Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 2
2 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR „Lögfræðingur okkar er að vinna í þessum málum,“ segir Eiður Eiríkur Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri starfsmannaleigunnar 2B ehf. Hann vísar þar til ásakana á hendur honum og fyrirtæki hans. „Þetta verður klárað fyrir dóm- stólum, en ekki í fjölmiðlum.“ Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður 2B, segir búið að ákveða að höfða meiðyrðamál á hendur Guðmundi Gunnarssyni, formanni Rafiðnaðarsambandsins, og Oddi Friðrikssyni, trúnaðarmanni starfsmanna á Kárahnjúkum. „Nú er kominn tími til að þessir verkalýðskarlar taki ábyrð á orðum sínum. Með ólíkindum er að einn af forystumönnum verkalýðshreyfing- arinnar í landinu skuli halda að hann geti komist upp með að kalla menn glæpamenn, stýrandi vændishringjum, án þess að þurfa að taka afleiðing- um orða sinna. Örlög launþegahreyfingarinnar eru hörmuleg að hafa slíka menn í forystu,“ segir hann og tekur undir með Eiði um að fyrirtækið sé lagt í einelti. „Þetta eru óvenju rætin ummæli og gjörsamlega út úr korti.“ Sveinn Andri telur verkalýðsforystuna síst hafa hagsmuni erlends vinnuafls að leiðarljósi í aðgerðum sínum. „Menn sem setið hafa við kjötkatlana alla þessa tíð og virðist þeirra eina hlutverk að passa upp á bitlingana sína. Þeim er nákvæmlega sama um hagsmuni þessara manna. Aðalmálið virðist að vera nógu sniðugur að flæma þá í burtu,“ segir hann og telur undarlegt að innlent fyrirtæki sem fyrir fram hafi óskað eftir sam- starfi við ASÍ og ráðgjöf um hvernig haga bæri hlutum mætti slíku viðmóti, meðan skatttekjur streymi úr landi vegna starfsemi ámóta fyrirtækja frá Eystrasalti og víðar. - óká Yfirmönnum Vinnumálastofnunar hefur verið falið að grennslast fyrir um ávirðingar á hend- ur starfsmannaleigunni 2B og vísa til lögreglu reynist þær á rökum reistar. Gissur Pétursson, forstjóri stofnunarinn- ar, segir málið hafa verið rætt á fundi stjórnar í hádeginu í gær. „Við erum að kalla eftir upp- lýsingum um fyrirtækið og svo að huga frekar að starfsumhverfi slíkra leiga,“ segir hann og bætir við að þeim fjölgi mjög sem starfi hér á leigufyrirkomulagi. „Ákveðið áhyggjuefni er að menn geti ekki samið sig að þessu hefðbundna ráðning- arfyrirkomulagi sem hér hefur verið við lýði og menn þekkja. En það er greinilega mikill vinnuaflsskortur og menn grípa allt sem til fellur og þá ekki alltaf öruggt hvort það er fyrir innan lög og rétt.“ Gissur segir galla að í raun geti hver sem er sett á stofn starfsmanna- leigu. „Þar er engin skráningarskylda eða neitt. Þá þurfa þeir sem út í slíka starfsemi fara ekki að undirgangast neinar skyldur, svo sem um að upplýsa vinnumarkaðsyfirvöld um aðstæður svo við höfum þá ein- hverja tilfinningu fyrir því hvernig mál eru að þróast.“ Gissur sagðist ekki sjá í hendi sér með hvaða hætti öðrum en laga- setningu væri hægt að ná utan um starsemi starfsmannaleiga hér á landi. „En það hefur verið í dálitinn tíma nefnd á vegum ráðuneytisins að fara yfir þetta og hún hlýtur að þurfa að hraða sínum störfum. Ég að minnsta kosti skynja það svo sem fullur áhugi sé hjá félagsmálaráð- herra að gera eitthvað í málinu.“ - óká ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 29 93 3 1 0/ 20 05 Þetta er þitt tækifæri til að eignast betri bíl. www.toyota.is Komdu í Toyota Nýbýlavegi, kíktu á úrvalið og verðið, gakktu frá málunum á staðnum og aktu heim á betri notuðum bíl. Toyota Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími 570-5070 BETRI NOTAÐIR BÍLAR „Mér sýnist einsýnt að við förum í ein- hvers konar lagasetningu en hún þarf að taka mið af okkar alþjóðlegu skuldbind- ingum, ekki síst varðandi EES-samning- inn,“ segir Árni Magnússon félagsmála- ráðherra um starfsemi starfsmannaleiga. „Við erum að fara yfir hvort setja beri um þetta sérlög eða fella ákvæði inn í önnur lög. Hvort tveggja kemur til greina.“ Árni segir vonir standa til að takist að klára lagasetninguna fyrir jól. „En það er þó ekki alveg einfalt mál. Við höfum fjallað um málið í nefnd í alllangan tíma en ég vona að við sjáum til lands í því og hægt verði að taka þetta til umfjöllunar í þinginu fyrir jól.“ Árni segist munu funda á miðvikudag- inn með forystu ASÍ um málið. „Lagasetn- ing um starfsmannaleigur er eitt af því sem ASÍ hefur metið sem svo að muni skipta verulegu máli þegar vonandi kemur að því að framlengja kjarasamninga, þannig að við tökum það auðvitað alvarlega.“ - óká Félagsmálaráðherra: Stefnir að nýjum lögum fyrir jól VERKALÝÐSMÁL Kominn er tími á aðgerðir af hálfu verkalýðs- hreyfingarinnar til að knýja á um umbætur hjá fyrirtækjum sem ekki upplýsa um kaup og kjör erlendra starfsmanna sinna. Þetta segir Þorbjörn Guðmunds- son framkvæmdastjóri Samiðn- ar, sambands iðnfélaga, en menn á hans vegum fóru um í gær og ræddu við erlenda starfsmenn sem hér eru á vegum íslensku starfsmannaleigunnar 2B ehf. Verkalýðsfélög hafa starfsemi 2B nú undir smásjánni, en þar á bæ hafa menn meðal annars verið sakaðir um að hafa hvatt til þess að pólskir verkamenn væru barðir til hlýðni. Þorbjörn segir farið fram á umbætur komi í ljós að erlendir verkamenn fái ekki greitt í samræmi við kjarasamninga. „Yfirleitt eru þess mál löguð, en ef ekki er nú komið að því að við stoppum vinnustaði strax á næstu dögum, en hvar það verður gef ég náttúrlega ekki upp.“ Oddur Friðriksson, aðaltrún- aðarmaður starfsmanna á Kár- ahnjúkum, segir alveg ljóst að starfsmannaleigum með starfsemi hér fari fjölgandi og bráðnauðsyn- legt sé að setja lög um starfsemi þeirra. „Leigurnar eiga að starfa eftir ákveðnum lögum svo þær komist ekki upp með að vera með leynisamninga í öðrum löndum og að búa sér til sínar eigin reglur á vinnumarkaði. Þessi fyrirtæki hafa nýtt sér göt í lögum. Megin- hluti þeirra er frá Eystra- saltslöndunum og Portúgal, fátækum löndum Evrópu þar sem enga vinnu er að hafa. En það eiga starfsmannaleigur ekki að geta nýtt sér. Þetta fólk á að vera á sömu kjörum og hér eru við lýði og borga hér skatta og skyldur eins og hver annar,“ segir Oddur og telur stjórnvöld þurfa að taka af skarið um hvernig þessum málum eigi að vera háttað. „Núna er það á ábyrgð verkalýðshreyfingarinnar að fylgjast með og reyna að upp- ræta vandann, en við höfum bara ekki nógu fasta stoð í lögum. Við gerum okkar besta, en erum bara að róta fram og til baka í einhverj- um haug.“ Oddur telur að þing- menn þurfi að einhenda sér í að koma í gegn nýjum lögum fyrir jól. „Þingmennirnir okkar hafa ekkert betra að gera en klára þetta mál.“ olikr@frettabladid.is Krefjast aðgerða gegn 2B Fulltrúar Samiðnar fóru í gær um og ræddu við erlenda verkamenn á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Félögin segja tíma kominn á aðgerðir gegn fyrirtækjum sem upplýsi ekki um kjör erlendra starfsmanna. ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra vonast til þess að þingið fái fyrir jól að falla um ný lög um starfsmannaleigur. Starfsmannaleigan 2B ehf. snýr vörn í sókn : Kærir lygar og róg Stjórn Vinnumálastofnunar fundaði með starfsmannaleigum: Ávirðingar kannaðar SPURNING DAGSINS Úlfar, er þetta vökvastýri? „Nei, það er bara úr stáli.“ Bandalag íslenskra blaðamanna valdi Suzuki Swift bíl ársins á sunnudag. Úlfar Hinriksson, framkvæmdastjóri Suzukibíla, tók við forláta stálstýri sem bíllinn hlaut í viðurkenning- arskyni. BAGDAD, AP Þrjár bílsprengjur voru sprengdar nánast sam- tímis fyrir utan hótel erlendra blaðamanna í Bagdad í gær. Í það minnsta tuttugu manns dóu í sprengingunum. Síðdegis í gær var steypubíl hlöðnum sprengiefni ekið upp að varnargirðingum Hótel Palest- ínu í miðborg Bagdad en þar býr fjöldi erlendra blaðamanna. Verð- ir reyndu að stöðva bílinn með því að skjóta á hann en svo fór að ökumanni hans tókst að brjótast í gegnum múrinn, aka að hótelinu og sprengja bifreiðina í tætlur. Innan tveggja mínútna sprungu tvær sprengjur til viðbótar. „Áform tilræðismannanna eru augljós, að ná hótelinu á sitt vald og taka arabíska og aðra erlenda blaðamenn í gíslingu,“ sagði Mouwafak al-Rubaei, þjóðar- öryggisráðgjafi Íraksstjórnar. Talið er að tuttugu manns hafi farist í tilræðununum, þar af fimm lögregluþjónar, og fjörutíu til viðbótar slasast, flestir þeirra vegfarendur. Hótelið sjálft er mikið skemmt en að sögn banda- rískra embættismanna lést eng- inn þar innandyra. Mikil ólga hefur verið í land- inu undanfarið, síðastliðna tvo daga hafa alls 65 látist í árásum uppreisnarmanna. - shg Tuttugu fórust í þrefaldri bílsprengjuárás á hótel blaðamanna í Bagdad: Hugðust hertaka hótelið OLÍUSAMRÁÐ „Við ætlum að hittast til frekari viðræðna,“ segir Vil- hjálmur H. Vilhjálmsson, lögmað- ur Reykjavíkurborgar, um gang mála vegna skaðabótakröfu borg- arinnar á hendur olíufélögunum. Fyrir skömmu rann út frestur sem borgin gaf félögunum þrem- ur til að svara skaðabótakröfu sinni. Lögmenn hafa fyrir hönd Skeljungs og Olís fundað með Vilhjálmi síðan þá, en Ker, sem á Esso, svaraði erindinu formlega. Vilhjálmur segir að í því svari hafi verið boðin fram ákveðin greiðsla, en tæpast í samræmi við kröfur borgarinnar. „Ég lít hins vegar á þetta sem eitt mál. Kröfurnar beinast að félögunum í heild vegna samráðsins,“ segir hann og kveðst munu svara Keri þegar viðræðum við hin félögin tvö ljúki. „Verði málið leyst, þá verður það leyst í heild,“ bætti hann við. - óká Kröfur vegna olíusamráðs: Ker vill borga skaðabætur VÍTISVÉL Á FJÓRUM HJÓLUM Myndbands- upptökur náðust af steypubílnum með sprengiefnið aka í gegnum vegartálma og springa síðan í loft upp. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VERKAMENN Á KÁRAHNJÚKUM Oddur Friðriksson, aðaltrún- aðarmaður á Kárahnjúk- um, segist vera með nokkur fyrirtæki undir smásjánni vegna viðskipta þeirra við starfsmannaleigur, en sum hver standi sig þó mjög vel. ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� STJÓRNMÁL Jens Stoltenberg, for- sætisráðherra Noregs, segir að Norðmenn fylgist með umræðum á Íslandi um hugsanlega aðildar- umsókn að Evrópusambandinu. „Umræðan hér getur haft áhrif á afstöðu Norðmanna,“ segir Stolt- enberg. Þing Norðurlandaráðs hefst í Reykjavík í dag en forsætis- ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sátu fund í gær í tengslum við upphaf þings- ins. Þeir ræddu meðal annars málefni sem tengjast Evrópu- sambandinu. Um 800 manns eru komnir til landsins vegna þings- ins. sjá síðu 15 /- jh Jens Stoltenberg í Reykjavík: Umræðan hér hefur áhrif þar GISSUR PÉTURSSON Forstjóri Vinnumála- stofnunar. EIÐUR EIRÍKUR BALD- VINSSON Framkvæmdastjóri 2B.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.