Fréttablaðið - 01.10.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 01.10.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 61,55 61,85 108,66 109,18 74,22 74,64 9,944 10,002 9,429 9,485 7,952 7,998 0,5427 0,5459 89,18 89,72 GENGI GJALDMIÐLA 30.09.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 104,2646 4 1. október 2005 LAUGARDAGUR Verktakar sem vinna að stækkun Norðuráls fengu matareitrun: Sjötíu i›na›armenn fá ni›urgang MATAREYTRUN Um sjötíu iðnaðar- menn á Grundartanga veiktust af matareitrun aðfaranótt fimmtudags eftir að hafa borðað svínagúllas á miðvikudag. Sumir voru svo illa haldnir að þeir treystu sér ekki í vinnuna daginn eftir. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands lét taka sýni bæði úr starfsmönnun- um og á vettvangi og beðið er eftir niðurstöðum úr þeim. „Það kom upp sýking, en það er ekkert komið úr rannsóknum enn hvað þetta var. Áður en við vitum nákvæmlega hvað þetta er getum við ekki fullyrt eitt eða neitt,“ segir Helgi Helgason, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins voru það ekki starfsmenn Norðuráls sem veiktust, heldur iðn- aðarmenn sem starfa sem verktak- ar á svæðinu og snæða í öðru mötu- neyti en starfsmenn Norðuráls. Um 500 iðnaðarmenn vinna að stækkun Norðuráls á Grundartanga og sér veitingahúsið Hrói Höttur um matsölu til verktakanna. Starfsfólk Hróa Hattar staðfest- ir að verið sé að rannsaka matar- eitrunina en neitar að gefa Frétta- blaðinu fleiri upplýsingar. - smk Útflutningsgreinar í uppnámi Samspil hækkandi st‡rivaxta Se›labankans og gengisflróunar veldur fleim áhyggjum sem byggja afkomu sína á erlendri mynt. Se›labankinn hækkar á flri›judaginn st‡rivexti í 10,25 prósent til a› slá á ver›bólgu innanlands og gengi krónunnar er flegar fari› a› styrkjast. Pólskir unglingar: Létust í pílagrímaför VARSJÁ, AP Að minnsta kosti þrettán pólskir unglingar létust í hörðum árekstri rútu og vöruflutningabíls í sunnanverðu Póllandi í gær. Unglingarnir voru á leið frá borginni Bialystok til klausturs- ins Czestochowa en þar er helgi- dómur sem milljónir pílagríma heimsækja á ári hverju. Sextíu manns voru í rútunni og slösuðust 40 þeirra í árekstrinum og eldin- um sem kviknaði í kjölfarið. Öku- menn beggja bifreiðanna biðu bana. Borgarstjórinn í Bialystok hef- ur lýst yfir þriggja daga sorg og hvatti íbúa borgarinnar til að gefa blóð. ■ VÆNDISHÚS Breska lögreglan bjargaði konum úr þrælkun. Austur-evrópskar konur: Bjarga› úr kynlífsánau› BRETLAND Nítján konum á aldrin- um nítján til þrjátíu ára var í gær bjargað af lögreglu frá nuddstofu í Birmingham á Englandi þar sem þær höfðu verið þvingaðar til þess að vinna sem vændiskonur. Tveir menn og ein kona voru handtekin og skotvopn og pening- ar gerð upptæk. Vegabréf kvennanna höfðu verið tekin af þeim, þær læstar inni við vændi á kvöldin og læst- ar inni í húsi á daginn. Að sögn BBC eru þær flestar frá löndum Austur-Evrópu. ■ Miðasala Þjóðleikhússins: Sími 551-1200 www.leikhusid.is Sýningum að ljúka Sjávarútvegur: ARFAVITLAUS HAGSTJÓRN „Vandinn er heimatilbúinn. Ríkið á bæði Íbúðalánasjóð sem dælir út pen- ingum og svo Seðlabankann hinum megin. Hagstjórnin er eins arfavitlaus og hægt er að hugsa sér,“ segir Guð- mundur Kristjánsson, forstjóri útgerð- arfélagsins Brims á Akureyri. Hann segir menn ekki búna að bíta úr nálinni með hvernig lagt sé að útflutn- ingsiðnaði með stýrivaxtahækkunum sem muni styrkja gengi krónunnar enn frekar. „Þetta leggur útflutningsgrein- arnar í rúst. Afleiðingarnar koma bara ekki í ljós alveg strax, en þær verða mjög alvarlegar til lengri tíma litið. Á næstu misserum dregst bara hægt og rólega saman útflutningur á Íslandi og verður mjög erfitt að ná honum upp aftur.“ Ferðaþjónusta: VERSNANDI AÐSTÆÐUR „Því sterkari sem krónan er, þeim mun verri verða aðstæður okkar,“ segir Stefán Eyjólfsson, framkvæmdastjóri Ís- landsferða, sem sér fram á versnandi hag ferðaþjónustunnar í kjölfar stýri- vaxtahækkunar Seðlabankans. „Nóg er þetta nú í dag. Við erum trúlega í um fimmtán prósentum verri aðstöðu núna heldur en fyrir ári síðan vegna gengisþróunarinnar.“ Hann segir erfitt fyrir fyrirtæki í ferðaiðnaði að bregðast við, enda sé þarna um að ræða ytri aðstæður í rekstrinum og verðhækkan- ir í geiranum komi bara niður á eftir- spurn. „Við erum enda að keppa við löndin í kringum okkur þar sem gengið er ekkert að breytast og á sama tíma draga stjórnvöld úr kynningu á land- inu. En við berjumst bara áfram þó að- stæður séu erfiðar.“ Innflytjendur: GENGIÐ SKIPTIR EKKI ÖLLU „Alls ekki er víst að við sem eigum í samkeppni kaupum inn á sama gengi þannig að gengisþróun ein og sér segir ekki alla söguna,“ segir framkvæmda- stjóri Einars J. Skúlasonar, en fyrirtækið flytur inn tölvubúnað, hugbúnað og aðrar vörur. „Þannig að þó gengið styrkist eða veikist þýðir það bara batnandi eða versnandi aðstæður fyrir alla sem eiga í innflutningi. Þannig að áhugi minn beinist meira að gengis- þróun þessara gjaldmiðla sem við samkeppnisaðilarnir erum að versla í.“ Viðar segir þó alveg ljóst að viðskipta- vinir fyrirtækisins fái að njóta hag- stæðrar gengisþróunar. „Auðvitað er sí- fellt verið að verðleggja eins og mark- aðurinn þolir, en þegar innkaupsverð lækkar skilar það sér og ef það hækk- ar.“ Peningamarkaður: SNERTIR AFMÖRKUÐ SVIÐ „Heildaráhrifin á bankakerfið eru ekki mikil þó svo að áhrifin komi fram á af- mörkuðum sviðum,“ segir Atli B. Guð- mundsson, hjá greiningardeild Íslands- banka, um stýrivaxtahækkun Seðla- bankans. „Vextir á bæði útlánum og innlánum til skamms tíma hækka í kjölfarið og þannig hefur ákvörðun Seðlabankans áhrif á viðskiptavini bankanna,“ segir hann og vísar þar til dæmis til yfirdráttarlána og skemmri skuldabréfalána. „Svo breytast líka vextir á millibankamarkaði með krónur þar sem bankarnir lána hver öðrum innbyrðis peninga til skamms tíma, en það er ekki stór hluti af heildarstarf- semi þeirra.“ GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON, FORSTJÓRI BRIMS. STEFÁN EYJÓLFSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI ÍSLANDSFERÐA. VIÐAR VIÐARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI EJS. ATLI B. GUÐMUNDSSON, SÉRFRÆÐINGUR HJÁ GREININGU ÍSLANDSBANKA. M YN D /G ET TY I M AG ES Laganna verðir: Sag›ir hafa stoli› munum BANDARÍKIN Fjórum lögreglumönn- um frá New Orleans hefur verið sagt upp störfum vegna gruns um að þeir hafi látið greipar sópa um verslanir eftir að fellibylurinn Katrín reið yfir borgina. Rannsókn málsins hófst þegar fréttamyndir sýndu lögregluþjóna með fangið fullt af góssi. Talið er að í það minnsta tólf laganna verðir hafi gerst sekir um gripdeildir í kjölfar hamfaranna en sumir þeirra munu þó einungis hafa tekið brýn- ustu nauðsynjar, svo sem mat, til að geta haldið störfum sínum áfram. Þeir sem sagt var upp eru hins veg- ar ásakaðir um að hafa stolið raf- tækjum og skartgripum. ■ NORÐURÁL Verktakar sem starfa að stækkun Norðuráls á Grundartanga fengu slæma matareitrun í vikunni. Það voru ekki starfsmenn Norðuráls sem veiktust, heldur menn sem snæða í öðru mötuneyti.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.