Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000
FER AÐ RIGNA VESTAN TIL eftir
hádegi. Fram að því víða bjart með köflum.
Þykknar smá saman upp á landinu með
vaxandi sunnan átt. Víða væta í kvöld og
nótt. Hlýn-andi veður þegar líður á sídegið.
VEÐUR 4
LAUGARDAGUR
1. október 2005 - 264. tölublað – 5. árgangur
Það má ætíð
treysta Royal
Royal lyftiduft og
búðingar hafa fylgt
þjóðinni í 65 ár.
Fréttablaðið kynnti
sér Royal og sögu
þess.
MATUR 28
Smí›ar allan
daginn
Í MIÐJU BLAÐSINS
● atvinna
▲
Ískaldur
Léttur öllari ROYAL
Nýr konunglegur!
Lei›beinir fólki
me› betra mataræ›i
ÞORBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR
Steig ekki langt frá
pólitíkinni
Styrmir Gunnarsson,
ritstjóri Morgun-
blaðsins, hefur verið
mikið í umræðu
manna á meðal þessa
vikuna. Frá því að
hann hóf störf á
blaðinu hefur hann
verið vakinn og sofinn yfir útgáfu
þess.
MAÐUR VIKUNNAR 16
Haukur Ingi skuldaði Fylki
Fjórir lykilmenn hjá Fylki
skrifuðu undir nýja samn-
inga við félagið í gær og
þar á meðal var Haukur
Ingi Guðnason sem
Fylkismenn stóðu
þétt bak við í
gegnum mjög
erfið meiðsli.
ÍÞRÓTTIR 38
Mögnu› tilbo› á
n‡jum vörumInnflutningur á tilraunadýrum hefur nálega tvöfaldast:
Á fjór›a flúsund tilraunam‡s fluttar inn
VEÐRIÐ Í DAG
VÍSINDI Innflutningur á dýrum
sem notuð eru við tilraunir hef-
ur snaraukist á síðustu árum.
Ólíkt því sem gerist í nágranna-
löndunum hafa dýraverndunar-
sinnar ekki beint spjótum sínum
að íslenskum tilraunastofum
enda gilda mjög strangar reglur
um meðferð dýranna.
Dýr eru notuð við ýmiss kon-
ar tilraunir hér á landi, sérstak-
lega á sviði lyfjafræði og lækn-
inga. Tilraunadýr eru hins veg-
ar ekki ræktuð hérlendis held-
ur eru þau flutt inn frá Dan-
mörku.
Að sögn Eggerts Gunnarsson-
ar, dýralæknis á Tilraunastöð
Háskóla Íslands í meinafræði að
Keldum, hefur innflutningurinn
vaxið hröðum skrefum. Þannig
voru ríflega þrjú þúsund til-
raunamýs fluttar til landsins í
fyrra, samanborið við 1.500 árið
áður, en auk þess voru um sex
hundruð rottur fluttar hingað
inn árið 2004.
„Menn eru einfaldlega að
gera sér grein fyrir að dýr geta
verið hentug í þessu skyni,“ seg-
ir Eggert.
Mjög strangar reglur gilda
um meðferð dýranna. Þannig
kveður reglugerð á um að ein-
ungis megi nota dýr í tilraunum
„ef ekki eru þekktar aðrar hag-
kvæmar og hentugar leiðir“ og
er þess gætt í hvívetna að dýrin
þjáist eins lítið og mögulegt er.
Tilraunadýranefnd, sem í situr
siðfræðingur, fjallar um hverja
einustu tilraun og einungis þeir
sem hafa tilskilin réttindi fá að
inna tilraunina af hendi. - shg
MÝSLA Mýs eru notaðar við ýmiss konar
tilraunir hérlendis. Flestar tengjast læknis-
og lyfjafræði.
Arfavitlaus hagstjórn
Fyrirtæki sem byggja afkomu sína á erlendri mynt lí›a fyrir hátt gengi krón-
unnar og hækkandi st‡rivexti. Gengi krónunnar styrkist enn frekar og Se›la-
bankinn hefur tilkynnt um hækkun st‡rivaxta á flri›judag.
EFNAHAGSMÁL „Hagstjórnin er eins
arfavitlaus og hægt er að hugsa
sér,“ segir Guðmundur Kristjáns-
son, forstjóri útgerðarfélagsins
Brims á Akureyri. Guðmundur
segir vandann vera heimatilbúinn
því ríkið eigi bæði Íbúðalánasjóð
sem dæli út peningum og Seðla-
bankann á hinum endanum. Hann
telur að þessar aðferðir eigi eftir
að leggja útflutningsgreinarnar í
rúst. „Afleiðingarnar koma bara
ekki í ljós alveg strax, en þær
verða mjög alvarlegar til lengri
tíma litið,“ segir Guðmundur.
Í sama streng tekur Stefán
Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Ís-
landsferða. Hann segist sjá fram
á versnandi hag ferðaþjónustu í
kjölfar hækkunar á stýrivöxtum.
„Því sterkari sem krónan er, þeim
mun verri verða aðstæður okkar.
Við erum trúlega í um fimmtán
prósentum verri aðstöðu núna en
fyrir ári síðan vegna gengisþró-
unarinnar,“ segir Stefán. Hann út-
skýrir að verið sé að keppa við
þjónustu í öðrum löndum þar sem
gengi er stöðugt. Þannig sé um að
ræða ytri aðstæður í rekstrinum
sem valdi verðhækkunum og
minni eftirspurn.
Viðar Viðarsson, fram-
kvæmdastjóri EJS, segist ekki
viss um að gengið hafi allt að
segja fyrir þá sem flytja vörur
inn. „Þó að gengið styrkist eða
veikist þýðir það bara batnandi
eða versnandi aðstæður fyrir
alla sem eiga í innflutningi,“
segir Viðar. Hann segir áhuga
sinn fremur beinast að gengis-
þróun þeirra gjaldmiðla sem
hann og samkeppnisaðilarnir
eru að nota. Viðar segir við-
skiptavini fyrirtækisins njóta
hagstæðrar gengisþróunar.
- óká / sjá síðu 4
Lögmaður 365 prentmiðla:
Sn‡st um tján-
ingarfrelsi›
LÖGBANN Lögbann var í gær sett á
birtingu tölvupósta sem Jónína
Benediktsdóttir fékk og sendi og
Fréttablaðið hefur haft undir
höndum.
„Í mínum huga þá er þetta mál
sem varðar ekki sérstaklega
Fréttablaðið eða þessi tölvugögn
heldur snýst það miklu frekar um
það hvar mörk
tjáningarfrelsis-
ins liggja,“ segir
Jón Magnússon,
lögmaður 365
prentmiðla.
365 prentmiðl-
ar hyggjast fá
banninu hnekkt
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Jón segir að ef það takist ekki sé
ljóst að persónuverndarákvæðið
sé farið að ná langt umfram tján-
ingarfrelsið.
„Þá erum við komin í mikinn
vanda. Þá er spurning hvort eðli-
leg fjölmiðlun fái þrifist og hvort
hægt sé að halda uppi eðlilegri
lýðræðislegri starfsemi og upp-
lýsingamiðlun í landinu. Það
finnst mér meginatriðið í málinu.“
Jón segir lögbannið óvenju víð-
tækt. „Ég veit ekki dæmi þess að
áður hafi verið lagt lögbann á upp-
lýsingar sem þegar hafa verið
birtar – það er mjög sérstakt.“
- th / sjá síðu 2
HELGARVIÐTAL 30
▲
FANN ÁSTINA Í AMERÍKU
BESSASTAÐIR BAÐAÐIR BLEIKU LJÓSI Í tilefni þess að október er helgaður árveknisátaki um brjóstakrabbamein kveiktu forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, og kona hans, Dorrit Moussaieff, á bleikum ljóskösturum í gær. Bessastaðir verða lýstir fram á mánudag.
Vistvænar greftranir:
Líkin ver›a
frostflurrku›
SVÍÞJÓÐ Yfirvöld í bænum Jönköp-
ing í Svíþjóð hyggjast bjóða upp á
umhverfisvænar jarðarfarir árið
2007. Aðferðin er þróuð af vist-
fræðingum og felst í því að líkin
verða frostþurrkuð og þeim
þannig breytt í duft.
Með þessu móti verður hægt
að grafa grynnri grafir og hinar
jarðnesku leifar byrja að næra
jarðveginn innan nokkurra vikna.
Kirkjan hyggst styðja þessa áætl-
un og telur aðferðina ekki óskylda
líkbrennslu. Breska ríkisútvarpið
BBC greinir frá. ■
JÓN MAGNÚSSON
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SIGURÐUR AXEL SVEINSSON