Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 30
4 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Ljósmyndir á bollum
ÞJÓÐLEGT MYNSTUR OG ÁPRENTAÐAR LJÓSMYNDIR Á HÚSGÖGNUM OG HEIMILISMUNUM.
Mynstur er mjög áberandi á heimilismunum um þessar mundir. Sterkir litir, gróður
og þjóðlegar myndir eru sérstaklega vinsælar og eru þær áprentaðar á áklæði, leir-
tau, kerti, klukkur og fleira. Kjörið er að útbúa sitt eigið mynstur eða taka uppá-
haldsljósmyndina og láta prenta hana á áklæði fyrir gardínur eða á bolla. Ef
ímyndunaraflið skortir, er úrvalið mikið í verslunum af fallegum munum með
fallegu mynstri sem skreyta heimilið og krydda hversdagsleikann.
Ýmislegt nýtt er í straumum og stefnum sófa svo sem í litum, áklæð-
um og lögun. „Leðrið hefur verið að koma sterkt inn og þá sérstak-
lega í svörtu og hvítu,“ segir Ingi Þór Jakobsson í Exo. Fyrir 20
árum voru sömu litir vinsælir en þá var miklu meira af gráum og
köldum litum með. „Það sem er gaman við þessa svart/hvítu bylgju
í dag er að með henni er yfirleitt heitur litur svo sem beige, lime,
grænn og rauður, og svo er að koma töluvert af appelsínugulum.“
Sófar hafa verið að lengjast og nú er hægt að fá þá allt upp í 4,5
metra langa. Fyrir fimm árum þótti gott að hafa þá tvo metra. „Það
sem var upp-niður, til dæmis skápar sem stóðu á endann, hafa verið
lagðir niður. Nú er allt langt frá vinstri til hægri. Sófar eru lægri en aft-
ur á móti lengri. Þetta gefur miklu meira rými í augnhæð og allt virðist
stærra,“ segir Ingi Þór.
Fólk sem velur annað efni en leður vill hafa það í grófari kantinum að sögn
Jóhanns Svavars í Heima. „Bómullaráklæði eru algeng og einnig er nokkuð um
hör,“ segir hann og bætir við að litirnir í efnunum séu þá yfirleitt í ljósari kantin-
um.
Í grindum og fótum er króm allsráðandi að sögn Jóhanns. Einnig er áber-
andi meira um tungusófa og algengt er að púðarnir séu lausir í stað föstu
bakanna hér áður fyrr.
Nýjar stefnur í sófum
Leður er algengasta sófaáklæðið og litur þess helst svartur
eða hvítur. Sófarnir eru lengri en þeir voru og mikið
er tekið af tungusófum.
Hvítt leðursófasett. Flott að hafa lit með,
til dæmis rauðan leðurstól. Frá Heima.
Hvítur leðursófi með stunginni
setu. Frá Exó.
Grár sófi með áklæði úr blöndu
af bómull og polyester. Frá
Heima.
Svartur leðursófi frá Exó.
Bollar með
japönskum ljós-
myndum í Habitat.
FREJA púði með þjóð-
legu mynstri í IKEA.
POÄNG hæg-
indastóll með
falllegu jurta-
mynstri í IKEA.
Blómlegt herðatré
í Sipa.
Diskar og bollar
með japönsku
mynstri í Habitat.
Glaðlegur plast-
bakki í Sipa.
Servíetta, skeiðar
og spaði í Sipa.
04-05 lesið 24.10.2005 15:32 Page 2