Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 46
Þorbjörg hefur búið síðastlið-in 27 ár í Danaveldi, en lifir ídag tvöföldu lífi; aðra vikuna í Danmörku og hina heima á Ís- landi. „Það er dálítið sérstakt fyrir- komulag en ég er farin að kunna á þetta og þegar ég kaupi afskorin blóm passa ég að þau séu út- sprungin svo ég fái notið gleðinnar af þeim,“ segir Þorbjörg, sem und- anfarin ár hefur orðið æ afkasta- meiri í heilsuvakningu Íslendinga. „Í Danmörku er ég fjölskyldu- kona og kennari, en á Íslandi vinn ég frá morgni til kvölds við nær- ingarráðgjöf og fræðslu og held fyrirlestra. Tvö eldri börnin eru farin að heiman en ellefu ára dótt- ir mín býr aðra vikuna hjá dönsk- um föður sínum og hina hjá mér, svo þess vegna er fyrirkomulagið svona,“ segir Þorbjörg, sem heit- bundin er Oscari Umahro Cadog- an, næringarkönnuði, rithöfundi og matlistamanni af guðs náð. „Lífið okkar snýst mikið um mat og þegar dóttir mín er búin í skólanum hefst hún handa við skrif barnamatreiðslubókar með Umahro. Kominn er útgefandi að bókinni hér í Danmörku sem bíður spenntur því hér finnast ekki upp- skriftabækur með hollum og spennandi kosti fyrir börn. Ég bind vonir við að bókin verði öðr- um börnum hvatning til að borða hollt, en heilsuvakning í Dan- mörku er ekki jafn útbreidd og heima, þar sem þjóðfélagið er lítið og fólk hefur áhrif á hvert annað. Því er leikvöllurinn heima miklu skemmtilegri, því fyrir okkur er þetta leikur og svo margir heima sem vilja leika við okkur,“ segir Þorbjörg, en í janúar hefjast sjón- varpsþættir þeirra Umahros á Skjá einum, Íslendingum til bættr- ar heilsu. Ruglingslegir og ófullkomnir matar- kúrar Þorbjörg var ófrísk að sínu fyrsta barni þegar áhugi hennar á heilsu og hollu mataræði hófst fyrir alvöru. „Fram á fullorðinsaldur var ég dæmigerður unglingur með maga- vandamál vegna sykurfíknar, en ófrísk fékk ég vitund um að það væri á mína ábyrgð að þróa hinn ófædda einstakling og upp frá því varð ég mjög heilög; gjörbreytti mataræðinu til að koma sem rétt- astri næringu til fóstursins,“ segir Þorbjörg, sem skömmu síðar hóf nám í hjúkrunarfræði sem meðvit- aðan grunn undir nám í næringa- þerapíu. „Ég vildi hafa góðan akademískan grunn fyrir það óhefðbundna fag, en eftir hjúkrun- arnámið vann ég í skamma hríð við hjúkrun, bara á meðan ég hafði fyrir skólagjöldunum í nýja námið, sem ég hef unnið sleitulaust síð- an.“ Þorbjörg segir „hið eina rétta mataræði“ hafa breyst mikið síðan hún útskrifaðist í faginu. „Þá var megináherslan á kol- vetnisríka fæðu og mikið talað um makróbíótískt fæði og græn- metisætur. Í dag hefur skilningur okkar á þörfum líkamans aukist og ég orðin mótfallin því að fólk lifi eingöngu á grænmetisfæði, því menn þurfa að vera afar meðvitað- ar hráætur til að fá öll þau næring- arefni sem líkaminn þarfnast; ekki síst prótín.“ Þorbjörg segist fá æ fleiri skjólstæðinga sem eiga við vannæringu að stríða. „Mataræði er orðið mjög rugl- ingslegt og ekkert lát á nýjum stefnum. Menn prófa Atkins-kúr- inn, South Beach-mataræðið, Zone og fleiri kúra sem allir boða tak- mörkun á neyslu kolvetna en ein- blína í staðinn á prótín. Við Umahro höfum hannað tíu grunn- reglur um hvað er skynsamlegt að borða miðað við líkamlegar þarfir og byggjum þær á traustum niður- stöðum vísindalegra rannsókna. Við viljum hvorki byggja á bábilj- um né getgátum; mæla með ein- hverju sem við teljum vera gott eða þykir smart að borða. Mikil- vægast er að koma til móts við þarfir líkamans og það sem hann er hannaður til að borða, af heil- brigðri skynsemi.“ Eiturkokkteill handa börnum Út frá námskeiðinu Tíu grunnregl- ur hófu þau Þorbjörg og Umahro vinnu að næringarráðgjöf barna. „Offita, áunnin sykursýki, hjarta- og æðasjúkdómar, melting- arvandi, gigt, krabbamein og Alzheimer eru allt velmegunar- sjúkdómar sem má rekja til lélegs mataræðis sem byrjar í æsku og stundum strax í móðurkviði,“ seg- ir Þorbjörg og telur upp astma, of- næmi, exem, ofvirkni, athyglis- brest, offitu og hvers kyns hegðun- ar- og námsörðugleika sem afleið- ingu af slæmu mataræði barna. „Öll þessi vandamál má rekja til þess að börnin eru á röngu og óhollu fæði. Enn er ríkjandi sá misskilningur að börn megi ekki borða fitu af því hún á að vera svo fitandi. Fita er hins vegar nauð- synleg næring þegar kemur að þroska tauga- og hormónakerfis, heila, myndunar ofnæmis og réttri brennslu. Holl fita kemur úr mataræði sem tíðkaðist á íslensk- um heimilum þegar við vorum fá- tæk fiskiþjóð, en nú vilja börn ekki borða fisk lengur og foreldrar ómeðvitaðir um mikilvægi þess að börn innbyrði fjölómettaða fitu úr fiskafurðum og dýrafitu,“ segir Þorbjörg og tregar forgangsröð ís- lenskra nútímaheimila. „Matarinnkaup og matseld eru neðst á lista því nú þarf allt að vera svo fljótlegt. Börn gjalda þess með vondri næringu í gegn- um allt það rusl sem við setjum ofan í þau; hamborgara, pitsur, pulsur, gos, fransbrauð, sælgæti og Cheerios eða Cocoa puffs á morgnana. Það er óskiljanlegt hví foreldrar kjósa að nota börn sín sem ruslakistur, því í sjötíu pró- sentum fæðunnar eru efni sem eru líkamanum framandi og hann ófær að vinna úr. Auk þess eru í unnum matvælum 3.000 skaðleg litar-, rot- varnar- og sætuefni auk þung- málma. Það er því mikill eitur- kokkteill sem við byrlum börnun- um, sem svo skilar sér í offitu, of- virkni, astma og fleiru. Í stað þess að gefa þeim réttu næringarefnin eyðileggjum við með afgerandi hætti möguleika líkamans á að starfa eðlilega, brjótum niður ónæmiskerfið og sköpum ójafn- vægi í öllum líkamanum; melting- arfærum, ónæmis-, tauga- og hormónakerfum, og heilanum, sem er ekkert annað en stór fituhlunk- ur sem þarfnast sárlega hollrar fitu, en við nærum með svo óholl- um fitum að engin furða er að börnin verði ofvirk og heimskari með ári hverju,“ segir Þorbjörg blátt áfram. „Stundum þegar ég tala við unglinga fæ ég á tilfinninguna að ég sé að tala við vangefna. Börnin eru í vaxandi mæli úti úr heimin- um, hvorki með á nótunum né til staðar, enda engin von á öðru þeg- ar maður skoðar hvað þau borða, sem er sykur og aftur sykur, kol- vetni og gerviefni sem vannærir og skaðar heilann.“ Í vikunni bannaði menntamála- ráðherra Englands sölu á of söltuð- um og sykruðum mat í sjálfsölum enskra skóla, í því augnamiði að stuðla að hollara mataræði, en það var sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver sem hóf baráttu fyrir bættu mataræði breskra skólabarna. Þor- björg segir tíma til kominn að ís- lensk heilbrigðisyfirvöld geri slíkt hið sama, enda sé matseðill í grunnskólum hérlendis til hábor- innar skammar. „Á matseðli eins skólans sá ég að hádegismaturinn var kakósúpa með tvíbökum. Er það bensínið sem börnin eiga að nýta til að læra betur í næsta tíma? Í Danmörku er nú unnið að fyrirmynd skólastjóra á Jótlandi sem hafði fengið nóg af órólegum nemendum sínum sem ekkert gátu lært vegna agaleysis og ofvirkni. Hann ákvað því að banna alfarið gos og sætindi inni á skólalóðinni en réði í staðinn mat- reiðslumann til að útbúa venjuleg- an hollan heimilismat. Breytingin á börnunum varð algjör. Allt í einu gátu þau setið kyrr og lært, komið var jafnvægi á blóðsykurinn,“ segir Þorbjörg og bætir við að gamli íslenski heimilismaturinn sé enn besti kosturinn fyrir börn í vexti. „Íslenski heimilismaturinn er hollur ef hann er búinn til úr góðu hráefni. Slátur er til dæmis herra- mannsmatur; í því er rúgur, blóð og lifur úr skepnum sem hafa lifað á grasi og hollur mör í hófi. Dýrafita er mun hollari en allar þær unnu olíur sem við setjum í matinn núna,“ segir Þorbjörg, sem leggur áherslu á sameiginlegt borðhald fjölskyldunnar þar sem allir borða það sama. „Það gengur ekki að elda eitt- hvað fínt og hollt handa okkur full- orðna fólkinu, en setja börnin til hliðar og halda þeim hljóðum með pitsu og kók af því við viljum fá frið og hafa það náðugt. Við þurf- um að endurskoða og endurmeta gildi þess að eyða meiri tíma í matarinnkaup og matseld, auk þess að gefa börnum ávallt vítamín- og steinefnatöflu daglega, auk lýsis með A- og D-vítamíni.“ Kúamjólk breytist í morfín Ætli verðandi mæður að eignast heilbrigð börn skiptir rétt næring fósturs í móðurkviði sköpum, seg- ir Þorbjörg. „Rannsóknir sýna tengingu milli mataræðis móður og þróunar á ofvirkni hins ófædda barns. Taki móðirin ekki Omega 3-fitusýrur þroskast heili og taugakerfi barns- ins verr og það getur fæðst of- virkt. Því er móðurinni nauðsyn- legt að neyta fiskiolíu og nægs prótíns til uppbyggingar frumna og hormóna, því með réttu matar- æði leggur hún drög að góðum heila, taugum og hormónakerfi barnsins. Börn fæðast með sterkt ónæmiskerfi en því miður er þeim of fljótt gefinn mjólkurmatur sem þau ráða ekki við að melta. Teng- ing er milli eyrnabólgu og neyslu mjólkurafurða hjá ungum börnum. Vegna eyrnabólgu fá þau svo sýklalyf sem eyða allri náttúru- legri flóru úr þörmum þeirra, sem tekur fyrstu þrjú æviárin að þroska.“ Að sögn Þorbjargar fæðast börn án meltingarensíma sem geta brotið niður afurðir úr kúamjólk. „Þá virka hálfniðurbrotin mjólkurprótín sem morfín á tauga- kerfi barna og í kjölfarið byrjar glíman við hegðunarvandamál. Það sama gerist með glútein sem ekki brotnar niður í amínósýrur og endar sem morfínpeptíð. Af þess- um sökum sækja börn mjög í hvítt brauð og finna má marga ofvirka mjólkurþambara sem næla sér þannig í dópið sitt.“ Þorbjörg segir mikilvægt að of- virk og offeit börn séu á mjólkur- og glúteinlausu fæði. „Það er enginn sýnilegur heilsu- farslegur ávinningur af mjólkur- neyslu og enginn sem ég þekki í óhefðbundna heilbrigðisgeiranum sem mælir með mjólk. Við getum fengið kalk úr svo mörgu öðru, auk þess sem rannsóknir sýna að krabbameinsvaldandi efni finnast í mjólk. Við þurfum því að fara varlega í þessa gífurlegu mjólkur- afurðaneyslu og aldrei að gefa börnum innan eins árs kúamjólk.“ Heimasíða Þorbjargar Haf- steinsdóttur er www.10grunnregl- ur.com. Þar má finna upplýsingar um fyrirlestra og námskeið á döfinni um ofangreind málefni og önnur. ■ 30 1. október 2005 LAUGARDAGUR 10 GRUNNREGLUR ...FYRIR ÞÁ SEM ÞORA 1. Þú skalt ekki neyta sykurs; hvorki sýnilegs, ósýnilegs né gervisykurs. 2. Borðaðu bara heilkorn og ekki meira hvítt. 3. Ekki forðast fitu – borð- aðu rétta fitu; holla og líf- ræna. 4. Mundu að borða meira gæðaprótín. 5. Borðaðu belgávexti (baunir, linsur, kjúklinga- baunir) og hnetur á hverj- um degi. 6. Þú skalt borða lífrænt grænmeti og ávexti oft á dag – minnst 600 grömm. 7. Drekktu 1/2 lítra vatns daglega og ferskpressaða grænmetis- og ávaxtasafa, grænt te og jurtate. 8. Borðaðu reglulega. Ekki sleppa morgunmat og borðaðu fleiri og minni máltíðir. 9. Borðaðu jafnt úr öllum fæðuflokkum (prótín, holla fitu, heilkorn og belgávexti) og alltaf líf- rænt. 10. Taktu inn fæðubótarefni – a.m.k. eina sterka fjölvítamín, en helst meira. ÞORBJÖRG HAFSTEINSDÓTTIR NÆRINGARÞERAPISTI OG HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Hollur matur og betri heilsa er áhugamál hennar númer eitt. Ásamt manni sínum bjó Þorbjörg til þætti sem heita Tíu grunnreglur um heilbrigt og skynsamlegt mataræði og verða þeir sýndir á Skjá einum í janúar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N fiorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrunarfræ›ingur og næringaflerapisti var forfallinn nammigrís og sykurfíkill fram yfir tvítugt. fiegar frumbur›urinn haf›i gert sig heimakominn í líkama hennar ákva› hún a› kve›ja sykurpúkann fyrir fullt og allt. Hún sag›i fiórdísi Lilju Gunnarsdóttur frá vannæringu íslenskra barna sem skil- ar sér í æ meiri offitu, ofvirkni og athyglisbresti. Eiturkokkteill í matinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.