Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 20
25. október 2005 ÞRIÐJUDAGUR20
timamot@frettabladid.is
����
������������
���������
�����������
������������������������������
�����������������
���� �����������������������������
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi,
Árni Bjarnason
Fögruhlíð 7, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudag-
inn 25. október kl 13.00.
Ruth Árnadóttir Guðmundur Jónsson
Ása Bjarney Árnadóttir Jón Örn Pálsson
Guðný Hildur Árnadóttir Guðleifur Guðmundsson
Haraldur Árnason Valgerður Bjarnadóttir
Árni Özur Árnason Díana Ósk Pétursdóttir
Reynir Bjarnason Guðný Bernhards
barnabörn og barnabarnabörn.
www.steinsmidjan.is
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
Árni Hinrik Jónsson
áður Suðurgötu 44, Keflavík,
lést á sjúkrahúsi Keflavíkur laugardaginn 22. október.
Ólafur Kr. Árnason Kate Árnason
Jórunn H. Árnadóttir Birgir D. Sveinsson
Auður J. Árnadóttir Sæmundur Hinriksson
Ingveldur J. Árnadóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Esther Á. Laxdal
frá Tungu, Svalbarðsströnd,
verður jarðsungin frá Svalbarðsstrandarkirkju föstu-
daginn 28. október kl. 15.30.
Helgi Laxdal Inger Lise Laxdal
Haukur Laxdal
Birgir Laxdal Kristjana Kristjánsdóttir
Jóhannes Laxdal
Máni Laxdal Áslaug Helga Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Á þessum degi árið 1944
notuðu Japanar í fyrsta sinn
kamikaze-sjálfsmorðsflugvélar
gegn bandaríska heraflanum.
Undir lok síðari heimsstyrjald-
arinnar í stríðinu um Kyrrahaf
fóru Japanar halloka fyrir her
Bandaríkjamanna. Þá fengu
Japanar þá hugmynd að láta
flugmenn fljúga flugvélum
sínum beint á hernaðarlega
mikilvæg skotmörk til að valda
sem mestum skaða og töldu það einu leiðina til að
snúa stríðinu sér í vil.
Kamikaze þýðir á japönsku guðlegur vindur og vísar
til hvirfilbyls sem samkvæmt þjóðsögnum bjargaði
Japan frá innrás Mongóla árið 1281.
Alls tóku 24 japanskir flugmenn þátt í fyrstu sjálfs-
morðsárásinni en 23 þeirra voru
flugnemar að ljúka námi. Skotmörk-
in voru bandarísk flugmóðurskip
á Leyte-flóa við Filippseyjar. Eitt
þeirra, skipið St. Lo, sökk á innan
við klukkutíma en 100 bandarískir
sjóliðar fórust.
Í lok síðari heimsstyrjaldar höfðu
um 2.500 japanskir flugmenn týnt
lífi í sjálfsmorðsárásum. Samkvæmt
opinberum tölum Japana sökktu
þeir 81 skipi og skemmdu 195. Þá
var talið að um áttatíu prósent allra sigra Japana í
lokahluta stríðsins við Kyrrahaf hefðu verið sjálfsmorð-
sárásum að þakka. Samkvæmt bandarískum tölum
sökktu kamikaze-flugmenn hins vegar aðeins 34 skip-
um og skemmdu 368. Þá hafi 4.900 sjómenn týnt lífi
og 4.800 særst vegna sjálfsmorðsárása Japana.
KAMIKAZE-ÁRÁS
ÞETTA GERÐIST > 25. OKTÓBER 1944
Fyrsta kamikaze-sjálfsmorðsárásin
ANDLÁT
Anton Sigurgeir Gunnlaugsson,
skipstjóri, Reynihólum 10, Dalvík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu
á Akureyri miðvikudaginn 19.
október.
Ásgerður Jóhannsdóttir, áður til
heimilis í Laugarbóli, Skagafirði,
Víðigrund 6, Sauðárkróki, lést
þriðjudaginn 11. október. Jarðar-
förin hefur farið fram í kyrrþey.
Guðný Jóhanna Óskarsdóttir,
Birkimel 8, Reykjavík, lést á Spáni
22. október.
Gylfi Jónsson, vélvirki, Fannafold
116, lést á Landspítalanum Foss-
vogi 21. október.
JARÐARFARIR
13.00 Árni Bjarnason, Fögru-
hlíð 7, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarð-
arkirkju.
13.00 Hanna Ágústa Ágústsdótt-
ir, Melgerði 22, Reykjavík,
verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju.
13.00 Þorbjörg Bergmann
Jónasdóttir frá Helgavatni,
Vatnsdal, verður jarðsungin
frá Þingeyrarkirkju.
13.30 Kjartan Guðmundsson,
Víðilundi 24, Akureyri,
verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
Þorsteinn Bachmann leik-
ari er staddur í New York
á fertugsafmæli sínu og
ætlar að halda upp á það
með því að fara út að borða
með vinum sínum sem
búa í borginni sem aldrei
sefur. „Þetta er lifandi og
skemmtileg borg og hana
einkennir mikill fjölbreyti-
leiki og kraftur,“ segir Þor-
steinn, sem hefur komið til
New York í nokkur skipti.
Ferðin í þetta sinn er þó
ekki aðeins skemmtiferð
heldur slæðast viðskiptin
með sem Þorsteinn þarf að
sinna. Hann hóf störf sem
pródúsent hjá kvikmynda-
fyrirtækinu Pegasus fyrir
einum mánuði og tengist
ferðin kvikmyndaiðnaðin-
um. „Það er leyndarmál,“
segir Þorsteinn þegar hann
er spurður nánar út í verk-
efnið.
Þorstein þekkja marg-
ir úr kvikmyndum Robert
Douglas en hann hefur
leikið í myndunum Íslenski
draumurinn, Maður eins
og ég og nú síðast Strák-
arnir okkar. Hann starfaði
sem leikhússtjóri Leikhúss
Akureyrar á árunum 2002
til 2004 en hefur nú snúið
sér alfarið að kvikmynda-
bransanum. „Þar er meiri
hraði og kvikmyndir ná til
fleiri,“ segir hann, ánægð-
ur með nýja starfið.
Þorsteinn er ekki ókunn-
ur kvikmyndastarfinu og
starfaði nú síðast að verk-
efni í leikmyndagerð stór-
myndarinnar Flags of Our
Fathers sem Clint East-
wood leikstýrir og var tekin
upp á Reykjanesi í lok sum-
ars. „Það var mjög fróð-
legt að vinna að svo stóru
verkefni enda er þetta það
stærsta sem komið hefur til
Íslands,“ segir Þorsteinn,
sem rakst nokkrum sinnum
á Eastwood á tökustað en
alls unnu um 1100 manns
við myndina hér á landi.
„Það er skemmtileg og góð
reynsla að vinna með svo
mörgum,“ segir Þorsteinn,
sem fannst það erfiðasti
hluti verkefnisins þegar
leikmyndin fauk í burtu
viku fyrir fyrstu tökurnar.
„Það gerði storm og ein-
hver 800 tonn af sandi sem
búið var að moka til fuku
í burt,“ segir Þorsteinn en
bætir við að það sé alltaf
eitthvað óvænt sem hendi í
þessum bransa.
„Friður í heiminum,“
svarar Þorsteinn kíminn
þegar hann er spurður að
því hvort hann eigi sér ein-
hverja afmælisósk. Hann
segist ekki vera mikið
afmælisbarn þó hann hafi
vitanlega haft mjög gaman
að því að fá pakka á sínum
yngri árum.
PRÓDÚSENT Þorsteinn Bachmann starfar sem pródúsent hjá kvikmyndafyr-
irtækinu Pegasus.
ÞORSTEINN BACHMANN LEIKARI ER FERTUGUR Í DAG
Óskar sér heimsfriðar
á fertugsafmælinu
GEOFFREY CHAUCER (1343-1400)
lést þennan dag.
„Fólk getur hreinlega
dáið úr ímyndunarveiki.“
Geoffrey Chaucer var breskur heimspekingur, diplómat og skáld.
Hann er hvað þekktastur fyrir Kantaraborgarsögurnar.
FÆDDUST ÞENNAN DAG
1888 Richard Byrd
pólfari
„Fyrsta starfið mitt var
barnagæsla þegar ég var tólf
ára gömul,“ segir Þorbjörg
Sigríður Gunnlaugsdóttir
lögfræðingur. „Þetta var
góður og duglegur strákur
sem var rétt rúmlega eins
árs.“ Þorbjörg hafði mjög
gaman af starfinu. „Ég held
það sé draumur margra
stelpna að fá að passa góð
og lítil börn. Dúkkuleikur-
inn öðlaðist líf.“
Það sem henni þótti verst
við starfið var að skipta á
drengnum. „Hann var mjög
afkastamikill á því svið-
inu.“
Þorbjörg fékk starfið í
gegnum vinkonu sem var
þá að passa dreng á svipuð-
um aldri fyrir nágrannana.
Hún gætti drengsins hluta
úr degi í einn mánuð. „Mig
minnir ég hafi verið með
130 krónur á tímann. Það
þótti fínt. Eða kannski 150
krónur.“
Árið eftir fór hún í ungl-
ingavinnuna og var í henni
næstu sumur. Á mennta-
skólaárunum vann hún í
íþróttaversluninni Hreysti
á sumrin og í jólafríum og
eftir það var það Ríkisskatt-
stjóri sem hún vann hjá.
FYRSTA STARFIÐ: ÞORBJÖRG S. GUNNLAUGSDÓTTIR
Dúkkuleikurinn öðlaðist líf
MERKISATBURÐIR
1852 Barnaskólinn á Eyrarbakka
er settur í fyrsta sinn. Hann
er elsti barnaskólinn sem
enn er starfræktur.
1875 Fyrsta borgaralega hjóna-
vígslan fer fram hér á landi í
Vestmannaeyjum.
1881 Listmálarinn Pablo Picasso
kemur í heiminn.
1918 Hátt í 400 manns látast
þegar kanadíska gufuskipið
Princess Sophia sekkur úti
fyrir ströndum Alaska.
1919 Doktorsvörn fer fram í fyrsta
sinn við Háskóla Íslands
þegar Páll Eggert Ólason
ver rit sitt um Jón biskup
Arason.
1947 Kvikmyndasýningar hefjast í
Austurbæjarbíói.
1983 Bandaríski herinn ræðst inn
í Granada.
AFMÆLI
Ingibjörg Þorbergs tónskáld er
78 ára.
Ása Helga Ragnarsdóttir leik-
kona er 56 ára.
Guðrún G. Bergmann ferðamála-
frömuður er 55 ára.
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunarinnar, er
53 ára.
Skúli Gautason leikari og tónlist-
armaður er 46 ára.
Þorfinnur Ómarsson fjölmiðla-
maður er fertugur.
1881 Pablo
Picasso
listmálari
1838 George Bizet
tónskáld
1825 Johann
Strauss tónskáld