Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 12
 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR12 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Fjöldi manns þurfti að hverfa frá nokkrum atburð- um á Iceland Airwaves-tón- listarhátíðinni þrátt fyrir að hafa greitt fullt verð fyrir aðgöngumiða. Aðstandend- ur hátíðarinnar ætla að athuga hvernig koma megi í veg fyrir að slíkt ástand skapist aftur. Valgeir Örn Ragnarsson, sem ætlaði að fylgjast vel með Air- waves-hátíðinni sem lauk á sunnudag, segist vera mjög sár yfir því að hafa borgað um 6.000 krónur fyrir armband á hátíðina og hafa síðan þurft að dúsa í bið- röðum meiripart hennar. Fjöldi gramra tónleikagesta hefur furðað sig á löngum biðröð- um sem mynduðust yfir hátíðina, sérstaklega fyrir utan skemmti- staðinn Nasa. Árni Einar Birgisson, fram- kvæmdastjóri hátiðarinnar, segir að tónlistarmenn eins og José González, Clap Your Hands Say Yeah, Ratatat og fleiri hafi fyrir nokkrum vikum síðan verið nær óþekktir hér á landi en síðan hafi myndast gríðargóð stemning fyrir tónleikum þeirra. Á meðan hafi stærri bitar á við The Zutons, International Noise Conspiracy, Juliette & The Licks og The Fiery Furnaces ekki trekkt eins marga að og menn höfðu spáð fyrir. Helgi Hrafn Guðmundsson segir að hann hafi misst af fjölda tónleika sem hann hafi ætlað að sjá einfaldlega vegna biðraða. Hann hafi ekki einu sinni reynt við bið- röðina á Nasa á laugardaginn. Sú röð náði frá Nasa og að Alþingis- húsinu og myndaðist á tíma mikill troðningur fyrir framan inngang- inn. Biðu sumir í allt að tvo til þjá tíma í röðinni. Árni Einar segir að þegar mest var hafi verið um 280 manns í röðinni þó að aðrir vilji halda því fram að þeir hafi verið 3-400 auk þess sem um fimmtíu manns með forgangspassa hafi beðið í röð. Árni segir að röðin hafi byrjað að myndast um klukk- an 21.40 og hafi ekki verið horfin fyrr en um klukkan 02.30. Hann segir hins vegar að einhverjir smá misbrestir hafi orðið á milli yfirdyravarðar þeirra og yfir- mans Nasa um það hverjum ætti að hleypa inn og hverjum ekki. Árni Einar segir að jafn marg- ir miðar hafi verið til sölu í ár og í fyrra. „Það er mjög erfitt að spá fyrir fram hvaða tónleikar eiga eftir að vera vinsælir og hverjir ekki. Plötusala gefur yfirleitt góða mynd af því en gerði það alls ekki í ár. Flestir þeirra sem ég hef talað við hafa hins vegar ekki sett út á neitt annað hjá hátíðinni þannig að hún gekk að öðru leyti mjög vel. Spennan fyrir hátíðinni hefur verið að aukast mikið síðustu ár og það útskýrir kannski þessar biðraðir. Niðurröðun hljómsveita hjá okkur gekk hins vegar ekki upp og við munum á næstu dögum setjast niður ásamt aðilum sem koma nálægt hátíðinni og fara yfir það sem fór úrskeiðis og hvað má bæta,“ segir Árni að lokum. steinthor@frettabladid.is HLUSTAÐ Í ANDAKT Á meðan fjöldi fólks beið í biðröðum fyrir utan staðina þar sem Iceland Airwaves tónleikarnir fóru fram nutu þeir tónlistarinnar sem inn komust. FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA Borgaði sex þúsund en stóð lengst af í röðum Misskilningur „Ég sagði að tungu- málaörðugleikar yrðu framundan og að það þyrfti að sýna þeim góða verkstjórn og góðan aga.“ Eiður Eiríkur Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri starfsmannaleigunn- ar 2B, í Fréttablaðinu um samskipti sín við Suðurverk á Kárahnjúkum. Hann segir það misskilning að hann hafi sagt verkstjórum að lemja Pólverjana til hlýðni. Bestur „Og fréttastjóri Sjón- varps sagði eitt sinn að ég væri besti blaðamaður landsins.“ Hallur Hallsson blaðamaður í Morgunblaðsgrein um samskipti sín og fréttaritstjóra Fréttablaðsins. ROKK OG RÓL Almennt var góð stemning inni á stöðunum á Iceland Airwaves-hátíðinni og eina gagnrýnin snýr að örðugleikum við að komast inn. FRÉTTABLAÐIÐ / HEIÐA „Það er grátt í rót og austanandvari hér í Vatnsfirði en af mér er allt gott að frétta,“ segir séra Baldur Vilhelmsson, fyrrum prest- ur í Vatnsfirði. „Annars kom hingað flokkur símamanna og var einhvern skrambann að aðhafast svo nú er komið internet á hvern bæ hér í sveitinni. Það breytir nú ekki svo miklu fyrir mig því ég kann ekkert á þetta. Ég held mig bara við símann því hann er okkar öryggistæki, sérstaklega á veturna.“ Margir Ísfirðingar hafa sagt frá því hve lifnað gat yfir bænum þegar séra Baldur var þar á ferð en fer hann oft í bæinn? „Nei, ég er lítið á ferðinni. Það er best að hreyfa sig sem minnst því eins og Halldór Laxness sagði: „það grær ekki um farandi stein.“ Þó verð ég nú að gera mér ferð á Ísafjörð í næstu viku til að láta skoða bílinn. En svo er svolítil umferð hérna, menn koma og skoða kirkjuna og þá hef ég oft sagt mönnum til. Svo er búið að grafa upp landnámsbæ hér við túnfótinn hjá mér og það koma margir að skoða hann en þar er allt svo kyrfilega merkt með upplýsingaspjöldum svo þess gerist ekki þörf að ég sé að þusa yfir fólki um það sem þar er að sjá. Á þessum bæ bjó Snæbjörn nokkur, bróðir Helga magra. Hann kom með lið sitt hingað frá Írlandi. Annars er ekkert voðalega mikið framundan, ég bíð bara spenntur eftir að jólabókaflóðið skelli á. Ég hef nú þegar skrifað hjá mér tvær bækur sem ég ætla að kaupa þegar þær verða fáanlegar á Ísafirði.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SÉRA BALDUR VILHELMSSON, FYRRUM SÓKNARPRESTUR Í VATNSFIRÐI Internetið komið í sveitina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.