Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 22
[ ]Járn
Þýsk rannsókn hefur leitt í
ljós að börn sem eru að hefja
dagvistun þjást af streitu
vegna þessa. Streitan gerir enn
vart við sig mánuðum seinna
þegar flestir telja að áhrifum
umskiptanna ætti að vera
lokið.
Nýlega var gerð rannsókn í Berl-
ín sem náði til 70 barna sem voru
um fimmtán mánaða gömul. Niður-
stöður rannsóknarinnar gefa til
kynna að streita aukist til muna í
lífi barna þegar þau eru sett í dag-
vistun, til dagmömmu eða á leik-
skóla. Niðurstöðurnar bentu enn
fremur til að þessi streituaukning
væri mikil og að streitan væri
enn til staðar mörgum mánuðum
seinna þegar talið væri að áhrif
breytinganna ætti að vera lokið.
Rannsakendur draga þá ályktun
að börn eigi erfitt með að yfirgefa
foreldra sína og eru lengi að aðlag-
ast slíkum breytingum.
Rannsóknin fór þannig fram að
streita var mæld með því að mæla
hormónið cortisol í munnvatni
barnanna. Streitan var mæld áður
en dagvistun hófst, í upphafi dag-
vistunar og loks aftur eftir nokkra
mánuði. Niðurstöðurnar sýndu að
streitan jókst þegar dagvistunin
hófst og þrátt fyrir að streitan
hafi minnkað lítillega eftir nokk-
ra mánuði í vistun þá náði magn
hormónsins ekki fyrra jafnvægi
hjá börnunum.
Prófessor í Háskólanum í Cam-
bridge segir það mikinn streitu-
vald fyrir börn að ganga í gegnum
þessa breytingu, Börnin finna
sig í nýju, ókunnugu og hávaða-
sömu umhverfi fjarri foreldrum
sínum. Þó svo að gráturinn og
öskrin hætti í kveðjustundunum
og aðlögunartíma sé lokið virðist
streitan enn hrjá börnin.
Þessa streitu má minnka með
því að hafa börnin ekki of lengi í
dagvistun hvern dag. Einnig má
gera umhverfið heimilislegra og
gefa barninu meira af einstakl-
ingsmiðuðum tíma í vistuninni.
Niðurstöður rannsóknarinnar
minna okkur einnig á að börn geta
upplifað streitu þó svo að þau
sýnist sátt, ánægð og róleg. Því er
mikilvægt fyrir foreldra að gefa
börnunum tíma á kvöldin, tali við
þau og sýni þeim umhyggju og
hlýju.
Börn upplífa streitu í breyttu umhverfi.
má fá úr rauðu kjöti, kjúklingi, fiski og eggjum. Dökkgrænt laufmikið
grænmeti eins og spínat er járnríkt og líka þurrkaðir ávextir eins og
sveskjur, fíkjur og rúsínur.
Dagvistun veldur streitu
hjá litlum börnum
Á Íslandi er ætíð einhver pest
að ganga, hvort sem það er
niðurgangur, hósti eða hitafar-
aldur.
Þórður Ólafsson, yfirlæknir
læknavaktarinnar, segir að eng-
inn inflúensufaraldur sé í gangi
þessa stundina. Hin staðbundna
pest sé hins vegar alltaf til stað-
ar. Þessa stundina er það barka-
bólga sem er algengust og henni
fylgir hósti og hæsi. Með þessum
kvillum kemur oft upp smá hita-
vella. Þórður segir að það sé lítið
við þessu að gera, ekki sé hægt
að meðhöndla þetta með neinum
lyfjum. Hann segir það eina sem
hægt sé að gera að taka því rólega
heima fyrir, sérstaklega ef fólk er
með hita. Margir lenda líka í erfið-
um hósta og þá er málið bara ein-
faldlega að hvíla röddina. Þórður
talar einnig um að reykingamenn
eigi sérstaklega að taka sér hvíld
frá óþverranum ef þeir fái slíka
pest. Að lokum segir Þórður að
fólk þurfi litlu að kvíða, sú pest
sem nú gangi yfir lagist með róleg-
heitunum.
Staðbundin pest
alltaf til staðar
Barkabólga og hósti er algeng pest nú um
stundir.
EINKENNI ÞUNGLYNDIS OG SVEFN-
LEYSIS ÁLÍK.
Dr. Daniel J. Schwartz við Tampa
Sleep Center í Florída segir að
margir þeir sjúklingar sem greindir
hafa verið með þunglyndi geti í
raun verið með svefnvandamál en
ekki þunglyndi. Dr. Schwartz segir
að margir sjúklingar sem glíma
við svefnvandamál, sem einkenn-
ast af öndunartruflunum í svefni,
hafi verið settir á þunglyndislyf að
óþörfu.
Dr. Schwartz segir einkenni
þunglyndis og svefnleysis geta verið
áþekk. Mikil þreyta, andleysi og
minni lífsgleði séu hvort tveggja
einkenni þunglyndis og líka ein-
kenni slæms svefns. Hann telur það
bæði mikilvægt og einfalt að skoða
möguleg svefnvandamál áður en
einstaklingur er greindur þunglynd-
ur. Svefnleysi og þunglyndi fá ólíkar
meðferðir og því nauðsynlegt að
sjúklingar séu rétt greindir.
Svefnvandamál
ranglega greind
Margir þeir sem glíma við svefnvanda-
mál hafa verið greindir þunglyndir.
FRESH AND NATURAL
LAUGAVEGUR 11 552-2030
KRINGLAN 553-2002
WWW.LUSH.IS
STAFGANGA Í
LAUGARDAL
www.stafganga.is – áhrifarík lei› til líkamsræktar
Stafgöngunámskeið hefst
1. nóvember n.k
Tímar fyrir byrjendur
þriðjud- og fimmtudaga kl 17:30
Tímar fyrir lengra komna
þriðjud- og fimmtudaga kl 17:30
Klippikort fyrir framhaldshópa
Guðný Aradóttir
Stafgönguþjálfi
sími 616 8595
Jóna H. Bjarnadóttir
Stafgönguþjálfi
sími 694 3571
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
LUTEIN EYES 24mg
Styrkir augnbotnanna
og gott fyrir sjónina
Útsölustaðir m.a: Yggdrasil, Fjarðarkaup, Maður lifandi, Lífsins lind -Hagkaup, Lyfjaval
og Árnes apotek Selfossi.
S: 462-1889 • heilsuhorn@simnet.is • www.simnet/heilsuhorn.is
Sendum
í póstkröfu
Opið virka daga kl. 10-20
laugardaga kl. 10-17