Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 36
10 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Gólfefnaflóran er geysilega fjölbreytt og nú um stundir leggur fólk mun
meira upp úr því að hafa gott gólfefni en áður. Júlíus Hafsteinsson, sölu-
stjóri hjá Parka, segir að salan hafi sjaldan verið meiri. Hann talar um það
að fólk leggi mikið upp úr því að gólfefnin séu endingargóð og nú um
stundir séu gamaldags plankaparkett vinsælust. Auk þeirra eru gegnheil
eikarparkett sívinsæl. Sömu sögu er að segja af gólfdúkunum, fólk vill fá
sterka og endingargóða dúka. Verslunarstjóri gólfefnabúðarinnar Kjarans,
Ólafur Geir Kjartansson, segir að þar séu linólíum dúkarnir sem komi
sterkastir inn. Þeir séu úr mjög vönduðum náttúrulegum efnum sem eiga
að endast mjög lengi. Slíkir dúkar eru ekki einungis vinsælir
hjá fyrirtækjum og stofnunum heldur geta einstakling-
ar fengið gífurlega fjölbreytt úrval af slíkum dúk-
um sem sóma sér vel inni á hvaða heimili
sem er. Það gólfefni sem er hins vegar
í mestum vexti og hefur verið að
auka vinsældir sínar eftir
nokkra lægð eru teppin. Teppi
yfir allt gólfið eða horn í horn
hafa verið að njóta vaxandi
vinsælda. Vinsælustu teppin
eru í 70’s stíl. Ingimundur hjá
Stepp segir að sú hlýja sem
fylgi teppunum sé það sem
fólk sæki helst í. Teppin eru úr
gæðaefnum og eins og með
önnur gólfefni sækist fólk mjög
eftir því.
Teppin koma sterk inn
Starfsmenn gólfefnaverslanna eru sammála um að sterk og vönduð gólfefni séu það sem fólk sækist helst eftir.
Plankaparkett, linólíum dúkar og 70’s teppi eru hins vegar vinsælustu gólfefnin um þessar mundir.
Línólíum dúkar úr
sterku náttúrulegu efni
Rýjuð og milligróf teppi í
70’s stíl eru mjög vinsæl.
Planakparkett úr eik eru mjög
flott og geysilega vinsæl.
Dökklútuð og hvítólíu-
borin parkett verða nú
sífellt vinsælli.
Mjúk og hlý ullarteppi eru
einnig mjög vinsæl. Hægt er að sníða saman
dúka eftir eigin höfði.
listaverk }
Listaverk á lánum
KB BANKI BÝÐUR UPP Á VAXTALAUS LÁN TIL
LISTAVERKAKAUPA
KB banki hefur í rúmt ár boðið upp á vaxtalaus listaverkalán til allt að
þriggja ára. Lánin eru veitt í samstarfi bankans, menningarráðs Reykjavík-
ur, sextán listgallería og viðkomandi listamanna. Viðtökur lánana hafa
verið mjög góðar og hafa um 280 listaverk verið keypt með keypt með
lánunum. Hægt er að fá lán frá 36.000 krónum og upp í 600.000, og
listaverkakaupandinn þarf að greiða út tíu prósent kaupverðs. Ef verkið
kostar meira en 600.000 þúsund krónur þarf lántakandi að greiða af-
ganginn. Hægt er að greiða upp lánin hvenær sem er á lánstímanum, en
helmings afsláttur er veittur af lántökugjaldi. Skilyrðir fyrir lánveitingu eru
að verkin séu eftir lifandi listamenn og mega þau ekki vera eldri en 60 ára
við kaup. Þjóðerni listamannsins skiptir þó engu máli, en það verður að
vera um frumsölu á verkinu að ræða. Og mögulegt er að kaupa fleiri en
eitt verk.
Mynd eftir Hrafn-
kel Sigurðsson
sem fæst í gallerí
i8, og hægt er að
kaupa með lista-
verkaláni frá KB
banka.
Mynd eftir Ólaf
Elíasson sem
hægt er að
kaupa með lista-
verkláni KB
banka í gallerý i8.
Ertu að byggja - Viltu breyta - Þarftu að bæta?
Sisal og kókos gólfteppi
frá 2,711 kr.
Dreglar og slabbmottur fyrir veturinn
Stök teppi á parket og flísar - mikið úrval
Teppadeild
Málningardeild
Kópal - 10 ltr 10% gljái 3,990 kr.
Kópal - 4 ltr 10% gljái 1,990 kr.
Opnunartími:
Mán. - fös. 9.00 - 18.00
Lau. 10.00 - 16.00
Ný sending af Veggfóðri og veggfóðursborðum
Skrautlistar og rósettur - mikið úrval
G r e n s á s v e g u r 1 8 • S í m i : 5 8 1 2 4 4 4
B
a
z
o
o
k
a
!
!
/
8
6
4
3
6
0
3
/
2
0
0
5
10-11 lesið 24.10.2005 15:53 Page 2