Fréttablaðið - 01.10.2005, Page 67
Ítalska tískuhönnuð-inum Valentino
Garavani ofbýður
mjög hvernig
leikkonurnar Julia
Roberts og Cameron
Diaz klæða sig þegar
þær eru ekki að
ganga eftir rauða dreglinum. Val-
entino segir að þær klæði sig eins
og heimilslausar manneskjur dags-
daglega og hugsi engan veginn
nógu vel um útlitið.
Leikarinn Steve Buscemi verðurheiðraður á hinni árlegu Wood-
stock-kvikmyndahátíð í New York
um helgina. Buscemi verður afhent
Maverick-verðlaunin fyrir sköpunar-
gleði sína og sjálfstæðan
hugsunarhátt þegar kem-
ur að kvikmyndaleik- og
gerð. Á hátíðinni verður
frumsýnd myndin
Lonesome Jim sem er
einmitt leikstýrt af
Buscemi.
Söngkonan Sheryl Crow og hjól-reiðakappinn Lance Armstrong
ætla að ganga upp að altarinu í
Kaliforníu næsta haust. Parið trúlof-
aði sig í byrjun síðasta mánaðar og
vill greinilega ekki bíða of lengi með
að gifta sig. Athöfnin á
að fara fram í Santa
Barbara og mun
hönnuðurinn Ralph
Lauren sjá um að útlit
veislunnar verði upp á
það allra besta.
Þessi kauði hefur haldið í höndina á
Nick Cave allan hans tónlistarferil.
Hann var með Cave í Birthday Par-
ty og er foringi The Bad Seeds sem
hefur leikið undir á öllum sólóskíf-
um myrkrahöfðingjans. Mick Har-
vey virðist ekki hafa fæðst með
sömu tilhneigingu og félagi sinn til
að semja lög, því sólóferill hans
hefur að mestu verið tileinkaður
tökulögum. Fyrst gaf hann út tvær
plötur þar sem hann flutti og söng
lög Serge Gainsbourg í enskri þýð-
ingu. Í þetta skiptið flytur hann lög
eftir hina og þessa, þar á meðal eitt
eftir félaga sinn Cave og Tim
Buckley. Sjálfur á hann tvö lög á
plötunni.
Mick Harvey er stórkostlegur
útsetjari. Hann hefur lengi verið
með puttana í útsetningum Cave og
því kemur líklegast ekkert á óvart
að þessi plata hér skuli vera úr
sama hljóðheim og plötur meistara
Cave. Harvey er þó fjarri því að
hafa jafn magnaða söngrödd og fé-
lagi sinn. Hans er ögn hærri, og al-
veg sérkennilega venjuleg. Get
ekki einu sinni lofað ykkur að ég
myndi þekkja hana strax aftur.
Harvey er greinilega undir öllu
meiri áhrifum frá bandarískri
kántrítónlist. Hann fer sérstaklega
vel með lagið Hank Williams Said it
Best eftir Guy Clark. Frábært lag
með mögnuðum texta.
Það var svo ágætis lífsreynsla
að renna þessari plötu í gegn en ég
get ekki ímyndað mér að neinir
aðrir en hörðustu aðdáendur Cave
geti haft gaman að þessu. Það hlýt-
ur líka að teljast harla ólíklegt að
neinir aðrir en þeir eigi eftir að
gefa sér tíma fyrir Mick Harvey.
Allir aðrir hafa líklegast enga hug-
mynd um hver þessi snillingur er.
Birgir Örn Steinarsson
Hægri hönd Cave syngur líka
MICK HARVEY:
ONE MAN’S TREASURE
NIÐURSTAÐA: Nýjasta sólóplata Micks Harvey
virðist hafa verið gerð fyrst og fremst til að
skemmta honum sjálfum. Eingöngu fyrir hörð-
ustu aðdáendur Nicks Cave, aðrir eiga líklegast
ekkert eftir að ná tengingu.
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN