Fréttablaðið - 01.10.2005, Síða 62
STONES Úr línu Comme Des Garcons
þegar merki hljómsveitarinnar Rolling
Stones var notað sem innblástur.
ÁMýrargötu leynist nú sannkölluð skæruliðabúð eða Guerilla Store en í henni fást föt fráfatamerkinu Comme Des Garcons. Búðirnar hafa sprottið upp um allan heim og eruýmsar reglur sem fylgja því að reka slíka búð. Meðal annars mega rekstrarað-
ilar búðarinnar ekki auglýsa hana og hún má einungis vera rekin í eitt ár og þá skal
hún annað hvort hverfa eða færa sig um set. Fjórar íslenskar stúlkur höfðu sam-
band við ráðamenn Guerilla-búðanna hjá Comme Des Garcons og fengu leyfi
til að opna búð hérlendis. Í búðinni fást ýmsar flíkur úr línum Comme Des
Garcons og þar á meðal hönnun Junya Watanabe. Einnig leynast þarna
meðal annars flíkur og skór frá Fred Perry eftir samstarf þessara tveggja
fyrirtækja. Af mörgu er því að taka í íslensku skæruliðabúðinni og ættu
allir að leggja leið sína í þessa skemmtilegu og einstöku búð þar sem
stelpurnar taka vingjarnlega á móti öllum sem leggja leið sína þangað.
Rei Kawakubo er konan á bakvið Comme Des
Garcons. Hún er algjörlega ólærð í fata-
hönnun en hefur stundað nám í
myndlist og bókmenntum.
Comme Des Garcons leggur
áherslu á svokallaða „anti
tísku“ og „strúktúr“ eða bygg-
ingu fatanna frekar en yfirborð
og efni. Hönnunin minnir að mörgu leyti á
arkitektúr og stundum eru flíkurnar líkari
skúlptúrum en fötum. Oft vantar aðra ermina
á þær, vasarnir eru á hvolfi, skálmar rosa-
lega síðar eða þær eru einfaldlega á röng-
unni. Ekki beinlínis hefðbundin tíska en afar
hressandi. Kawakubo uppgötvaði hönnuðinn
Junya Watanabe sem nú er orðinn þekktur í
tískuheiminum. Hann gekk til liðs við
Comme Des Garcons-fyrirtækið um leið og hann út-
skrifaðist úr háskóla. Þremur árum seinna hóf hann að
hanna fyrir Tricot sem er undirlína Comme Des Garcons
og heitir núna Comme Comme. Guerilla Store Iceland
er opin alla virka daga frá tólf til sjö, á laugardögum
frá tíu til fjögur en lokuð á sunnudögum.
hilda@frettabladid.is
> falleg áferð ...
Nýi farðinn frá
Guerlain framkallar
fallega og frísklega
áferð.
46 1. október 2005 LAUGARDAGUR
Skæruli›ar vi› höfnina
Stundum ganga hlutirnir ekki
eins og í sögu
Þrátt fyrir að háma í mig fullt af vítamínum þessa dagana sem eiga
að bæta minnið og örva alla líkamsstarfsemi er gleymskan alveg að
fara með mig. Þegar ég fer út á morgnana er alveg bókað að ég
gleymi einhverju mikilvægu. Í vikunni fór ég í sund eftir vinnu. Ég
kom reyndar við heima til að sækja sundbolinn minn. Þetta leit út
fyrir að verða notaleg kvöldferð í Vesturbæjarlaugina, eða alveg
þangað til ég fattaði að ég var bara með sundtoppinn minn, ekki
buxurnar. Athyglisbresturinn hefur því verið í hámarki. Í stað þess
að pirrast ógurlega og fara í fússi út úr klefanum, skokkaði ég ofur-
fallega niður og fékk leigðan einn ljótasta sundbol veraldar. Ég lét
það ekki trufla mig, jafnvel þótt vinkona mín liti mun betur út en ég.
Stundum verður maður að taka vellíðan fram yfir glæsilegt útlit.
Þegar svona gerist, allt gengur á afturfótunum hjá manni, er bjart-
sýni það eina sem borgar sig. Þegar ég var í Ameríku um daginn
kom ég auga á mjög falleg stígvél í Viktoríustíl. Þau voru svört,
reimuð upp að hnjám með fallegum hæl. Áður en ég mátaði þau var
ég byrjuð að fantasera í hverju ég gæti verið við þau og hvað ég
yrði mikil klassakona í vetur. Ég sá þetta alveg fyrir mér. Stemning-
in breyttist örlítið þegar búðakonan kom með kassann og byrjað að
losa reimarnar. Eftir nokkrar tilraunir náði ég að koma mér í stíg-
vélin en þá átti ég eftir að reima þau á
mig. Það tók sirka átta mínútur að
reima hvorn skó og þegar ég var kom-
in í bæði stígvélin var ég dauðuppgef-
in. Ég áttaði mig á því að ég myndi
aldrei hafa tíma fyrir þessa vitleysu.
Þegar ég leit í spegilinn brá mér hins
vegar mest. Ég var hræðileg í þessum
skóm. Ég áttaði mig á því að reimar
mjókka ekki beint legginn og þegar
maður nær ekki 170 cm á hæð er voð-
inn vís. Svona stígvél eru kannski að-
eins flottari á háum og leggjalöngum.
Þó þetta væru vonbrigði vissi ég í
hjarta mér að heima fyrir myndi þetta
gera stormandi lukku, maðurinn sem
borgar vísareikninginn myndi gleðj-
ast óendanlega.
MÓÐUR VIKUNNAR
> MARTA SMARTA FER YFIR MÁLIN
SMEKKURINN JÓN ATLI HELGASON HÁRGREIÐSLUMAÐUR Á GEL
Veikastur fyrir hressleika
Spáir þú mikið í tískuna? Já, óneit-
anlega geri ég það.
Hvernig myndirðu lýsa stílnum þín-
um? Ég klæði mig eins og mér líður
hverju sinni.
Uppáhaldshönnuðir eða fatamerki?
Ég verð að segja að Aftur er uppá-
haldsfatamerkið mitt.
Flottustu litirnir? Svartur, hvítur, blár
og rauður.
Hvað finnst þér flottast í tískunni
núna? Mér finnst bara flottast að vera
graður og að þora.
Hverju ertu veikastur fyrir? Ég er
veikastur fyrir hressleika.
Hvaða flík keyptir þú þér síðast? Síð-
ast keypti ég mér hatt í Spútnik.
Hvað ætlar þú að kaupa fyrir vetur-
inn? Ég ætla að kaupa mér ógeðslega
dýra og flotta úlpu. Eða hlýjan jakka,
kannski Comme Des Garcons.
Uppáhaldsverslun? Það er „second
hand design“-búð sem ég fór í þegar
ég var í Moskvu.
Hvað eyðir þú miklum peningum í
föt á mánuði? Það er mjög misjafnt.
Hvaða flíkur gætir þú ekki verið án?
Ég gæti ekki verið án allra þröngu
gallabuxnanna minna og alls ekki án
Aftur hettupeysunnar minnar.
Uppáhaldsflík? Roberto Cavalli bux-
urnar mínar.
Hvert myndir þú fara í verslunar-
ferð? Ég myndi aldrei fara í verslunar-
ferð, myndi bara versla þar sem ég
væri.
Ljótasta flík sem þú hefur keypt þér?
Buffalo skór.
SÆT PEYSA
Þessi peysa var
gerð fyrir Jap-
ansmarkað og
er úr Tricot-lín-
unni.
KÖFLÓTTAR
Gamaldags
köflótt munst-
ur í nýtísku-
legum litum.
BUXNADRAGT Falleg og frumleg
útgáfa af kvenlegri buxnadragt.
TRICOT Þetta köflótta
munstur er í miklu uppá-
haldi hjá Rei Kawakubo
en skyrtan er einnig úr
Tricot-línunni.
MYNSTRAÐ
SCHIFFON
Fallegur bol-
ur úr sjiffoni
úr línu
Comme Des
Garcons.
JAKKAFÖT Úr smiðju Comme
Des Garcons.
FRED PERRY Þessir skór eru úr
línu Freds Perry sem á sér ófáa
aðdáendur hér á landi.
ÓVENJULEGUR
JAKKI Flottur jakki
sem kemur á óvart að
neðan. Eftir hönnuðinn
Junya Watanabe.
SKÚLPTÚR?
Þessi jakki minnir
frekar á skúlptúr
en flík og er ekta
hátískuvara.
COMME DES
GARCONS
Mismunandi
efnum bland-
að saman.
POSTULÍN Svartur kjóll við
beinhvítt brúðarslör.
Gulli Helga
Laugardagsmorgna 9-13