvekja gamlan fíl-
ing. „Við ætlum að sýna gamlar
auglýsingar og bíómyndabrot til
þess að endurvekja stemninguna.
Fílingurinn verður svolítið eins og
í gamaldags bílabíói nema það
verða engir bílar.“
Aðgangseyrir á hryllingsveisl-
una er lítill þúsundkall. Innifalið
er miðnætursnakk og eins og áður
sagði hefjast herlegheitin á slag-
inu ellefu. hilda@frettabladid.is
PÁLL ÓSKAR HJÁLMTÝSSON Söngvarinn góðkunni er mikill aðdáandi hryllingsmynda og á morgun sýnir hann tvær uppáhaldsmynd-
irnar sínar í Tjarnarbíói.
KVIKMYNDAHÁTÍÐIN: PÁLL ÓSKAR SÝNIR HRYLLINGSMYNDIR
Iðrin rifin úr áhorfendum
TÓNLISTIN Ást mín er algjör á Will Old-
ham (Bonnie Prince Billy) og Sufjan
Stevens, sem mér finnst algjörir kóngar
meðal söngvara og lagasmiða. Svo er ofar-
lega á lista hljómsveitin The Shins, sem ég
rakst á í bíómyndinni Garden State með
Zach Braff, sem mér finnst yndislegur.
BÓKIN Ég er hrikalega eftir á þessa dag-
ana. Er að uppgötva aldagamlar bækur og
tónlist sem mér finnst allir hafa talað um
fyrir ári. Þar má nefna bókina Fast food
Nation sem er mjög ítarleg úttekt á við-
bjóði skyndibitamenningarinnar og hvern-
ig sú menning teygir sig út um allt. Er líka
að lesa bækur um afríska kvenspæjarann
Precious Ramotswe.
BÚÐ Í Nornabúðinni á Vesturgötu er hægt
að hitta yndislegar nornir sem geta spáð
fyrir manni og selt manni fallega skart-
gripi, jurtate og fleira. Er einnig pínu hrif-
inn af „Górillubúðinni“ Comme de
Garcóns í gamla Slippnum.
MATUR Ég er orðinn gersamlega óður í
kasjúhnetur og lífrænt ræktaðan mat.
Maður Lifandi er æðisleg búð og mér
finnst grundvallaratriði að sleppa svína-
kjöti þegar ég get; mér finnst það viðbjóð-
ur. Fiskur er vanmetinn en æðislegur mat-
ur og ég var einmitt að kaupa mér bókina
Fiskveisla fiskhatarans.
BÍLL Saab 9000i frá árinu 1987 er yndis-
legasti bíll í heimi. Eyðir sjö lítrum á
hundraðið utan borgarmúranna og fer
með mig og fullt af græjum hvert sem mig
langar.
VERKEFNIÐ Hljómsveitin mín
Hraun var að ljúka tökum á plötu
sem mér finnst frábær. Veit samt
ekki hvernig hún mun leggjast í
fólk. Voða einlægt og angurvært
allt saman. Það er samt alltaf jafn
æðislegt að sitja og skapa, og of-
boðslega gaman að spila fyrir
aðra, sérstaklega ef húsið er fullt
af jákvæðu og móttækilegu fólki,
en fátt erfiðara en að spila fyrir þá
sem eru alls ekki á sömu línu og
maður sjálfur.
...fær Gillzenegger fyrir að gefa
sér tíma í að skrifa „hnakkaleið-
beiningar“ fyrir almúgann.
HRÓSIÐ
Afrískur kvenspæjari, kasjúhnetur, nornir og hraun
Baggalútsbræðurnir Bragi Skúla-son og Guðmundur Pálsson
fara á kostum í fréttum af Baugs-
málinu. Fyrir þá sem ekki þekkja
www.baggalutur.is gerir heimasíðan
út á spaugilegar hliðar lífsins. Á
vefnum í gær var frétt um
nýja bók Jónínu Bene-
diktsdóttur. Á heimasíðu
Baggalúts segir: „Þessi
óborganlega barnabók,
sem nú loksins er aftur
fáanleg, fjallar um tví-
burana Jón Gerald og
Jón Ásgeir sem búa í
blokk í Reykjavík ásamt mömmu
sinni og pabba, Jóni Steinari litla
bróður sínum og Davíð, unglinga-
veikri hálfsystur sinni. Á heimilinu er
einnig barnfóstran Kjartan að
ógleymdum Stymma dreka. Sagan
segir á galsafullan hátt frá daglegu
lífi drengjanna, en rauði þráðurinn
er deilur bræðranna um dót og
nammi, sem Jón Ásgeir er gjarn á
að taka af Jóni Gerald.“
Hjónin Gunnar Hilmarsson ogKolbrún Petrea Gunnarsdóttir
sem oftast hafa verið kennd við
fataverslunina GK eru með margt
spennandi í bígerð. Þau seldu GK á
dögunum en eru alls ekki sest í
helgan stein. Í október ætla þau að
opna nýja verslun sem mun selja
vörur frá hönnunarmerkjunum
Fendi, Gucci og
Dolce &
Gabbana. Munu
þau aðallega
selja töskur
og skó ásamt
fleira fíneríi.
Allar Gucci-
og Fendi-óðar
konur geta því
hlakkað til ein-
hvers í október.
Íslenskir kvikmyndagerðarmennfóru tómhentir heim af Nordisk
Panorama hátíðinni sem haldin var
í Bergen. Norðmenn voru mjög sig-
ursælir og hrepptu alls þrjú verð-
laun. Danska myndin Þýska leynd-
armálið var valin besta heimildar-
myndin og Panther Martin frá Nor-
egi valin besta stuttmyndin. Alls
tóku fjórar íslenskar kvikmyndir þátt
en þær voru Africa United, Jón
Bóndi, Töframaðurinn og Slavek
the Shit. Úrslitin koma ekkert sér-
staklega á óvart því þegar þessi
sama hátíð var haldin í Reykjavík
síðasta ár voru Íslendingar einmitt
sigursælir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
ÓKEYPIS
LÖGFRÆÐIAÐSTOÐ
á hverju fimmtudagskvöldi
kl. 19.30 til 22.00 í síma 5511012.
ORATOR,
félag laganema við
Háskóla Íslands.
AÐ MÍNU SKAPI SVAVAR KNÚTUR KRISTINSSON, SIGURVEGARI TRÚBADORAKEPPNI RÁSAR 2:
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Egill Einarsson.
Samfylking.
Hosni Mubarak,
forseti Egyptalands.
TEXAS CHAINSAW MASSACRE Gunnar
Hansen í hlutverki sínu sem Leðurfés.