Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 28
Upphaflega var húsið við Skóla-
vörðustíg 35 reist árið 1906 en varð
eldi að bráð og byggt upp aftur árið
1908. Guðbjörg kveðst hafa keypt
það árið 1991 ásamt vinkonu og
bróður sínum Þorsteini. Nú er það
að mestu í eigu þeirra systkinanna
og þau leigja út gestaíbúð á neðstu
hæðinni. Auk þess að skipta um
glugga og lagnir og taka húsið allt
í gegn að utanverðu og koma því í
upprunalega mynd, hefur Guðbjörg
gert miðhæðina upp, haldið tré-
gólfunum við og betrekkt að nýju
með maskínupappa sem síðan hef-
ur verið málaður. Enda fékk húsið
viðurkenningu borgarstjórans í
Reykjavík árið 2003 fyrir vel
heppnaðar endurbætur.
„Upphaflega voru margar litlar
íbúðir í þessu húsi og hér bjó fullt af
fólki en þegar við keyptum var búið
að gera miðhæðina að einni íbúð.
Þar var samt eiginlega ekkert eld-
hús, bara smá krókur sem ég breytti
í baðherbergi en baðið var frammi á
gangi á smá syllu,“ lýsir Guðbjörg.
Ég er búin að vera með þetta verk-
efni í tíu ár og á enn eftir að taka
forstofuna í gegn og gestaherbergið
þar sem skúffurnar hans Guðjóns
eru,“ segir hún og sýnir hirslu sem
fellur undir stigann á efri hæðina.
Þegar efsta skúffan er dregin út
blasa við teikningar eftir húsameist-
arann. Þótt einangrun hússins sé
meira og minna í molum segir Guð-
björg aldrei kalt þar. „Ég sleppi því
að kynda allt sumarið og fram á
haust,“ segir Guðbjörg brosandi og
kveðst alsæl í þessu aldargamla húsi
á besta stað í bænum.
ÚTSALA
10 - 60% afsláttur
Skeifan 3A • 108 Reykjavík
Sími 517 3600 • Fax 517 3604
mylogo@mmedia.is • www.local1.is
Húsið setur svip sinn á efsta hluta Skólavörðustígs.
Húsið við Skólavörðustíg 35 hefur yfir sér höfðinglegan
blæ. Það er byggt af Samúel Jónssyni trésmið og var í
áratugi heimili sonar hans, Guðjóns Samúelssonar
húsameistara ríkisins. Nú býr þar Guðbjörg Þorvarðar-
dóttir dýralæknir. Hún tók við húsinu í niðurníðslu en
hefur gert á því gríðarlegar endurbætur og endurvakið
virðingu þess.
Eldhúsið var ein íbúð áður fyrr.
Stigapallurinn. Á syllunni við gluggann var
klósett þegar Guðbjörg keypti húsið.
Horft eftir eldhúsinu út í stofurnar.
Í húsi húsameistarans
Skúffur húsameistarans geyma enn ýmsar
teikningar.
Stofurnar hennar Guðbjargar eru
stórar og bjartar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
Gangurinn inn í gestaherbergið er með
stöllum eins og Guðjón var þekktur fyrir.
Gamli skorsteinninn er
vinalegur og hillan yfir ofn-
inum er greinilega hand-
verk Guðjóns.
2 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
02-03 lesið 24.10.2005 15:30 Page 2