Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 6
6 1. október 2005 LAUGARDAGUR Skemmtibátur sem fórst á Viðeyjarsundi: Báturinn var á sautján sjómílna hra›a SJÓSLYS Skemmtibáturinn sem fórst á Viðeyjarsundi aðfaranótt 10. sept- ember var á 17 sjómílna hraða þegar hann sigldi á Skarfasker, en það jafn- gildir tæplega 31 kílómetra hraða á klukkustund. Í atvikalýsingu rannsóknarnefnd- ar sjóslysa kemur fram að klukkan verið 1.38 þegar bátnum var siglt á skerið, en sendingar frá GPS-tæki hættu 27 mínútum síðar. Þá hafði bátnum verið siglt frá skerinu þang- að sem hann sökk. Ekki hefur verið skorið úr um hvort fram fari sjópróf vegna slyss- ins. Þá stendur enn rannsókn lög- reglu á tildrögum þess og ekki vitað hvenær henni lýkur. Jón Arilíus Ingólfsson, fram- kvæmdastjóri rannsóknarnefndar sjóslysa, segir að sjópróf verði ekki haldin nema farið verði fram á það, en stundum komi fram beiðni um slíkt frá tryggingafélögum eða eig- endum báta. Hann segir hins vegar að nefndin muni ekki hefja slíka rann- sókn að fyrra bragði. Hann segir þó að gerð verði skýrsla um slysið sem birt verði á vef nefndarinnar þegar hún liggur fyrir. „Í slysinu eru þættir sem við viljum taka á og erum enn að safna gögnum í,“ segir hann. - óká Morgunbla›i› gerst brotlegt a› eigin mati BAUGSMÁLIÐ Morgunblaðið telur það brot á lögum að birta tölvupóstsam- skipti einstaklinga. Við því séu við- urlög og þung refsing. Morgunblaðið hefur að minnsta kosti tvívegis birt tölvupóst einstaklinga án þeirra samþykkis og hefur því að eigin mati gerst brotlegt gegn lögum því einka- tölvupóstur Össurar Skarphéðins- sonar og Gunnlaugs Sigmundssonar hafa birst án þeirra samþykkis á síð- um Morgunblaðsins. Í ritstjórnargrein Morgunblaðs- ins í gær segir: „Atli Gíslason, hæstaréttarlögmaður og lögfræðing- ur Blaðamannafélags Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að birting á tölvupóstum án heimildar væri brot gegn almennum hegning- arlögum og mannréttindakafla stjórnarskrár.“ Niðurlag ritstjórnargreinarinnar er: „Stuldur á tölvupóstum er lögbrot og viðurlög eru þung refsing. Birting Fréttablaðsins á tölvupóstssamskipt- um nokkurra einstaklinga er lögbrot og viðurlög eru þung refsing. Að auki heldur Atli Gíslason því fram, að sú birting sé einnig brot á mann- réttindakafla stjórnarskrár.“ Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins, sagði á starfs- mannafundi á Morgunblaðinu í vik- unni um ástæðuna fyrir því að hann hefði ekki birt fréttir um Baugsmál- ið byggðar á gögnum Jóns Geralds Sullenberger: „Ég vildi ekki birta neitt af þessu því þetta voru innan- hússskjöl frá fyrirtæki úti í bæ og mér fannst þetta mál ekki eiga heima á síðum dagblaðanna heldur hjá lögfræðingi.“ Morgunblaðið birti hins vegar bréfaskipti Norður- ljósa og Landsbankans vegna fjár- hagsstöðu Norðurljósa og lánamála félagsins, fáeinum mánuðum síðar. Sigurður G. Guðjónsson, þáverandi forstjóri Norðurljósa, segist hafa gefið leyfi fyrir birtingu bréfanna, en að sögn Brynjólfs Helgasonar, sem annar tveggja ritaði undir bréf Landsbankans, gaf Landsbankinn ekki leyfi fyrir birtingunni. sda@frettabladid.is HEIMSÓKNUM MÓTMÆLT Taívanski lög- fræðingurinn May Chin ásamt hópi mót- mælenda. Junichiro Koizumi: Braut ákvæ›i stjórnarskrár TOKYO, AP „Ég skil ekki hvernig heimsóknir mínar til Yasukuni brjóta í bága við stjórnarskrána. Ég fer þarna af virðingu við hina látnu og með því hugarfari að við megum aldrei heyja annað eins stríð,“ segir Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Hæstiréttur í Osaka úrskurð- aði í gær að Koizumi hefði brotið stjórnarskrárákvæði um trúar- brögð í vor með því að skoða minnisvarða sem sagt er að heiðri hernaðarsögu Japana. Taívanar kærðu forsætisráðherrann en Japanar frömdu ýmis grimmdar- verk í stríðum sínum við Kínverja á sínum tíma. ■ Ætlarðu að fara til útlanda í vetur? SPURNING DAGSINS Í DAG: Var rétt að setja lögbann á Fréttablaðið? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 50% 50% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN Í ritstjórnargrein Morgunbla›sins í gær segir a› fla› sé brot á lögum a› birta tölvupóstsamskipti einstaklinga. Morgunbla›i› hefur fló a› minnsta kosti tví- vegis birt einkapóst einstaklinga án fleirra samflykkis. EINKAPÓSTUR Í MORGUNBLAÐINU Í ritstjórnargrein í Morgunblaðinu í gær segir að það sé brot á lögum að birta tölvupóstsamskipti einstaklinga. Sunnudaginn 10. maí 1998 birtist orðréttur í Morgunblaðinu og í óþökk sendanda tölvupóstur sem Gunnlaugur Sigmundsson sendi þingmönn- um. Sunnudaginn 3. mars 2002 birtist orðréttur í Morgunblaðinu og í óþökk sendanda og viðtak- enda tölvupóstur Össurar Skarphéðinssonar varðandi Baug. GENF, AP „Ómögulegt er að áætla hversu margir kunna að látast úr fuglaflensu ef faraldur verður að veruleika,“ segir Dick Thompson, talsmaður Alþjóðaheilbrigðisstofn- unarinnar WHO. WHO varar nú við að allt að 7,4 milljónir manna geti látið lífið. Á fimmtudag lýsti fulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum því yfir að mannfall gæti orðið á bilinu fimm til 150 milljónir. „Við munum ekki vita hversu skæður faraldurinn raunverulega verður fyrr en hann er kominn af stað,“ segir Thomp- son hins vegar. Veiran sem veldur flensunni hef- ur enn sem komið er aðeins smitast úr fuglum í menn en óttast er að hún muni stökkbreytast þannig að hún geti smitast manna á milli og þannig valdið faraldri um víða veröld með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Veirustofninn sem kallast H5N1 hefur lagt að velli tugi milljóna fugla í Asíu síðan árið 2003. Enn sem komið er hafa 65 manns látist af völdum veirunnar. - saj Símasamband rofnaði: Ljóslei›ari slitna›i FJARSKIPTI Vegna slitins ljósleið- ara í Tungudal á Ísafirði rofnaði símasamband við GSM farsíma á Suðureyri og Flateyri. Vegna bilunarinnar urðu neyðarsímar í Vestfjarðagöngunum milli Botns og Breiðafjarðarheiðar óvirkir. Lögreglan á Ísafirði var því með eftirlit í göngunum á meðan á viðgerð stóð. Samkvæmt Bæjarins besta á Ísafirði var það maður á skurð- gröfu sem olli rafmagnsleysinu með því að taka í sundur ljós- leiðara í Tungudal í Skutulsfirði. Vonast var til að viðgerðinni lyki í nótt. - grs SUÐUR-AFRÍKA HENTI VINNUMANNI FYRIR LJÓNIN Dómstóll í Jóhannesarborg hefur dæmt Mark Scott-Crossley í lífstíð- arfangelsi fyrir morð á þeldökkum vinnumanni á bóndabýli sínu. Crossley lét berja manninn, binda hann og fleygja honum ofan í ljóna- gryfju þar sem hann var bitinn til bana. Ágreiningur um hversu skæð fuglaflensan getur orðið: Mannfalli› gæti hlaupi› á milljónum MÖGULEGUR SMITBERI? Maður sleppir bréfdúfu í kappflugi. Grunur leikur á því að 48 tilfelli um fuglaflensu í mönnum hafi komið upp í Indónesíu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P                  FERÐ BÁTSINS RÉTT FYRIR OG EFTIR ÁREKSTURINN Á kortinu má sjá hvar báturinn kom siglandi vestur Viðeyjarsund áður en honum var snúið við og siglt á Skarfasker. Honum var svo siglt af slysstaðnum og sökk á sundinu. Stykkishólmur: Uppsagnir í rækjuvinnslu SJÁVARÚTVEGUR Tuttugu og fimm manns hefur verið sagt upp störfum hjá rækjuvinnslu Sig- urðar Ágústssonar ehf. í Stykk- ishólmi. Fyrirtækið mun hætta rækjuvinnslu sinni frá og með næstu áramótum. Ástæða lokun- arinnar er langvarandi óhag- stæð ytri skilyrði í rækju- vinnslu. Sigurður Ágústsson segir það áfall að grípa til uppsagna, en það sé eina leiðin til þess að bregðast við slæmum aðstæðum á mörkuðum. Sigurður telur að hátt gengi íslensku krónunnar skipti þar mestu máli því það sé gífurlega óhagstætt útflutnings- greininni. Alls hefur um áttatíu manns verið sagt upp störfum í rækjuvinnslu síðastliðinn sóla- hring. Rækjuvinnslan Íshaf á Húsavík sagði upp 25 manns og Strýta, rækjuvinnsla Samherja sagði upp þrjátíu manns vegna samdráttar. ■ Ferðamenn: 200 leigubílar á bryggjunni SAMGÖNGUR Flestir leigubílar Reykjavíkur voru kallaðir út í sama verkefnið, þegar erlent skemmtiferðaskip sem rúmar tvö þúsund og fjögur hundruð manns lagðist við bryggju í Reykjavík í dag. Tæplega 200 leigubílar voru kallaðir út, auk fjölda langferða- bíla, og sáu bílstjórarnir um að ferja fólkið í land, þar sem það fór í stuttar ferðir niður í miðbæ Reykjavíkur, í Bláa lónið eða alla leið að Gullfossi og Geysi. ■
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.