Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 19
Umsjón: nánar á visir.is
Sterling skilar hagna›i á
næsta ári.
„Við erum að leggja undir til að
hagnast en ekki að tapa á því.
Það er náttúrlega okkar hlutverk
að finna þannig tækifæri,“ segir
Hannes Smárason, forstjóri FL
Group, um kaup fyrirtækisins á
norræna lággjaldaflugfélaginu
Sterling fyrir tæpa fimmtán
milljarða króna.
Hannes gerir ráð fyrir að
Sterling muni skila hagnaði á
næsta ári en mikill taprekstur
hefur verið á Sterling og Maersk
Air undanfarin ár.
Hann telur að verðmæti fjár-
festingarinnar í Sterling geti
fimmfaldast á tólf mánuðum
miðað við þær forsendur sem
kaupin byggjast. „Það er alveg
ljóst miðað við að félagið skili 3,5
milljarða EBITDA á næsta ári.“
Kaupverðið miðast við að
rekstrarhagnaður fyrir afskrift-
ir, fjármagnsliði og skatta – svo-
kallað EBITDA-hlutfall – verði
um 3,5 milljarðar króna árið
2006. Leiðrétt kaupverð er því
gert á 3,5-földu EBITDA.
- eþa
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.625 Fjöldi viðskipta: 239
Velta: 2.836 milljónir
+0,74%
MESTA LÆKKUN
Actavis 42,40 +1,00% ... Bakkavör 43,50 -0,50%
... FL Group 14,10 +0,70% ... Flaga 3,60 +0,00% ... HB Grandi 9,25 -0,50% ... Ís-
landsbanki 15,00 +0,30% ... Jarðboranir 21,50 +0,00% ... KB banki 600,00 +0,80%
... Kögun 54,00 +0,00% ... Landsbankinn 22,10 +1,40% ... Marel 64,00 +0,30% ...
SÍF 4,47 +0,00% ... Straumur 13,20 +1,20% ... Össur 93,50 +1,60%
Össur +1,63%
Landsbankinn +1,38%
KB banki +1,01%
Atorka Group -0,89%
HB Grandi -0,54%
Bakkavör -0,46%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
19ÞRIÐJUDAGUR 25. október 2005
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Hluthafafundur FL GROUP hf.
Reykjavík, 23. október 2005
Stjórn FL Group hf.
Fundarboð
Hluthafafundur FL Group hf. verður haldinn þriðjudaginn 1. nóvember 2005 á Nordica Hotel að
Suðurlandsbraut 2 og hefst hann kl. 14:00.
Dagskrá fundarins:
1. Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum félagsins.
2. Kjör stjórnar.
3. Önnur mál.
Stjórn FL Group hf. leggur fyrir fundinn eftirfarandi tillögur, sem fela í sér breytingar á samþykktum félagsins:
1. Að heimilisfang félagsins verði að Suðurlandsbraut 12, 108 Reykjavík.
2. Að hlutafé félagsins verði hækkað með eftirfarandi hætti:
a. Að hlutafé félagsins verði hækkað um allt að 3.400.000.000 kr. með útgáfu nýrra hluta. Hluthafar skulu falla frá forgangsrétti
til áskriftar að hinum nýju hlutum, sem seldir verða í lokuðu hlutafjárútboði. Áskriftir skulu háðar því skilyrði að hver einstakur
áskrifandi kaupi hlutafé fyrir a.m.k. 5 milljónir króna. Áskriftargengi hinna nýju hluta skal vera 13,6. Skal heimilt að greiða fyrir
hlutina með reiðufé eða með hlutabréfum í Actavis Group hf., Bakkavör Group hf., HB Granda hf., Íslandsbanka hf., Kaupþingi
banka hf., Landsbanka Íslands hf., Marel hf., SÍF hf., Straumi - Burðarási Fjárfestingabanka hf. og Össuri hf. miðað við lokagengi
þessara hluta miðað við skráð lokagengi þessara hlutabréfa í Kauphöll Íslands hf. síðasta viðskiptadag fyrir upphaf
áskriftartímabils (viðmiðunardagur). Verði breyting á gengi hlutabréfa þessara félaga frá samþykkt þessari fram að greiðsludegi,
þannig að gengi þeirra á greiðsludegi verði meira en 5% hærra eða lægra en það var á viðmiðunardeginum, skal stjórn FL
Group hf. heimilt að hafna viðtöku viðkomandi hluta sem greiðslu og geta krafist peningagreiðslu í staðinn, en hafnað
áskriftinni að öðrum kosti. Þá getur stjórn félagsins áskilið sér rétt til að hafna framangreindum hlutabréfum sem greiðslu ef
það leiðir til þess að FL Group hf. eignast meira en 10% eignarhlut í viðkomandi félagi.
b. Að stjórn félagsins verði heimilað að hækka hlutafé þess um allt að 330.000.000 kr. með útgáfu nýrra hluta. Skal gengi hinna
nýju hluta verða 13,6 fyrir hverja krónu nafnverðs. Hluthafar skulu falla frá forgangsrétti til áskriftar, en hlutirnir skulu afhentir
sem hluti kaupverðs í skiptum fyrir hluti í Sterling Airlines A/S, Sterling Icelandic ApS og Flyselskabet A/S. Skal heimild þessi
gilda í 1 ár.
c. Að stjórn félagsins verði heimilað að hækka hlutafé þess um allt að 73.000.000 kr. að nafnverði með útgáfu nýrra hluta.
Hluthafar skulu ekki njóta forgangs til áskriftar að þessum nýju hlutum, sem nýttir skulu til að uppfylla kaupréttarsamninga við
starfsmenn. Útboðsgengi hlutanna og söluskilmálar skulu vera samkvæmt þeim samningum sem stjórn félagsins eða forstjóri
gera við hlutaðeigandi starfsmenn. Skal heimild þessi gilda í 5 ár.
3. Að stjórnarmönnum verði fækkað úr sjö í fimm.
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á hluthafafundinum skulu vera komnar í hendur stjórnar félagsins með það miklum fyrirvara að
unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins.
Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur, endurskoðaður ársreikningur félagsins fyrir árið 2004, svo og árshlutauppgjör fyrir tímabilið frá
1. janúar 2005 til 30. júní 2005, áritað um könnun endurskoðanda félagsins, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis
7 dögum fyrir hluthafafund. Enn fremur verður hægt að nálgast fundargögn á vefsíðu félagsins, www.flgroup.is eða á aðalskrifstofu
FL Group hf. frá sama tíma.
Fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 13:30 á fundardegi.
HANNES SMÁRASON FL Group margfaldar
fjárfestinguna ef rekstraráætlanir Sterlings
ganga eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ver›mætin gætu fimmfaldast
SPÁ UM AFKOMU ÍSLANDS-
BANKA Á 3. ÁRSFJÓRÐUNGI
(í milljónum króna)
KB banki 4.400
Landsbankinn 4.055
Meðaltalsspá 4.228
Græ›ir á
ver›bólgunni
Íslandsbanki birtir afkomutölur
sínar á morgun – fyrst fjármála-
fyrirtækja – og gera markaðsaðil-
ar ráð fyrir að góðum hagnaðar-
tölum. Samkvæmt spám verður
afkoma hans jákvæð um 4,2 millj-
arða króna. Það er röskum 1,1
milljarði meiri hagnaður en á
sama tímabili í fyrra.
Gert er ráð fyrir að bankinn
auki hreinar vaxtatekjur sínar
verulega á milli ára, einkum
vegna hárrar verðbólgu á þriðja
ársfjórðungi. Útlán bankans hafa
einnig aukist mikið á árinu.
Hagnaður Íslandsbanka nam
um 10,6 milljörðum á fyrri hluta
árs. - eþa
ALAN GREENSPAN OG BEN BERNANKE
Bernanke tekur við starfi seðlabankastjóra
þegar Alan Greenspan lætur af störfum í
janúar.
Arftaki Green-
spans fundinn
George Bush Bandaríkjaforseti
hefur ráðið Ben Bernanke, einn af
efnahagsráðgjöfum Bush-stjórn-
arinnar, í starf seðlabankastjóra
Bandaríkjanna. Bernanke gaf út
yfirlýsingu fljótlega eftir að til-
kynnt hafði verið um ráðninguna.
Sagðist hann muna gera allt til að
tryggja áframhaldandi hagsæld
og stöðugleika efnahags Banda-
ríkjanna.
Alan Greenspan, núverandi
seðlabankastjóri Bandaríkjanna,
sest í helgan stein 31. janúar
næstkomandi eftir 18 og hálft ár í
starfi. - hhs
EasyJet
hækkar á n‡
Gengi í breska lággjaldaflugfé-
laginu easyJet hækkaði í gær um
fimm prósent sem rekja má til
væntinga um áframhaldandi kaup
FL Group á hlutabréfum í fyrir-
tækinu. FL Group, sem á um
þrettán prósenta hlut í easyJet,
ætlar að selja nýtt hlutafé fyrir 44
milljarða á næstunni þannig að
eigið fé félagsins verður 65 millj-
arðar.
Er ljóst að FL Group ætlar að
nýta sér sterka eiginfjárstöðu til
frekari verkefna.
Markaðsvirði easyJet hefur
lækkað að undanförnu og stendur
nú í 120 milljörðum króna. - eþa
x19 viðskipti 24.10.2005 20:40 Page 3