Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 32
4 30. október 2005 LAUGARDAGUR Allt um atvinnu á sunnudögum í Fréttablaðinu. Allt sem þú þarft og meira til ÍS LE NS KA A UG LÝ SI NG AS TO FA N/ SI A. IS PR E 28 04 9 0 4/ 20 05 Áfram veginn Einar Elí Magnússon kemst leiðar sinnar Árstíðabundið minnisleysi Ég reyni að vera frekar skipulagður. Hugsa fram í tímann, eiga alltaf til hreina sokka og svona. Ávallt viðbúinn og allt það. En stundum klikka ég. Jólin koma til dæmis alltaf jafn mikið aftan að mér. Um miðjan dag á Þorlák rennur upp fyrir mér að ég hef ekki sent nein kort og á eftir að kaupa næstum allar gjafirnar. Svona er þetta á hverju ári og vinir og vandamenn eru orðnir hálfleiðir á því að fá jólakveðju í SMS og sama geisladiskinn um hver jól. Ég hugga mig oft við það að ég er ekki einn um þetta fyrir- hyggjuleysi. Til dæmis virðist það koma Íslendingum jafn mikið á óvart í hvert skipti sem haustið skellur á. Eftir að fimm fyrstu bíl- arnir hafa hafnað utanvegar ranka sumir við sér. „Hálka? Á Ís- landi? Í október?“ Mér datt því í hug að láta ykkur bara vita núna að árstíð hálku og snjókomu er gengin í garð. Hana, þá er það búið. Nú er engin afsök- un fyrir því að vera á sumardekkjum lengur. Allir út á verkstæði og fá sér harðkorna-, loftbólu- eða í það minnsta grófmynstruð dekk. Og nagla ef þið ætlið að keyra eitthvað á þjóðvegum í vetur, annars ekki. Þeir mega samt ekki fara undir fyrr en um miðjan mánuðinn. Og af því að það er farið að kólna er þjóðráð að vera með hlý föt í bílnum, skóflu og kaðal. Maður kemst oft langt á því. Svo er svo gaman að geta hjálpað öðrum í umferðinni, tala nú ekki um ef það er huggulegur bílstjóri af gagnstæðu kyni. Hitabrúsi með kakói og smurðar samlokur kæmu sér líka vel við slíkar aðstæður – en það er nú kannski fulllangt gengið í fyrirhyggju... Jæja, nú hafið þið verið vöruð við. Yfirborð vega mun semsagt taka breytingum á næstunni og þó að þið séuð með allar græjur er besta ráðið alltaf að hægja á sér. Er svo einhver til í að hafa samband við mig um miðjan desem- ber og minna mig á jólin? Ásinn í nano útgáfu BMW kynnir 118ia nano í samstarfi við Apple. B&L kynnir um þessar mundir nýja útgáfu af 1 línunni eða BMW 118ia nano. Útgáfan er kynnt í samstarfi við Apple á Íslandi en nano er nýjasta útgáfan af iPod og sú smæsta til þessa. Að sögn Karls Óskarssonar, sölustjóra hjá B&L, er nýja 1 línu útgáfan í anda þess samstarfs. Á bílasýningu IAA í Frankfurt hafi sýningargestir til dæmis getað hlaðið upplýsingum og öðrum stafrænum gögnum frá BMW beint inn á iPod-tæki sín á annað hvort þýsku eða ensku. „Það er margt svipað með BMW og Apple, þótt fyrirtækin starfi á gjörólíkum sviðum, þar sem þau leggja bæði mikla áherslu á skap- andi tækniþróun. Nano og 1 línan eiga líka ýmislegt sameiginlegt sem smæsta útgáfan af sínum lín- um og Ásinn er að sjálfsögðu með iPod tengi. Meðal staðalbúnaðar BMW 118a nano eru 16“ álfelgur, sjálfskipting, leðurklætt sport- stýri, metallic-lakk og svo að sjálf- sögðu nýr iPod nano.“ Verðið á BMW 118ia nano er kr. 2.990.000. BMW 118ia nano fylgir að sjálfsögðu iPod nano. „Dísilbíllinn er nákvæmlega jafnlítið umhverfisvænn og bensínbíll, hann eyðir hinsvegar minna eldsneyti sem gerir hann oft að skárri kosti,“ segir Þór Tómasson, fagstjóri hjá Um- hverfisstofnun. „Af þeim sökum sendir hann frá sér minna af gróðurhúsalofttegundum en meira af öllu öðru og þar ber helst að nefna sót, „ segir Þór. Sótmengun er tiltöllulega lítil hér að sögn Þórs, og hefur rokið og rigningin þar sitt að segja. „Á logndögum er reykský yfir borg- inni sem er að mestu göturyk, en það er ekki gott að bæta við það fínu sótryki. Ef menn ætla að auka notkun dísilbíla í þéttbýli verður að setja það sem skilyrði að dísilbílarnir séu með sótsíu á útblæstrinum,“ segir Þór. Hann segir dísilbíla góðan kost í dreifbýli þar sem loft- mengun er lítil og fólk þarf að keyra langar vegalengdir. Þar ættu menn að huga að því að vera á eins sparneytnum bíl og kostur gefst. „Við þessar aðstæður er til- valið að vera á litlum dísilbíl með lítilli dísilvél. Ekki sakar að temja sér vistvænan akstur og þá er maður að eyða minna en fjórum á hundraðið,“ segir Þór. Aðspurður hvort dísilbíll sé þá ekki umhverfisvænni en bensínbíll segir hann: „Dísilbíll er bara kostur og ekki er hægt að segja að hann sé betri eða verri. Hann er vissulega betri fyrir þá sem keyra langar vegalengdir, en ef þú keyrir lítið þá er skárra að vera á bensínbíl. Í raun er þetta spurning um forgangsröð, hvort maður álítur aukningu gróðurhúsalofttegunda vera stærsta vandamálið eða sót- mengun.“ kristineva@frettabladid.is Allir bílar menga hvort sem það eru dísilbílar eða bensínbílar. Smurþjónusta fyrir allar gerðir bíla Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla Komdu með bílinn til okkar! Frábær verð og góð þjónusta! Alltaf heitt á könnunni! Aukin ökuréttindi Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika! Kennsla á leigu -, vöru -, hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn. Næsta námskeið hefst 5. október. Upplýsingar og innritun í síma: 567-0300 Ökuskólinn í Mjódd Þarabakka 3 109 Reykjavík Netfang mjodd@bilprof.is www.bilprof.is Hvorki betri né verri Áhugi á dísilbifreiðum hefur aukist og þykir oft vænlegri kostur þegar rætt er um að draga úr mengun í umhverfinu. Það þýðir þó ekki að dísilbílar mengi alls ekki og leitaði Fréttablaðið álits í þeim efnum hjá Þóri Tómassyni fagstjóra hjá Umhverfisstofnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.