Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 01.10.2005, Qupperneq 54
38 Haukur Ingi Gu›nason, Helgi Valur Daníelsson, Eyjólfur Hé›insson og Hrafn- kell Helgason skrifu›u undir flriggja ára samning vi› Fylki. Skuldaði Fylki að gera nýjan samning FÓTBOLTI Fjórir lykilmenn hjá Fylki skrifuðu undir nýja samn- inga við félagið. Haukur Ingi Guðnason, Helgi Valur Daníels- son, Eyjólfur Héðinsson og Hrafnkell Helgason gerðu allir þriggja ára samning við Árbæjar- liðið en þeir voru allir orðaðir við önnur lið í Landsbankadeildinni. Aðeins tveir leikmenn Fylkis eru ennþá samningslausir, þeir Valur Fannar Gíslason og Kristján Valdimarsson. Haukur Ingi hefur lítið leikið með Fylki vegna krossbandaslits eftir að hann gekk til liðs við fé- lagið fyrir tveimur árum frá Keflavík en hinir þrír eru uppald- ir Fylkismenn. Þá skrifaði Jón Sveinsson undir 3ja ára samning sem aðstoðarþjálfari Leifs Garð- arssonar sem þjálfar Fylki næstu þrjú árin. „Mér líður mjög vel hér í Ár- bænum. Fylkismenn eru stórhuga og stefna hátt á næstu árum. Þeir eru líka búnir að standa vel við bakið á mér þann tíma sem ég er búinn að eiga við erfið meiðsli að stríða og mér fannst að ég skuld- aði þeim að vissu leyti að vera hér áfram,“ sagði Haukur Ingi við Fréttablaðið. Hörður Antonsson, formaður meistaraflokksráðs Fylkis, sagði það sérstaklega ánægjulegt að hafa gert nýja samninga við þessa fjóra leikmenn. Þetta væri stórá- fangi fyrir Fylki, sem ætlaði sér stóra hluti næsta sumar. „Þriggja ára samningur er vissulega mikil skuldbinding. Við stefnum að því að vera í allra fremstu röð og byrja strax á næsta ári. Ef það tekst ætla ég ekki að hætta strax um haustið. Þá líst mér vel á Leif sem þjálfara. Hann hefur gert góða hluti í Hafn- arfirði með Ólafi [Jóhannessyni] og kemur úr þannig umhverfi þar sem náðist góður árangur og þess vegna ætti hann að þekkja hvað til þarf,“ sagði Haukur. En hvað vantar upp á að Fylkir berjist fyrir alvöru um Íslands- meistaratitil? „Þetta er stór og erfið spurn- ing. Fyrst og fremst hefur vantað stöðugleika. Ég tel að mannskap- urinn sé nógu góður til að berjast um Íslandsmeistaratitil ef allir eru heilir. Það þarf að búa til sterka liðsheild og byrja strax á því á undirbúningstímabilinu,“ sagði Haukur. Fylkismenn söknuðu Vals Fannars Gíslasonar á blaða- mannafundinum í gær en hann er samningslaus. Valur Fannar sagði í samtali við Fréttablaðið að það væri ekkert í gangi hjá sér. „Ég vildi einfaldlega ekki skrifa strax undir en mér finnst ólíklegt að ég spili fyrir annað lið á Íslandi,“ sagði Valur Fannar. thorsteinngunn@frettabladid.is ÞÓRÐUR GUÐJÓNSSON Spilar á Íslandi næsta sumar. ÞÓRA FYRIRLIÐI MEISTARANNA Spilar með FH í handboltanum í vetur. Þórður Guðjónsson: Ræ›ir vi› Skagamenn FÓTBOLTI Skagamenn eiga í viðræð- um við Þórð Guðjónsson um að hann gangi á ný til liðs við félagið. Þórður hefur fengið þau skilaboð frá Johan Boskamp, knattspyrnu- stjóra Stoke City, að hann muni ekki fá tækifæri í liðinu í vetur. Þórður er á heimleið og fékkst staðfest í herbúðum ÍA að þeir eru mjög vongóðir um að hann gangi til liðs við sitt gamla félag. Þórður flytur til Íslands um áramót en hann hefur ekki leikið með ÍA síð- an 1993. Þá eiga Skagamenn einnig í viðræðum við Gunnlaug Jónsson, fyrirliða liðsins, um að hann skrifi undir nýjan samning. Bregðist það bíða fleiri lið í startholunum, þ.á.m. Valur og KR. - þg DHL deild kvenna: fióra Björg tek- ur fram skóna HANDBOLTI Þóra B. Helgadóttir, landsliðsmarkvörður Íslands í fót- bolta, verður með liði FH sem mætir Víkingum í Fossvogi í DHL- deild kvenna í handbolta í dag. „Ég einfaldlega vildi ekki fara í frí og þurfa svo að byrja aftur á núlli. Ég sé handboltann fyrir mér sem góða hreyfingu fyrir mig sem markmann. Því hann reynir á snerpu, fótavinnu og grip svo eitt- hvað sé nefnt. Þetta er skemmtileg hreyfing á meðan fótboltinn liggur niðri en ég hef hins vegar ekkert lofað FH hversu lengi ég verð með,“ sagði Þóra sem er fyrrum ungmennalandsliðskona í hand- bolta og ein leikjahæsta landsliðs- kona í fótbolta fyrr og síðar þrátt fyrir að vera aðeins 24 ára. „Ég var nú alltaf miðjumaður hjá Störnunni og Val á sínum tíma en ég held að ætlunin sé að nota mig í vörninni ef Sissi (Kristján Halldórsson þjálfari FH) ætlar eitthvað að nota mig yfir höfuð. Ég geri mér ekkert allt of miklar von- ir því ég hef lítið verið í handbolt- anum undanfarin ár.“ - hjo 1. október 2005 LAUGARDAGUR Þjálfarastyrkir ÍSÍ Verkefnasjóður Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands auglýsir hér með til umsóknar styrki fyrir íþróttaþjálfara til að sækja sér menntun eða kynna sér þjálfun erlendis. Veittir verða 10 styrkir, hver að upphæð kr. 50.000,- Við úthlutun verður leitast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar. Þjálfarar hvers kyns hópa (afreksmanna, barna og unglinga o.s.frv.) koma jafnt til greina við úthlutun. Konur eru sérstaklega hvattar til að sækja um styrkina. Umsóknum með lýsingu á náms- og starfsferli, auk greinargóðrar lýsingar á fyrirhugaðri ráðstöfun styrksins og ávinningi íþróttahreyfingarinnar af henni, skal skilað til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, í síðasta lagi mánudaginn 24. október n.k. Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni Laugardal og á heimasíðu ÍSÍ – www.isisport.is Haust 2005 Það verður mikið um að vera í íþróttahúsinu á Ásvöllum um helgina: HANDBOLTI Það verður hart barist á Ásvöllum í dag þegar kvenna- og karlalið Hauka í handbolta verða í eldlínunni í Evrópu- keppninni í handbolta. Karlaliðið mætir danska liðinu Århus GF í C-riðli Meistaradeildar Evrópu en Þorvarður Tjörvi Ólafsson hefur leikið með báðum liðunum og þekkir því vel til þeirra beggja. „Århus GF spilar hraðan handbolta og það er eiginlega alltaf skoruð mörg mörk í leikj- um liðsins. Markvarslan og varn- arleikurinn verða að vera í góðu lagi. Möguleikar Hauka felast fyrst og fremst í því að vera grimmir í vörninni og þora svo að sækja hratt þegar færi gefst. Ég hef fulla trú á Haukum þó að Århus GF sé óneitanlega sterkt lið.“ Einn Íslendingur leikur nú með Århus GF en það er horna- maðurinn Sturla Ásgeirsson, en hann lék með ÍR áður en hann hélt utan fyrir rúmlega einu ári. Páll Ólafsson, þjálfari Hauka, segir leikmenn sína vera óhrædda og staðráðna í því að standa sig vel. „Danskur hand- bolti er mjög hraður og skemmti- legur og ef við ætlum að standa okkur gegn Århus GF þarf ein- beiting leikmanna að vera í góðu lagi. Hún hefur ekki verið nógu góð í öllum leikjunum í DHL- deildinni en hefur þó batnað með hverjum leiknum. Ég finn fyrir mikilli tilhlökkun í hópnum og þetta á eftir að verða hörkuleik- ur.“ Kvennalið Hauka keppir tvo leiki gegn svissneska liðinu St. Otmar um helgina og fer fyrri leikurinn fram í dag á Ásvöllum. Guðbjörg Guðmannsdóttir, hornamaður í liði Hauka, vonast til þess að fá sem flesta áhorf- endur á leikina um helgina. „Við vitum nú ekki alveg hverju við eigum von á og því verðum við að vera einbeittar þegar í leikinn er komið. Við hlökkum mikið til þess að spila þessa leiki og að sjálfsögðu ætlum við okkur sigur í báðum leikjunum. Vonandi fjöl- menna stuðningsmenn okkar á leikinn.“ magnush@frettabladid.is Stór Evrópuhelgi hjá Haukum HARPA MELSTED Það mun mikið mæða á Hörpu Melsted í leikjunum gegn St. Otmar en hún hefur verið lykilmaður liðsins undanfarin ár. MEÐ PENNANN Á LOFTI Haukur Ingi t.h. skrifar hér undir nýja samn- inginn ásamt Eyjólfi Héðinssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Brynjar Ólafsson, fyrrum unglinga-landsliðsmaður og leikmaður Hauka sem lengi hefur búið í Bandaríkjunum, hefur verið ráðinn aðalþjálfari Marshalltown Junior College í Iowa í Bandaríkjunum, samkvæmt heimasíðu KKÍ. Brynjar er fyrsti íslenski körfuboltaþjálfarinn sem ráðinn er sem aðalþjálfari há- skólaliðs í Bandaríkjunum og því er um stóran áfanga að ræða fyrir Brynjar. Hann var áður aðstoðar- þjálfari við skólann en þegar aðal- þjálfarinn hætti var Brynjar ráðinn í hans stað. HSÍ fékk 4 milljónir króna úr af-rekssjóði ÍSÍ vegna þátttöku á EM í janúar 2006. Um sérstaka aukahlutun var að ræða. Fimleika- samband Íslands fékk úthlutað 300.000 kr. vegna þátttöku Rúnars Alexanderssonar og Viktors Krist- mannssonar á HM í fimleikum sem haldnir verða í Ástr- alíu í nóvember nk. Frjálsíþróttasam- band Íslands fékk 300.000 kr. vegna Silju Úlfarsdóttur frjálsíþróttakonu. Skíðasamband Ís- lands fær 300.000 kr. eingreiðslu til hvers skíðamanns sem nær lágmörkum á ÓL í Tórínó en nú þegar hafa fjórir náð slíkum lágmörkum. Úr sjóði ungra og efni- legra íþróttamanna var Blaksam- bandi Íslands veittur styrkur að upp- hæð 500.000 kr. vegna þátttöku yngri landsliða stúlkna og pilta á NM í blaki. Vésteini Hafsteinssyni var í vikunniafhentur silfurskjöldur í tilefni þess að hafa keppt á fernum Ólympíuleikjum. Vésteinn keppti á Ólympíuleikunum 1984 í Los Angel- es, 1988 í Seoul, 1992 í Barcelona og 1996 í Atlanta. Þá hefur Vésteinn einnig tekið þátt í leikunum í Sydn- ey árið 2000 sem flokksstjóri ís- lenska frjálsíþróttahópsins og í Aþ- enu árið 2004 sem kastþjálfari hjá danska frjálsíþróttasambandinu. Þann 10. apríl 2005 voru stofnuð Sam- tök íslenskra Ólympíufara og við það tækifæri var ákveðið að heiðra þá fjóra Íslendinga sem keppt hafa á fernum leikum. Það eru þeir Guðmundur Gíslason sund- maður, Bjarni Friðriksson júdómað- ur, Vésteinn Hafsteinsson frjáls- íþróttamaður og Kristinn Björnsson skíðamaður. Veðbankafyrirtækið Paddy Powerhefur ákveðið að greiða þeim sem veðjuðu á Chelsea sem Eng- landsmeistara strax það sem þeir eigi inni því fyrir- tækið heldur því fram að Chelsea sé búið að vinna titil- inn þegar aðeins sjö leikjum er lokið. Chelsea er með fullt hús stiga að loknum þessum sjö leikjum og hefur aðeins fengið á sig eitt mark. Talsmað- ur fyrirtækisins varði þessa ákvörðun í gær: „Við vit- um það og þeir sem veðjuðu vita það eflaust líka að keppninni um meistaratitilinn er lokið, það er al- veg eins gott að borga þetta út núna eins og að bíða eitthvað með það.“ ÚR SPORTINU Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, á síðasta ári: Hættir a› spila á Englandi FÓTBOLTI Roy Keane, fyrirliði Manchester United segist ekki eiga von á öðru en hann muni yfir- gefa félagið næsta sumar þegar samningur hans rennur út. „Ég yrði hissa ef Man. Utd. myndi bjóða mér nýjan samning. Það er mín tilfinning. Ef Man. Utd. myndi bjóða mér samning yrði það í kringum apríl og þá yrði það of seint. Ég vil hafa hlutina á hreinu í janúar,“ sagði Keane í viðtali við sjónvarpsstöð Man. Utd. í gær. Keane sagði að hann ætti afar erfitt með að hugsa sér að spila með öðru félagi í úrvalsdeildinni en Man. Utd. Hann segist geta hugsað sér að fara í þjálfun en þá sé best fyrir sig að fara eitthvað annað og takast á við ný verkefni hjá nýju félagi. - þg ROY KEANE Fyrirliðinn fer að ljúka keppni með liði Manchester United.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.