Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 01.10.2005, Blaðsíða 70
Sixtís kápur Stíll sjöunda áratugarins hefur sjaldan veriðvinsælli og stuttar litríkar ullarkápur með stórum hnöppum seljast eins og heitar lummur. Það er í góðu lagi að splæsa í eina hlýja sixtís kápu í vetur og vera hrikalega smart í kuldanum. Há stígvél við takk. Litlir bílar Það er þægilegt að keyraþá, auðvelt að leggja þeim, þeir eru fljótari að hitna því það er minna rými sem þarf að hita upp og þeir eru litlir og sætir. Þó þeir séu svona litlir þurfa þeir ekkert endilega að beygl- ast eins og áldósir í árekstrum því margir hverjir eru afar öryggir. Áfram litlu bílarnir! Strákar í þröngum gallabuxum Elsku strákar, þröngagallabuxnatískan er ekki bara fyrir stelpur. Farið nú út í búð og fáið ykkur þröngar gallabuxur, helst dökkar og jafnvel svartar. Þetta tryggir óskaplega töff rokk-lúkk. Converse-skór við og lúkkið er fullkomnað. Skósíðir frakkar Nei, þetta er ekki málið. Ekki nema við-komandi sé að leika í nýrri Matrix-mynd ásamt Keanu og félögum. Það er óþolandi hallærislegt þegar skósíðir frakkar flaksast um í vindinum og sá sem klæðist þeim lítur út fyrir að ætla að taka sig til flugs og leika Batman. Frakkar, kápur og pelsar eiga ekki að ná niður að skóm. Stórir pallbílar Svona pallbílarseljast víst á hálfrar mínútu fresti. En hræðilega ömurleg staðreynd. Eins og þessi stóru flikki eru með endemum ljót og hallærisleg. Svona bílar taka óþolandi mikið pláss á bílastæðum og eru bara alltaf fyrir! Oftast er líka ekkert sjáanlegt á pöllunum á þessum bílum og því ekki annað hægt en að velta fyrir sér notagildinu í bílunum. Útvíðar gallabuxur Nei takk. Útvíðar buxur eru meðþví hallærislegasta nú til dags þó svo að margir ætli ekki að láta sér segjast og sprangi ennþá um með skálmarnar flaxandi um. Beint í ruslið með þetta, eða geymsluna. Oj bjakk. INNI ÚTI 54 1. október 2005 LAUGARDAGUR Eins og áhorfendur morgunsjón- varpsins Ísland í bítið fengu að sjá var Inga Lind Karlsdóttir kvödd með virktum í gærmorgun. Sam- starfsfélagi hennar, Heimir Karls- son, hafði bakað köku handa henni og hljómsveitin Í svörtum fötum mætti til að spila kveðjulagið. Það mátti sjá að Inga Lind hefur á sín- um tíma eignast stóran aðdáenda- hóp og vafalaust margir sem koma til með að sakna hennar á morgn- ana. Inga Lind var úti að borða þegar Fréttablaðið náði í hana. Hún var öll hin dularfyllsta og vildi ekkert gefa upp hvað væri á döfinni. „Það kemur í ljós. Ég segi ekkert hvað það verður en get lofað því að það er skemmtilegt. Eitthvað sem áhorfendur Stöðvar 2 geta hlakkað til,“ sagði hún en málin myndu skýrast í næstu viku. Heimir og Inga Lind náðu vel saman á skjánum og aðspurð hvort hann myndi ekki sakna hennar stóð ekki á svarinu. „Hann er þegar byrjaður að sakna mín. Hann er lít- ill í sér,“ sagði hún og hló. Inga vissi þó ekki hver kæmi í hennar stað en Gulli Helga mun væntan- lega fylla skarðið um sinn. Það mun síðan skýrast á næstu vikum hver verður næsti morgunhani Stöðvar 2. Inga Lind hætt sem morgunhani INGA LIND Er hætt í morgunsjónvarpi Stöðvar 2 og heldur til annarra starfa á stöðinni. Hvað það verður ætti að skýrast í næstu viku. FRÉTTIR AF FÓLKI ...fær hljómsveitin Stuðmenn fyrir að komast í forval fyrir Óskars- verðlaunin með kvikmyndina Í takt við tímann. HRÓSIÐ 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Lárétt: 1 næðingur 6 margsinnis 7 gelt 8 vörumerki 9 arða 10 á kind 12 tækifæri 14 tangi 15 tveir eins 16 klukka 17 suss 18 frumeind. Lóðrétt: 1 spil 2 þakbrún 3 í röð 4 grunlaus 5 þjófnaður 9 óskipt 11 fram- kvæmt 13 skvetta 14 nudda 17 kringum. Lausn LÁRÉTT:1gustur, 6oft,7gá,8ss,9ögn, 10ull,12lag,14nes,15uu,16úr, 17uss,18atóm. LÓÐRÉTT:1gosi,2ufs,3st,4ugglaus, 5rán,9öll,11gert, 13gusa,14núa, 17um. RUTH REGINALDS: FLUTT TIL BANDARÍKJANNA: Gifting fyrirhuguð eftir jól Söngkonan Ruth Reginalds er um þessar mundir stödd í Kali- forníu í Bandaríkjunum en þang- að fluttist hún búferlum fyrir fjórum mánuðum. „Eftir bókina og þetta „extreme makeover“ sem stóð yfir í sex mánuði vildi ég bara fá smá pásu. Allir eiga sitt líf,“ segir Ruth um ástæðuna fyrir flutningunum. Fyrir um það bil tveimur mán- uðum kynntist hún þar manni að nafni Joseph Moore. Hefur hann þegar beðið hana um að giftast sér og ætla þau að ganga upp að altarinu fljótlega eftir næstu jól. „Ég er ekki ein af þeim sem vilja vera lausar og liðugar,“ segir Ruth, sem hljómaði mjög ham- ingjusöm í spjalli sínu við blaða- mann Fréttablaðsins. „Það sem ég þarf mest á að halda núna er að stofna fjölskyldu og byrja nýtt líf. Ég hlakka mikið til að koma heim og kynna Joe fyrir Íslendingum.“ Ruth breyttist í eldri borgara eins og hún segir sjálf, þann 1. september síðastliðinn þegar hún varð fertug. Unnustinn Moore varð líka fertugur 27. ágúst og því eru aðeins nokkrir dagar á milli þeirra skötuhjúa. Þessa dagana eru þau að gera upp hús sem þau vonast til að geta keypt þegar fram líða stundir. Moore er afar handlag- inn maður enda vinnur hann sem verktaki við að lagfæra hús. Hefur Ruth reynt að veita honum hjálparhönd þegar tækifæri hafa gefist til. Ruth nýtur lífsins í sólinni í Kaliforníu og nýverið fór hún til að mynda á tónleika með einum af uppáhaldstónlistarmönnunum sínum, Jonnie Lang. Á næstunni mun hljómsveitin Sigur Rós síð- an halda tónleika í nágrenni Ruthar og að sjálfsögðu ætlar þessi kunna íslenska söngkona að skella sér. Vill hún ólm kynna sveitina fyrir Moore og fleiri bandarískum vinum sínum sem virðast hvorki kannast við Sigur Rós né Björk. freyr@frettabladid.is ÍEfstaleitinu hefur nýi út-varpsstjórinn Páll Magnússon ekki aflað sér vinsælda hjá öllum. Heimildir blaðsins herma að það hafi ver- ið fyrir til- stillan Páls að Þórhallur Gunnarsson hafi gengið til liðs viðRÚV með þeim formerkjum að ritstýra nýja magasín- þættinum Torgið. Hefur ráðn- ingin mælst illa fyrir hjá Kastljóssmanninum Krist- jáni Kristjánssyni sem hafði talið sig eiga stöðuna vísa eftir að Logi Berg- mann Eiðsson yfirgaf stofnunina. Jónína Ben er Ingvari í Fazmo-klíkunni hugleikin í nýjasta pistli sínum á bloggsíðunni www.fazmo.is. Hann vandar henni ekki kveðjurnar og kallar hana öll- um illum nöfnum. Ingvari er ger- samlega óskiljanlegt hvernig kona sem er yfir kjörþyngd getur kallað sig íþróttafrömuð. Á heimsíðunni segir orðrétt: „Jónína Benediktsdóttir hefur reynt að láta líta á sig sem einhvern íþróttafrömuð og athafnakonu þó svo að hún sé vel yfir kjörþyngd og búinn að keyra fyrirtækið sitt í gjald- þrot á no time. Hún er samt án tví- mæla ein umtalaðasta kona lands- ins um þessar mundir. Hún er ekk- ert að reyna að fela það ef hún lumar á einhverjum skít um aðra og lætur það hiklaust flakka í fjölmiðla enda orðspor og mannorð hennar komið svo langt fyrir neðan allt sem slæmt getur talist að hún hefur kannski engu að tapa þetta grey.“ Þrátt fyrir ummmælin er augljóst að Ingvar vorkennir henni. Það er því spurn- ing hvort þau geti ekki samnýtt krafta sína í framtíðinni og gert eitthvað sniðugt saman. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R RUTH REGINALDS Söngkonan þekkta fluttist til Bandaríkjanna fyrir fjórum mánuðum og ætlar að gifta sig á næstunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.