Fréttablaðið - 25.10.2005, Síða 10

Fréttablaðið - 25.10.2005, Síða 10
10 25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR F í t o n / S Í A Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00 Almera Ver›tilbo› 1.790.000.- Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, sóllúga, álfelgur og spoiler. ALMERA NISSAN fiÆGINDI OFAR ÖLLU SKIPT_um væntingar SKIPULAGSMÁL Gömlu bæjarskrif- stofurnar í Garðabæ hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Síðastliðinn ára- tug hafa listhneigðir grunnskæling- ar í Flataskóla haft aðstöðu í Sveina- tungu, eins og húsið var nefnt. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það hvað byggt verði á Sveinatungulóðinni. Þó eru uppi hugmyndir um nýjan miðbæ í Garðabæ og þar er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á svæðinu. - jse Bæjarskrifstofur í Garðabæ: Sveinatunga jöfnuð við jörðu SVEINATUNGA RIFIN Ekki hefur verið ákveðið hvað verður byggt á lóðinni. BIFHJÓL Evu Dögg Þórsdóttur, upplýsingafulltrúa Sniglanna, var brugðið er hún las um sex ára dreng á fimmtíu kúbika smábif- hjóli í Fréttablaðinu á laugardag. „Hafa þarf skellinöðrupróf til að keyra svo kraftmikil hjól á götum úti, klæðast leðurfatnaði og vera með móturhjólahjálm,“ segir Eva Dögg. „Svona hjól má aðeins nota á lokuðum svæðum. Þau mega ekki vera á götunum þar sem þau eru bæði númerslaus og ljóslaus.“ Brynhildur Georgsdóttir, fram- kvæmdastjóri ökutækjasviðs hjá Umferðarstofu, staðfestir að próf- skírteini þurfi til að nota hjól sem þetta á götunum. Tólf ára börn megi nota þau á lokuðum svæð- um. Hún segir öll vélknúin götu- hjól sem fari hraðar en fimmtán kílómetra á klukkustund skrán- ingarskyld. „Tryggingafélögin meta þessi hjól einnig stranglega. Ef menn skrá þau fá þeir iðgjöld upp á nokkur hundruð þúsund krónur.“ Eva Dögg stendur ásamt Kristj- áni Hafliðasyni og fleirum að félaginu GP Ísland. Markmið þess er meðal annars að setja upp og reka mótaraðir í akstursíþróttum. Eva segir félagið hafa sótt stíft í að fá leyfi til að keppa á slíkum hjólum en ekki fengið. Kristján segir að sumir hafi fengið að flytja hjólin inn sem leikföng en þá sé búið að takmarka hraða þeirra við þrettán kílómetra á klukkustund. „Reynt hefur verið að flytja þrjá- tíu til fjörutíu hjól inn til landsins en þau hafa verið endursend því þau hafa hvorki grindarnúmer né upprunanúmer.“ Brynhildur segir málið í klemmu, því sérstök æfinga- svæði þurfi svo hægt sé að nota hjólin löglega. Áhuga skorti hjá sveitarfélögum að koma upp slíkum svæðum og engin hér hafi hlotið viðurkenningu. „Sam- gönguráðuneytið hefur lýst yfir áhuga á að ganga í málið og taka það til heildarendurskoðunar. Slíkt þarf að gerast í samráði við tryggingafélög, lögreglu, sveitar- félög og ráðuneytin sem standa að þeim sem og vélhjólafélög sem líta á þetta sem íþrótt,“ segir Brynhildur og bætir við að eitt af því sem þurfi að skoða sé að lækka aldur þeirra sem megi nota hjólin. gag@frettabladid.is SEX ÁRA Á SMÁBIFHJÓLI Félagarnir í GP Ísland segja hjól sem þessi ná frá fimmtíu til áttatíu kílómetra hraða á klukkustund. Barnahjólið er fyrir fullorðna Samtök um akstursíþróttir hafa reynt að fá fimmtíu kúbika smábifhjól leyfð hér á landi. Erfitt hefur reynst að skrá hjólin og mörg hundruð þúsund krónur kostar að tryggja þau. Löglega keppnisbraut vantar. JAFNRÉTTI Hlutfall kvenkyns stjórnarformanna íslenskra fyrirtækja hefur ekkert breyst á fimm árum, að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hag- stofu Íslands. Þá hefur hlutfall kvenkyns framkvæmdastjóra aukist úr rúmum fimmtán pró- sentum árið 1999 í tæp átján prósent árið 2004 en sú fjölgun er sögð aðallega fyrir tilstuðlan nýrra fyrirtækja. Árið 2004 voru konur átján prósent framkvæmdastjóra og 22 prósent stjórnarformanna starf- andi fyrirtækja sem skráð eru í hlutafélagaskrá. Hlutfall kvenna miðað við karla er hæst í minnstu fyrirtækjunum og minnkar eftir því sem fyrirtækin stækka. Þá er hlutfall kvenna hæst í yngsta aldurshópi framkvæmdastjóra og stjórnarformanna. Einnig kemur fram að konur starfi í rík- ari mæli í verslun og þjónustu en karlar. Ef fyrirtækjum er skipt upp eftir atvinnugreinum kemur í ljós að hlutfall kvenkyns fram- kvæmdastjóra í byggingastarf- semi og fjármálastarfsemi var á bilinu sjö til átta prósent. Aðeins í veitustarfsemi og námugreftri var hlutfallið lægra, en þar starfaði engin kona sem fram- kvæmdastjóri. Hlutfallið var hins vegar hæst í því sem kallast önnur sam- félagsþjónusta, 41 prósent. Næst- hæst var hlutfallið í fræðslu- starfsemi, 38 prósent, og um þrjátíu prósent í heilbrigðis- og félagsþjónustu sem og hótel- og veitingahúsarekstri. - sda Konur í forystu skráðra fyrirtækja á árunum 1999 til 2004: Konum hefur lítið fjölgað í toppstöðum VALGERÐUR SVERRISDÓTTIR IÐNAÐAR- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA Valgerður hefur marg- oft vakið athygli á lágu hlutfalli kvenna í stjórnum fyrirtækja og sent út bréf til stjórnenda þar sem þeir eru hvattir til að veita þessu athygli. JAFNRÉTTI Um átta af hverjum tíu forstöðumönnum ríkisstofnana eru karlar. Fyrir þrjátíu árum voru þeir níu af hverjum tíu, að því er fram kemur í Hagtíðinum Hagstofu Íslands. Í ritinu, sem nefnist Konur og karlar 1975 til 2004, er þess freistað að skoða með tölum hvernig staða kynjanna á Íslandi hefur þróast á síðustu þremur áratugum. Þar kemur fram að stórt bil er enn milli atvinnutekna kvenna og karla og munur á meðaltímakaupi kynj- anna meðal verkafólks og afgreiðslu- fólks hefur lítið breyst á tímabilinu. Laun kvenna sem hlutfall af launum karla voru árið 2004 frá 63 til 98 pró- sent af launum karla, mismunandi eftir hópum og launaviðmiðunum. „Konur hafa haslað sér völl víða og eru komnar til áhrifa í samfélaginu en það skortir enn á að það sé til jafns við karla,“ segir í ritinu. Þegar rýnt er í tölurnar kemur í ljós að fyrir þrjátíu árum voru konur fimm prósent alþingismanna og fjögur prósent sveitarstjórnar- manna en engin kona sat þá í ríkis- stjórn. Tíu árum síðar, árið 1985, voru konur orðnar fimmtán prósent þingmanna og tólf prósent sveitar- stjórnarmanna og sat ein kona í ríkisstjórn. Auk þess hafði Vigdís Finnbogadóttir verið kjörin forseti Íslands fimm árum áður. Eftir síðustu sveitarstjórnar- kosningar árið 2002 voru konur 31 prósent sveitarstjórnarmanna og þrjátiu prósent þingmanna eftir alþingiskosningarnar 2003. Eftir breytingar á þingliði nú í haust eru þær nú nær þriðjungur þingmanna. Þá sitja þrjár konur í tólf manna ríkisstjórn. Fyrir þremur áratugum voru konur þrjú prósent þeirra sem sátu í opinberum nefndum og ráðum en hlutfallið er nú um þrjátíu prósent. Lengst af gegndu einungis karlar störfum ráðuneytisstjóra, sendi- herra og hæstaréttardómara svo fátt eitt sé talið. Árið 1995 voru konur einnig komnar í þau störf. Nú um stundir eru tvær konur ráðuneytisstjórar og aðrar tvær hæstaréttardómarar. Þá gegnir ein kona starfi sendiherra, og er hlutfallið einungis þrjú prósent. Þrjár aðrar konur hafa verið skip- aðar sendiherrar en hafa ekki enn tekið til starfa. - sda Sérrit um stöðu kynjanna síðustu þrjá áratugi: Enn hallar á hlut kvenna VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Var kjörin forseti Íslands árið 1980 og var fyrst kvenna í heimin- um til að gegna þeirri stöðu. SKÝRSLUNNI HAFNAÐ Tugþúsundir Sýrlendinga mótmæltu í gær skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, en stjórnvöld í Damaskus eru sökuð um að hafa látið ráða hann af dögum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.