Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 59
LAUGARDAGUR 1. október 2005 43
önnur vaxtalaus vika
Á vaxtalausu tilboði: kr. 276.500
NEW YORK Þriggja sæta hægindasófi og tveir hægindastólar
(3+1+1) með ektaTHICK SHINY leðri.
Mikið úrval af
borðstofusettum
Við erum einnig með gott úrval af
borðstofuhúsgögnum og gjafavörum.
Sjón er sögu ríkari!
Haukur Dór. Málverkasýning stendur yfir
Verið velkomin að Dalvegi 18.
Gallery Húsgögn
Stofuborð.
Listagripur úr kopar og gleri.
Úrval af Chesterfield sófasettum, 3+1+1,
og hornsófum. Eru til í hvítu og rauðbrúnu.
sem stendur frá 1. til 7. október.
Þökkum frábærar viðtökur og því verður
Opið alla virka daga frá 11-18, laugardaga 11-16 og sunnudaga frá 13-16
Mikið úrval af sófasettum
á vaxalausum dögum
í allt að 6 mánuði.
Í kvöld kl. 20 Örfá sæti
7. sýn fös 7 okt Örfá sæti
8. sýn lau 8 okt Örfá sæti
9. sýn fös 14 okt Örfá sæti
10. sýn lau 15 okt
11. sýn fös 21 okt
12. sýn lau 22 okt
„Ég er óttaleg aríukerling,“ segir
Kristín R. Sigurðardóttir söng-
kona sem ætlar að syngja bæði ís-
lensk lög og óperuaríur á tónleik-
um í Kópavogskirkju í dag. Með
henni spilar Julian Hewlett á pí-
anó.
„Á þessum tónleikum ætla ég
samt ekki að vera með neinar
stórar flúraríur, heldur verður
þetta á ljúfu nótunum hjá okkur.
Þetta eru allt saman mjög falleg
lög,“ segir Kristín sem ætlar að
bjóða upp á lög eftir Emil
Thoroddsen, Pál Ísólfsson, Sig-
valda Kaldalóns og fleiri helstu
lagahöfunda þjóðarinnar. Af arí-
unum má nefna aríu Mímíar og
aríu Rúsölku, sem allir óperuunn-
endur taka fagnandi í hvert sinn
sem þær heyrast.
„En þetta eru fyrstu tónleik-
arnir mínir eftir að ég eignaðist
strákinn minn,“ segir Kristín, sem
ákvað að fara rólega af stað og
hafa þessa tónleika á hefðbundnu
nótunum. „Ég hef ekkert gert
voða mikið af því, meira verið í
antikaríum og barokkinu, enda
hentar það röddinni minni mjög
vel.“
Kristin kennir söng í Nýja
söngskólanum Hjartans mál og
þar er Julian einnig í hópi kenn-
ara. Tónleikar þeirra hefjast
klukkan 17 í Kópavogskirkju.
Syngur á ljúfu nótunum
KÓPAVOGSKIRKJA Kristín og Julian flytja aríur og íslensk sönglög á tónleikum í dag.
Bókafélagið Uglahefur gefið út
bókina Kommún-
isminn eftir banda-
ríska sagnfræðing-
inn Richard Pipes.
Höfundurinn gerir
stuttlega grein fyrir
fræðilegum grund-
velli kommúnism-
ans og rekur síðan sögu hans í
Rússlandi og annars staðar.
Mál og menninghefur sent frá
sér bókina Ævintýri
á meðan eftir
Roddy Doyle í þýð-
ingu Hjörleifs Hjart-
arssonar. Þetta er
þriðja barnasaga
verðlaunahöfundar-
ins sem kemur út í
íslenskum búningi. Frásögnin er
sprenghlægileg og full af óvæntum
uppákomum.
BókaforlagiðBjartur hefur
gefið út Barndóm
eftir suður-afríska
rithöfundinn J.M.
Coetzee. Þýðandi er
Rúnar Helgi Vignis-
son. Í þessari róm-
uðu sjálfsævisögu
vitjar Coetze upp-
vaxtarára sinna í Suður-Afríku um
og eftir 1950.
BókaforlagiðBjartur hefur
gefið út í kilju sög-
una Manntafl eftir
Stefan Zweig í ís-
lenskri þýðingu
Þórarins Stefáns-
sonar. Nýlega frum-
sýndi Borgarleik-
húsið leikrit byggt á
sögunni.
BókaforlagiðBjartur hefur
gefið út skáldsög-
una Í nafni kær-
leikans eftir James
Meek í íslenskri
þýðingu Árna Ósk-
arssonar. Bókin er
þriðja skáldsaga
Meeks og hefur
sagan vakið mikla athygli og sterk
viðbrögð. Meek var meðal gesta á
Bókmenntahátíð í Reykjavík.
NÝJAR BÆKUR