Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 63
LAUGARDAGUR 1. október 2005 47
Sjampó í föstu
formi
Þessi litli kubbur sem lítur helst
út eins og einhvers konar ostur er
í raun sjampó. Lush framleiðir
sjampó meðal annars í föstu formi
og eru þau afar vinsæl. Þetta sér-
staka sjampó heitir Trichomania
og ilmar af kókoshnetum. Sjampó-
ið er sérlega nærandi fyrir hárið
og er ætlað fyrir þurrt hár. Lush
sjampóin í föstu formi duga afar
lengi og skemmast ekki. Þegar
sjampóin eru notuð er nóg að láta
kubbinn leika á milli handanna til
að búa til froðu, skella henni svo í
hárið og útkoman er einstök.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
Franskur koss
Franski kossinn er ein af fram-
leiðsluvörum Lush sem hefur það
markmið að lífga upp á baðferðir
viðskiptavina. Þegar franska
kossinum er bætt í baðið stígur
upp lavender ilmur og vatnið
freyðir, húðin verður mýkri og
baðherbergið ilmar lengi á eftir.
Það eina sem vantar þá upp á er
róandi tónlist á fóninn og slökunin
verður algjör.
Max Mara sýndi línu sína fyrir sumarið 2006 á fimmtudaginn og ein-
kenndist línan af hressilegum litum, sólbrúnum fyrirsætum og framúr-
stefnilegum sniðum. Hönnuðir Max Mara sóttu innblástur meðal ann-
ars í röndótt sjóliðaföt, stór snið, karlmannlegan stíl og avant garde ní-
unda áratugarins. Litirnir voru dempaðir brúnir og gráir á móti skær-
um litum eins og kóngabláum, skærum laxableikum lit, grasgrænum og
gulum. Lítið var um munstur en einstaka blómamunstur trítlaði yfir
suma kjólana í skærum litum sem kom skemmtilega út á daufum lita-
tónum.
Sumar af klassískum flíkum Max Mara létu einnig sjá sig í nýju lín-
unni og þar á meðal flíkur í safarí-stíl, rykfrakkar og víðar buxur með
rykktu mitti sem minna á pappírs-
poka. Inn á milli voru svo flíkur
sem sjást sjaldnar í hönnun Max
Mara og þar á meðal litríkir sjiffon-
kjólar, stórar peysur og kjólar með
stórum hettum.
Hressandi hönnun
SUMAR 2006 Max Mara-herinn sýnir nýj-
ustu hönnunina.
RYKFRAKKI Daufur liturinn í frakkanum
tónar fallega á móti kóngabláa litnum.
FYRIR STRÖNDINA Falleg-
ur bleikur bolur við afar
klæðilegar röndóttar bikini-
buxur.
LÉTTIR KJÓLAR Í línunni
mátti meðal annars sjá fal-
lega sumarkjóla eins og
þessa í öllum litum.
KJÓLL MEÐ HETTU Séð
aftan á sérstakan kjól í fal-
lega gráum lit.