Fréttablaðið - 01.10.2005, Síða 26
26 1. október 2005 LAUGARDAGUR
Bítbox er vaxandi listgrein í London. Bítboxarar eru
meira a› segja byrja›ir a› vinna sér inn peninga á
strætum Lundúna sem götuspilarar. Birgir Örn
Steinarsson hitti Streetbox, sem var fyrsti dúettinn
til fless a› færa listgreinina út á götu.
Eina kvöldið sem það er lög-legt að spila tónlist úti ágötu á Íslandi er á Menning-
arnótt, en þá er stranglega bannað
að taka peninga fyrir. Af hverju
þessi löggjöf er við lýði hér er
mér hulin ráðgáta en með henni
eru okkur gefin þau skilaboð að
þjóðfélagið sjái lítinn mun á
söngvaskáldi, sem vill komast í
samband við samborgara sína, og
betlara. Þessi óbeinu skilaboð
sökkva dýpra inn en okkur grun-
ar. Þannig stóð ég sjálfan mig að
því að horfa vel í kringum mig af
ótta við að einhverjir Íslendingar
leyndust á strætum Camden-
hverfis Lundúnaborgar á föstu-
daginn síðasta þegar ég stóð á
götuhorni ásamt rappara og bít-
boxara að vinna mér inn fyrir
máltíð kvöldsins.
Vél hermir eftir manni, maður
apar eftir vél
Það var þó hrein aðdáun sem dró
mig á brúna yfir þrönga skipa-
skurðinn í Camden þennan dag.
Aðdáun á viðfangsefnum mínum.
Þau heita Alexander Stell og
Marisa Lock og mynda saman
dúettinn Streetbox. Þau nota lista-
mannanöfnin MC Xander og Blue.
Xander er bítboxari en hún syng-
ur og rappar ofan á. Þau nota að-
eins tvo hljóðnema en hljóma eins
og fullskipuð hljómsveit. Hann
skaffar taktinn og bassalínurnar
með munninum á meðan hún
syngur ofan á.
Streetbox er án efa fyrsti bít-
box-dúettinn í London til þess að
vinna fyrir sér á götunni. Þau
drógu fyrst magnara sinn út á
götu í byrjun júlí og hafa reynt að
fara á hverjum virkum degi siðan.
Nú þegar eru eftirhermur byrjað-
ar að láta á sér kræla.
Um helgar vinna þau bæði
fyrir sér sem rapparar og kynnar
á þekktum klúbbum í London. MC
Xander er á hljóðnemanum á
hverju föstudagskvöldi á The
End, einu virtasta musteri dans-
tónlistar í London. Sextán ára
hafði hann lært af sjálfum sér að
spila á píanó, gítar, bassa og
trommur. Hann keypti tölvu til
þess að hljóðrita lög sín, sem voru
undir miklum áhrifum drum
n’bass og breakbít. Hann hafði
ekki efni á að kaupa almennileg
tónlistarforrit en leysti það
vandamál með því að syngja inn
hvert hljóðfæri fyrir sig. Fljót-
lega áttaði hann sig á því að lögin
hljómuðu vel með munnhljóðun-
um einum saman og lét þau
standa.
„Ég vildi ekki vera háður nein-
um öðrum,“ útskýrir Xander yfir
kaffibolla áður en haldið er út á
götu. „Það er svo gott við bítboxið
að þú getur bara mætt á staðinn
og gert þitt eins lengi og það er
míkrófónn á staðnum. Þannig kem
ég líka minni eigin tónlist að á
klúbbkvöldum ef plötusnúðarnir
stoppa í örlitla stund.“
„Þú þarft ekki plötusnúð til
þess að spila undir hjá þér,“ segir
Blue. „Þú hljómar sjálfur eins og
plata. Það er virkilega gaman að
sjá fólk úti á götu sem hefur
aldrei séð þetta, það missir alveg
andlitið.“
Blue er fyrrum ballettdansari
frá Ástralíu sem hefur unnið sem
atvinnutónlistarmaður frá 2002.
Þar starfaði hún með hljómsveit
sinni Chi-Qi sem spilaði fönk og
beitti brellum til þess að fanga
athygli tónleikagesta. Hún fluttist
til Bretlands eftir að félagi henn-
ar, tónlistarmaðurinn Luke Vibert,
hvatti hana til þess að koma.
Blue og Xander eru sammála
um að röddin geti framkallað mun
áhugaverðari hljóðsveiflu en
hljóðgervill.
„Það er svolítið skemmtilegt að
mannkynið er eiginlega búið að
fara í heilan hring hvað hljóðfæri
varðar,“ segir Blue. „Flest hljóð-
færi eru hönnuð út frá manns-
röddinni. Takturinn kemur svo
auðvitað upphaflega frá
hjartslættinum. Mannkynið bjó til
hljóðfæri og svo vélar upp úr því
sem fæddist í röddinni. Núna
erum við að herma eftir því sem
þessar vélar gera með röddinni.“
Fín mánaðarlaun á götunni
MC Xander hefur starfað í rúmt
ár sem atvinnutónlistarmaður og
kom meðal annars fram með
Atomic Hooligans á Glastonbury-
hátíðinni síðast. Þegar hann geng-
ur um stræti Camden er hann oft
stöðvaður af aðdáendum. Maður-
inn er fæddur til þess að vera á
sviði. Af hverju kýs hann þá að
halda sig á götunni, í stað þess að
spila á börunum á kvöldin? „Þetta
er auðveldasta leiðin til þess að
komast í samband við sem flesta
og ná til þeirra sem annars myndu
ekki fara að sjá bítbox,“ útskýrir
Hápunktar í sögu bítbox
1984 Bobby McFerrin gefur út The
Voice sem var einungis gerð
með rödd hans.
1999 Razhel, bítboxari The Roots,
gefur út Make the Music 2000.
2004 Björk gefur út Medúllu – vinnur
með bítboxurunum Razhel,
Japananum Dokaka og Bretan-
um Shlomo.
2004 Sony gerir samning við Killa
Kela.
2005 Fyrsta heimsmeistaramótið í
bítbox haldið í Leipzig í Þýska-
landi.
GATAN BORGAR MEIRA
NÁM Í DANMÖRKU
Í boði er:
Á ensku og dönsku
•Byggingafræði
•Byggingaiðnfræði
•Markaðshagfræði
Á dönsku
• Veltækni
• Veltæknifræði
• Landmælingar
• Tölvutæknifræði
• Aðgangsnámskeið
• Byggingatæknifræði
• Framleiðslutæknifræði
• Útfl utningstæknifræði
Hjá VITUS BERING í Horsens
bjóðum við upp á margvíslega
menntun.
Fulltrúi skólans – Johan Eli Ellendersen, verður
í Reykjavík á Radisson SAS, Hótel Sögu.
Á tímabilinu - 1. til 15. Október 2005.
Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við
Johan Eli Ellendersen með því að hringja til
Hótel Sögu í síma 525 9900 eða leggja inn
skilaboð, og við munum hringja tilbaka, eða
hringið beint í Eli í síma + 45 60100151.
VITUS BERING DENMARK
CHR. M. ØSTERGAARDS VEJ 4
DK-8700 HORSENS
TEL. +45 7625 5000
FAX: +45 7625 5100
EMAIL: CVU@VITUSBERING.DK.www.vitusbering.dk