Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 64

Fréttablaðið - 01.10.2005, Side 64
1. október 2005 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is> fj ör ið .. . Alfljó›lega kvik- myndahátí›in sett Þrátt fyrir vonskuveður létu kvikmyndaunnendur það ekkert á sig fá heldur flykkt- ust í Regnbogann á fimmtu- dagskvöldið. Þar fór fram setningarathöfn Alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinnar í Reykjavík. Margir urðu frá að hverfa sem sýnir aukinn áhuga Íslendinga á sjálf- stæðri kvikmyndagerð en það var Geir H. Haarde utanríkisráðherra sem setti hátíðina formlega. Það var síðan uppselt á opnunarmyndina sem var Epli Adams eftir Anders Thomas Jensen. Hrönn Marínósdóttir, framkvæmdastjóri hátíðarinnar var feykilega ánægð með viðtök- urnar en að lokinni sýningu var gestum boðið í Nýlistasafnið þar sem þeir gátu dreypt á léttum veitingum að hætti hússins. SAMPER-FJÖLSKYLDAN MÆTT Þau Kristjana, Mireya, Rebekka, Baltasar Darri og nafni hans Baltasar Samper mættu eftir velheppnaða opnun. LEIKSTJÓRINN OG LEIKARINN Þau Þórhildur Þorleifsdóttir og Þór Tulinius létu ekki sitt eftir liggja og mættu. MÁLIN RÆDD Þeir Ævar Kjartansson og Arnar Jónsson voru mættir og höfðu vafa- laust margt að ræða um. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /F RÉ TT AB LA Ð IÐ / A N TO N B R IN K Matartímaritið Gestgjafinn opn- aði heimasíðu í vikunni. Af því til- efni hélt ritstjórn Gestgjafans huggulegt teiti í Ásmundarsafni. Herra Ólafur Ragnar Grímsson heiðraði samkomuna með nær- veru sinni en hann opnaði heima- síðuna formlega. Heimasíðan mun gagnast áskrifendum Gestgjafans vel enda hafa þeir aðgang að yfir 5.000 uppskriftum og öðrum spennandi hlutum sem allir mat- gæðingar ættu að geta nýtt sér. Björn Thoroddsen, Hans Kwakk- ernaat og Gunnar Hrafnsson spil- uðu fallega tónlist. Þótt ritstjórn Gestgjafans sé sérlega lunkin við að matreiða var starfsfólk Skút- unnar í Hafnarfirði fengið til að útbúa réttina. Lambakjöt var þem- að og var það matreitt í ýmsum út- gáfum. Einnig var boðið upp á sér- rétti fyrir grænmetisætur. Nanna Rögnvaldardóttir, matargúrú og ritstjóri vefsins, segir að teitið hafi heppnast gríðarlega vel. Matarmiki› „gourmet“-teiti FJÖLSKYLDUSTEMNING Hjalti Nönnuson sem jafnan gengur undir nafninu efnafræði- stúdentinn mætti í Gestgjafaboðið ásamt Þorbjörgu Ágústsdóttur og systursyni sínum, Úlfi Árnasyni. INNANHÚSSPÆJUR Elín Þorgeirsdóttir blaðamaður og Ólöf Jakobína Ernudóttir, ritstjóri Húsa og híbýla, skörtuðu sínu feg- ursta. Í GÓÐUM GÍR Stefán Hilmarsson endurskoð- andi; Rósa Guðbjarts- dóttir blaðamaður, Reynir Traustason rit- stjóri og Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Gutenberg, fylgdust spennt með þegar heimasíðan var opnuð. GRÆNAR OG BROSMILDAR Gullveig Sæmundsdottir, ritstjóri Nýs Lífs, og Hjördís Gísladóttir, á Grænum kosti, kynntu sér nýju heimasíðuna. FLOTT TEITI Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gestgjafans, er hér ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni sem opnaði heimasíðuna www.gestgjafinn.is. BROSMILD Hreinn Hreinsson ljósmyndari ljómaði af gleði í Gestgjafateitinu. Hér er hann ásamt Marentzu Poulsen veitingakonu og Albert Eiríkssyni sælkera. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H EI Ð A Or›in flreytt á athyglinni Tara Reid er ósköp leið þessa dag- ana því hætt hefur verið fram- leiðslu á sjónvarpsþáttum hennar Taradise. Tara hefur verið það langt niðri undanfarið að blaða- menn sem hafa tekið viðtal við hana segja að það sjáist á henni hversu niðurdregin hún sé og í sumum tilvikum hafi hún svarað spurningum grátklökk. „Hvað ætla fjölmiðlar að leggja mig lengi í ein- elti? Það eru komnar nýjar slæmar stelpur, farið og angrið þær!“ sagði leikkonan súra sem hefur rek- ið umboðsmann sinn því henni finnst hann hafa ýtt undir slæma ímynd hennar. TARA REID Hún er orðin leið á fjölmiðla- athyglinni og þráir að fá að djamma í friði.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.