Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 27
Xander. „Svo fær maður bara
meiri pening.“
Þessi vika hefur verið mjög
góð fyrir hann og Blue. Þau seldu
geisladiska fyrir um 80 þúsund
krónur og græddu aðrar 30 þús-
und krónur af klinki. Eitt gigg á
barnum hefði kannski fært þeim
um tólf þúsund krónur. Þetta er
því mjög einfalt reikningsdæmi.
Diskurinn sem þau eru að selja
er fimm laga heimabrennt demó.
Á því er eitt lag eftir þau, Rhythm
of the Street, og fjögur tökulög.
Þar á meðal eru Seven Nation
Army eftir The White Stripes,
Billie Jean eftir meistara Jackson
og frábær útgáfa af Groove Is in
the Heart eftir Dee-Lite. Það kost-
ar þau 20 penní að gera hvert ein-
tak, sem svo er selt á fimm pund.
Þegar þau rétta mér eintak
biðjast þau afsökunar á að ekki
skuli vera fleiri frumsamin lög.
Áætlunin sé að semja og hljóðrita
fleiri frumsamin lög því þau vilji
ekki vera tökulagasveit. Það er
aðeins gert til þess að græða
meira á götunni.
„Það er líka mikilvægt fyrir
okkur að lögin verði nægilega góð
til þess að fólk gleymi því hvernig
þau eru unnin,“ segir Xander.
„Þessa dagana er öll áhersla lögð
á að þetta sé allt gert með munn-
inum, frekar en að tónlistin sjálf
sé höfuðatriðið.“
Þau eru þegar byrjuð að reyna
að fanga athygli plötufyrirtækja.
Ein aðferð var að draga magnar-
ann beint upp að dyrum hjá öllum
stærstu útgáfunum og taka lagið.
Viðtökurnar hafa verið mismun-
andi. Stundum var kallað á lögregl-
una, aðrir réttu þeim nafnspjöld.
Dansandi rónar
Þegar kaffibollarnir eru tómir er
sólin farin að skína yfir Camden
og tími kominn til þess að fara í
vinnuna. Vanalega þurfa þau á
aukamanneskju að halda en hún
er ekki með í þetta skiptið. Ég er
því skipaður í hlutverkið. Á leið-
inni að brúnni útskýra þau fyrir
mér hvað ég eigi að gera.
„Fyrst þegar við vorum að
byrja var fólk alltaf að trufla
okkur á meðan við vorum að
syngja, vegna þess að það vildi
kaupa diska,“ segir Blue. „Ég varð
þá að kafa ofan í töskuna mína
eftir skiptimynt á meðan ég var að
syngja. Þú selur diskana þannig að
fólk þurfi ekki að trufla okkur.“
„Líka ef þú sérð fólk vera að
taka okkur upp á símunum sínum
eða vídeókamerum, þá skaltu
biðja það um að borga aðeins í
pottinn eða hætta,“ segir Xander.
„Þetta er vinnan okkar. Fólk áttar
sig ekki alveg á því. Svo veit
maður aldrei hvað fólk gerir við
þessar upptökur.“
„Já, og ef þú getur safnað nöfn-
um og netföngum á þennan lista
hérna, þá ertu nokkuð góður,“
segir Blue.
Þau draga magnarann að
brúnni, stilla honum fyrir framan
sig og stinga hljóðnemum sínum í
samband. Blue leggur flautukass-
ann sinn á stéttina við hliðina á
magnaranum. Xander heldur
hljóðnemanum þétt upp að vörum
sér með vinstri hendinni og setur
þá hægri á ímyndaðan takka á út-
varpi og fer að stilla tíðnina með
tilheyrandi hljóðum. Svo keyra
þau beint í fyrsta lagið. Á öðru
lagi hafa safnast um fimmtíu
manns í kringum þau og sú tala
helst allan tímann.
Þennan dag seldi ég um tuttugu
diska og skráði um fjörutíu manns
á netlistann. Þar á meðal voru
tveir fjölmiðlamenn og einn
klúbbaeigandi frá Póllandi.
Blue og Xander fá ekki frið frá
vegfarendum þegar þau hafa
lokið sér af og margir þeirra lofa
gulli og grænum skógum. Næstu
daga endurtaka þau svo leikinn á
þeim stöðum sem þeim gengur
best. Carnaby Street, South Bank,
Covent Garden og hjá brúnni í
Camden. Það ætti bara að vera
tímaspursmál þar til einhver sem
getur komið þeim almennilega á
framfæri sér þau.
biggi@frettabladid.is
LAUGARDAGUR 1. október 2005 27
Áhugaverðar netsíður um bítbox:
humanbeatbox.com
beatboxing,com
mcxander.co.uk
streetboxers.co.uk
199kr.
999kr.
Öll börn sem koma
á markaðinn fá
gefins Andrésblað
og blöðru!
OPIÐ
alla dag
a
kl. 11-1
9
Allir sem versla
á markaðnum
fá vandaða bók í kaupbæti.
Barnabækur
Handbækur
Kiljur
Ritsöfn
Ættfræðibækur
Ævisögur
Skáldverk
Við rým
um fyri
r jólabó
kunum
Sparað
u
þúsund
ir
króna!
Unglingabækur
Ljóðabækur
Listaverkabækur
Fræðibækur
Stórvirki
Yfir 1.3
00 spen
nandi b
ókatitla
r
undir 1
.000 kr.
EINSTAKT VERÐ
OG GLÆSILEG
SÉRTILBOÐ!
Fellsmú
la 28
Komdu
og ger
ðu
frábær
kaup!
Þeir sem kaupa
fyrir meira en
10.000 kr. fá Söguatlas
að verðmæti 14.990 kr.
í kaupbæti.
3 frábærar ástæður fyrir
því að koma í Fellsmúlann:
LAGERSAL
A EDDU
Ekki missa af
ævintýralegum
tilboðum á
sívinsælum
bókum!
(gamla W
orld Cla
ss húsin
u)
BÓKAMARKAÐUR ÁRSINS!
kr.399
kr.599
kr.799
Dekkósjúklingur
Ég er alveg að missa mig í dekkóæðinu.
Það er bara þannig að ég er svo veik-
geðja þegar kemur að fallegum heimilis-
munum að ég get ekki annað en dregið
upp vísakortið. Maðurinn minn er orð-
inn frekar pirraður. Sér í lagi vegna þess
að það dæmist á hann að mála veggi
og festa upp ljós og myndir. Nú er svo
komið að hann hefur í hótunum við
mig, hótar að láta loka vísakortinu mínu
og hætta að taka til hendinni. Málið er
að ég get ekki lifað án þess að hafa
fallegt í kringum mig. Er þetta spurning
um að skipta eiginmanninum út fyrir
einhvern liðlegri?
ÞÞ á Akureyri
Þú ert í vanda stödd vina mín. „Dekkó“
er ekki lífið, leyfðu manninum að loka
kortinu og finndu þér nýjar áherslur í
lífinu. Þú ert komin allt of stutt andlega
ef þú heldur að þetta sé tilgangur lífs-
ins. Ég er heldur ekki viss um að þú fáir
neinn betri eiginmann þó ég skilji
hreinlega ekki af hverju þinn maður er
ekki löngu búinn að reima á sig
hlaupaskóna.
Er eitthvað að?
Þannig er mál með vexti að mér finnst
rauðvín alveg rosalega gott. Ég bý ein og
helgin byrjar ekki hjá mér nema ég
kaupi mér belju í ríkinu. Ég er því alltaf
að sulla þó ég drekki ekki mikið. Nú eru
vinkonur mínar og mamma farnar að
vera helst til of afskiptasamar og
mamma talar um að senda mig í með-
ferð. Mér finnst þessar lífsvenjur ofur-
eðlilegar og langar ekki til að lifa ef ég
fæ ekki rauðvínið mitt. Lumar þú á ein-
hverju ráði?
MH í Kópavogi
Sullari segir þú. Það er ekkert sem heitir
að vera sullari. Það er bara til eitt orð
yfir þetta og það er alkóhólisti. Ég
myndi fara að ráðum móður þinnar og
drífa mig í þessa meðferð. Hún getur
ekki annað en gert þér gott, þó það
væri ekki nema að opna augu þín fyrir
vandamálinu.
Snarbiluð tík
Ég er í svo miklum skít núna að ég veit
bara ekki hvað. Um síðustu helgi fór ég
heim með einni drottningu og áætlunin
var að hafa það skemmtilegt í nokkra
klukkutíma. Eftir kynlífið fór gellan bara
ekki og ég þurfti að keyra hana heim
svo ég myndi losna við hana. Alla síð-
ustu viku hefur síminn verið stútfullur af
sms-um frá henni og ég geri ekki annað
en eyða því út. Ég nenni ómögulega að
hitta hana aftur og velti því fyrir mér
hver sé besta flóttaleiðin.
ST á Selfossi
Þú ert nú meiri skítalabbinn. Ég er fegin
að ég fór ekki með þér heim. Ég ætla
að vona að pían gefist upp, ekki þín
vegna heldur hennar vegna. Ég vona
líka að hún hafi snefil af skynsemi og
láti söguna berast út. Þú átt ekkert ann-
að skilið en skömm í hatt-
inn. Farðu að haga þér
eins og maður.
FRÖKEN FREYJA LEYSIR VANDANN >
Sendið fyrirspurnir og vandamál til fröken
Freyju, F2, Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík,
eða sendið henni tölvupóst á netfangið
frkfreyja@frettabladid.is. Nöfn sendenda
verða ekki gefin upp í blaðinu.