Fréttablaðið - 25.10.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
VEÐRIÐ Í DAG
ÞRIÐJUDAGUR
25. október 2005 – 288. tölublað – 5. árgangur Sími: 550 5000
HÚS OG HEIMILI
GUÐBJÖRG ÞORVARÐARDÓTTIR
Í húsi húsameistarans
SÉRBLAÐ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
KARL ÁGÚST ÚLFSSON
Hjólar sér til
heilsubótar
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Frjáls íbúðalán
vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Í húsi húsameistarans
BLS. 2 Glæsilegt hús á Skóla-
vörðustígnum
Svart og hvítt
BLS. 4 Tískan í sófum
Röð og regla
BLS. 6 Lausnir fyrir anddyri
Smart hirslur
BLS. 8 Komið skipulagi á skóna
Teppin sterk inn
BLS. 10 Gólfefni
Stílhreint og fallegt
heimili
BLS. 12 Innlit í Kópavoginn
Skemmtileg og
spennandi
BLS. 14 Barnahúsgögn
Herm þú mér
BLS. 15 Speglar
Nýtt líf
BLS. 16 Húsgögnin bólstruð
Líflegir nytjahlutir
BLS. 17 Alessi
Segðu það með
blómum
BLS. 18 Veggfóður
EFNISYFIRLIT
hús og heimili
[ SÉRBLAÐ UM HÚSBÚNAÐ, HÚSGÖGN, GÓLF OG VEGGI – ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 2005 ]
ÓREIÐAN TAMIN
Smart skóhirslur SJÁ BLS. 8
LJÓSMYNDIR ÚT UM ALLT
Hugmyndaríkt mynstur SJÁ BLS. 4
01 Hús og heimili lesið 24.10.2005 14:48 Page 3
Elliheimilin næsta skrefið
Dúettinn Steintrygg-
ur er á leiðinni í
Evrópureisu
með Óla
ósýnilega
sem er
tölva.
FÓLK 38
Drungalegur hversdagsleiki
Leikskáldið Jón
Atli Jónasson
segir frá köldum
veruleika ein-
stæðrar móður
í sinni fyrstu
skáldsögu.
MENNING 24
HEILBRIGÐISMÁL „Það er einhug-
ur meðal hjartasérfræðinga um
að segja upp samningi við Trygg-
ingastofnun ríkisins við óbreyttar
aðstæður,“ segir Axel Sigurðsson,
sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt
starfandi hjartalækna.
Á fundi hjartasérfræðinga fyrir
helgi var meðal annars rædd sú
staða sem komin er upp um ein-
ingakvóta sem samningur TR og
sérfræðilækna kveður á um. Þykir
sýnt að læknisverk sérfræðilækna
fari fram úr samningsbundnum
einingafjölda sem nemur 200 millj-
ónum á þessu ári.
„Að óbreyttu er staðan sú að við
fáum ekkert greitt það sem eftir
er ársins,“ segir Axel. „Við getum
ekki horft á það gerast aftur á
næsta ári. En samningurinn í heild
er til umræðu hjá samninganefnd-
um Læknafélags Reykjavíkur og
Tryggingastofnunar.“
Axel segir að meðan læknar
séu á samningnum megi þeir ekki
rukka sjúklinginn um meira en
hlut hans. Hlutur Tryggingastofn-
unar fæst ekki greiddur ef komið
er yfir samningsbundinn eininga-
fjölda. Ef læknar segja upp samn-
ingi þurfa þeir að gera það hver
fyrir sig. Þá þurfa þeir að búa til
eigin taxta, en að því er ekki farið
að hugsa enn sem komið er. Vænt-
anlega verði notaður sami taxti og
nú en sjúklingurinn verður þá að
greiða allan kostnaðinn við lækn-
ishjálpina.
„Okkur finnst afar vondur kost-
ur að slíta þessum samningi,“ segir
Axel. „En það er mikil samstaða
meðal hjartasérfræðinga um að
gera það ef ekkert breytist. En það
er vilji beggja megin við borðið að
finna einhverja lausn. Samning-
urinn hefur virkað vel þegar hann
helst innan ramma. Þetta má ekki
dragast fram yfir næstu mánaða-
mót, því menn geta ekki verið í
þessari óvissu mikið lengur. Komi
til þess að samningnum verði sagt
upp tekur það ekki gildi fyrr en að
þremur mánuðum liðnum.“ - jss
Hjartasérfræðingar íhuga aðgerðir við óbreyttar aðstæður:
Hyggjast segja upp samningi
við Tryggingastofnun ríkisins
Af rápi í borgarstjórn
Valgerður Bjarnadóttir játar fúslega í
pistli sínum dag að það er ýmislegt sem
hún ekki skilur. Eitt af því er rápið sem
virðist vera á borgarstjórnarfundum, ef
marka má fundargerðir af þeim fundum.
Í DAG 16
ÁFRAM SVIPAÐ BJARTVIÐRI
syðra en skýjað og dálítil él með norð-
an- og austanverðu landinu. Hiti víðast
við frostmark. VEÐUR 4
KVENNAFRÍDAGUR „Þetta er gjör-
samlega stórkostlegt og ég er
hálfpartinn orðlaus,“ segir Edda
Björgvinsdóttir, fundarstýra
á Ingólfstorgi. „Það var aldrei
neinn vafi í mínum huga að konur
og þeirra stuðningsaðilar myndu
fjölmenna hingað í dag. En ég
bjóst samt ekki við þessum mikla
fjölda,“ segir Edda Björgvindótt-
ir fundarstýra útifundar í tilefni
kvennafrídagsins í gær.
Að minnsta kosti 45 þúsund
manns, meirihlutinn konur, söfn-
uðust saman í miðborg Reykjavík-
ur í gær í tilefni kvennafrídagsins.
Þrjátíu ár voru liðin í gær frá því
að konur komu saman í miðborg-
inni á útifundi sem vakti eftirtekt
út fyrir landsteinana.
Fundurinn hófst með því að fólk
safnaðist saman á Skólavörðuholti
og gekk áleiðis niður á Ingólfstorg
þar sem formleg fundardagskrá
hófst. Edda Björgvinsdóttir fund-
arstýra sagði í setningarræðu að
á sínum tíma hefði hún talið að
stutt væri í það að markmið kven-
réttindabaráttunnar næðu fram
að ganga. Hún hefði jafnvel hald-
ið að konur myndu taka fram úr
körlum. Því sagði hún að það væri
á sinn hátt sorglegt að þurfa að
halda þennan fund aftur, þrjátíu
árum seinna.
Katrín Anna Guðmundsdóttir,
fulltrúi kvennahreyfingarinnar
tók til máls og sagði að hægt yrði að
útrýma launamisrétti þegar í stað
með því að afnema launaleynd.
Einnig tók til máls Amal Tam-
imi og talaði fyrir hönd Samtaka
kvenna af erlendum uppruna á
Íslandi. Hún sagði að konur af
erlendu bergi brotnar væru í
tvenns konar áhættu. Misrétti af
völdum kynferðis og misrétti af
völdum kynþáttar.
„Þetta sýnir það svo að ekki
verður um villst að krafturinn
í jafnréttisbaráttunni og kven-
frelsisbaráttunni á að vera svona
mikill alla daga,“ segir Kolbrún
Halldórsdóttir, þingmaður og
fundargestur.
Sjá síðu 4/ saj
Þurfum kraftinn alla daga
Að minnsta kosti 45 þúsund manns komu saman í Reykjavík í tilefni kvennafrídagsins. Gjörsamlega stór-
kostlegt segir fundarstýran en telur sorglegt að þurfa að funda þrjátíu árum eftir upprunalega frídaginn.
Ekki af baki dottinn
Guðjón Þórðarson hefur ekki misst
trúna á starf sitt hjá
Notts County þótt
liðið hans hafi ekki
unnið leik í tvo mán-
uði. Hann hefur
fullan stuðning
stjórnarinnar.
ÍÞRÓTTIR 74
TÆPLEGA FIMMTÍU ÞÚSUND MANNS Í MIÐBÆNUM Mikill fjöldi kvenna safnaðist saman um allt land í gær í tilefni kvennafrídagsins. Í Reykjavík hófst hópganga á Skólavörðuholti, sem
leið lá niður á Ingólfstorg. Telur lögregla að í það minnsta 45 þúsund manns hafi verið í miðborginni þegar mest var. Mikil stemning var í bænum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI