Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 25. október 2005 3
Hinn gullni meðalvegur er heppi-
legastur í tannburstun eins og á
öðrum sviðum. Ef of sjaldan er
burstað vill myndast tannsteinn
og sýklarnir eiga þá líka greiðan
aðgang að tönnunum. Fólk getur
hins vegar einnig verið of iðið með
tannburstann og með því skaðað
tannhold og valdið sliti á glerungi
tannanna.
Hér á eftir fylgja þrjú ráð til að
tannburstunin nýtist sem best til
að bæta tannheilsuna.
Mjúk burstun:
Ýmislegt bendir til að margir bur-
sti tennurnar helst til fast, sérstak-
lega getur þetta verið bagalegt
ef tannburstinn er harður. Þetta
getur valdið skaða á tannholdi og
óæskilegu sliti á glerungi.
Í rannsókn sem gerð var við
háskólann í Newcastle var sýnt
fram á að hinn fullkomni þrýst-
ingur á tannburstanum er 150 g.
Góður tannbursti:
Flestir tannlæknar mæla með
mjúkum tannbursta. Rafmagns-
tannburstar eru einnig góð við-
bót við hina hefðbundnu og með
honum næst iðulega betur til
ýmissa staða í munnholinu sem sá
gamli góði nær illa til.
Í sumum gerðum tannkrema er
slípiefni sem vissulega gera tenn-
urnar hvítari en hafa þann galla
að valda sliti á glerungi. Það borg-
ar sig því að vera vel meðvitaður
um það hvort slíkt efni sé í tann-
kreminu.
Staður og stund:
Gott er að bursta tennurnar í
nokkrar mínútur í senn en muna
þó eftir því að ýta ekki of fast á
burstann. Burstinn þarf að fara
um allan munn, ekki bara aftur
fyrir jaxla heldur er einnig ágætt
að bursta létt yfir tunguna, í hana
safnast heilmikið af sýklum sem
svo geta valdið tannskemmdum.
Best er að bursta tennur kvölds og
morgna.
Hafa ber í huga að matur sem
er ríkur af sýru, eins og appels-
ínusafi, veikir glerunginn. Þess
vegna er heppilegt að láta líða
góða stund frá því að slíkra mat-
væla er neytt þar til tannburstinn
fer á loft. Gott er hins vegar að fá
sér sykurlaust tyggjó til að örva
munnvatnsframleiðsluna og ná
réttu sýrustigi.
Tannburstanum
beitt af stakri fimi
Hinn gullni meðalvegur gildir í tannburstun sem öðru.
Það skiptir máli hvernig burstanum er beitt.
GETTY IMAGES
SJÓNVARPSGLÁP ER HELSTI ÁHRIFA-
ÞÁTTUR Á HOLDAFAR BARNA.
Nú hafa vísindamenn fundið tengsl
milli sjónvarpsáhorfs og offitu hjá
börnum. Samkvæmt nýlegri rann-
sókn frá Nýja-Sjálandi er 41 prósent
þeirra sem þjást af offitu þeir
sömu og horfðu mest á sjónvarp.
Rannsóknin gaf einnig til kynna að
tengslin væru sterkari hjá stelpum
en strákum.
Niðurstöðurnar sýna ekki að sjón-
varpsgláp leiði beint til offitu heldur
er hér um mikilvægan áhrifaþátt
að ræða og út frá niðurstöðunum
var ályktað að börn ættu ekki að
horfa meira á sjónvarp en í tvær
klukkustundir á dag til að vernda
heilsu þeirra. Einstaklingar sem
horfðu mikið á sjónvarp sem börn
eru líklegri til að reykja, hafa hærra
kólesteról og glíma við offitu.
Offita vegna
sjónvarpsgláps
Ekki meira en tvo kaffibolla á
dag á meðgöngunni.
Óléttar konur ættu alls ekki að
drekka meira en tvo kaffibolla á
dag. Koffín getur nefnilega valdið
fósturláti. Sérstaklega er hætta á
því á fyrsta þriðjungi meðgöngu.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
sem norræna ráðherranefndin lét
gera. Óléttar konur ættu líka að
forðast aðra drykki sem innihalda
koffín eins og kók og te.
Fósturlát
af kaffi
Kaffis ætti að neyta í hófi á meðgöngu.
Lækkun á lyfjaverði skilar sér
ekki til neytenda.
Undanfarna mánuði hefur lyfja-
verð lækkað umtalsvert og er
um háar upphæðir að ræða. Ef
lyfjaverð myndi fylgja háu gengi
krónunnar yrði lækkunin þó enn
meiri.
Lyfjavöruhópur Samtaka
verslunar og þjónustu segja við-
skiptavini greiða óbreytt verð
þótt heildsöluverð hafi lækkað.
Það má útskýra með því að hlutur
sjúklinga í lyfjakostnaði er oft-
ast föst krónutala sem er ákveð-
in með reglugerð. Apótekin hafa
því þurft að lækka álagningu sína
umtalsvert og kemur það niður á
þjónustu apótekanna.
Haft er eftir Sigurði Jónssyni,
framkvæmdastjóri Samtaka við-
skipta og þjónustu, af heimasíðu
doktor.is, að hagnaðurinn fari
fyrst og fremst til Tryggingar-
stofnunar ríkisins þar sem endur-
greiðsla þeirra minnkar við hátt
gengi krónunnar og lækkunin skil-
ar sér því ekki til neytenda.
Verðlækkun
á lyfjum
Fjörefni er nýtt kjarnmikið
bætiefni sem inniheldur
auk vítamína og steinefna,
öflugan skammt af ginkgo
og ginseng.
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
Þú borðar þær með uppáhalds álegginu,
kannski ylvolgar úr ofninum,
ristaðar, með hvítlauksolíu,
stundum eins og pizzur
... eða eins og Strandamenn, glænýjar
með íslensku smjöri.
Fáðu þér Speltköku og Kartöfluköku í
næstu matvöruverslun.
Hollara brauð finnst varla.
Rammíslenskar Speltkökur og Kartöflukökur af Ströndum
100 ára hefð og ekkert nema hollusta
vítamín
..berst fyrir
betri heilsu
Bsveitin
KOLVETNABLOKKARI
Minnkar sykurlöngun
og virkar vatnslosandi
H
Á
G
Æ
Ð
A
A
M
ER
ÍS
K
F
Æ
Ð
U
B
Ó
TA
R
EF
N
I
2 hylki fyrir
kolvetnaríka máltíð
Fæst í apótekum,heilsubúðum
og matvöruverslunum
NÆTURBRENNSLA
Undraverður árangur
3 hylki fyrir svefn
Fæst í apótekum,heilsubúðum
og matvöruverslunum
Plokkfiskur 650 kr. / kg.
Fjölbreyttir fiskréttir
Einstaklingsmiðuð líkamsrækt
- leið til langtímaárangurs
Einstaklingsmiðað átaksnámsskeið þar sem geta og áhersla einstaklingsins er höfð
að leiðarljósi. Árangursríkt þjálfunarferli, persónulegur stuðningur og ráðgjöf.
Framkvæmanleg markmið, fámennir, lokaðir hópar í einstöku umhverfi.
Meðal leiðbeinenda er einstaklingur frá síðasta námsskeiði sem náð hefur góðum
árangri og heldur ótrauður áfram að settum markmiðum.
Námsskeiðin hefjast 1. nóvember.
Skráning og nánari upplýsingar hjá Svövu í síma 899-8596
Rope Yoga
Lokað heilsunámskeið
í hug- og heilsurækt.
Rope Yoga er ólíkt öðrum æfingakerfum eins og t.d. hlaup-
um og þolfimi sem reyna mikið á liði og stoðkerfi, sérstaklega þá sem
eru eldri og þyngri. Rope Yoga er einstaklega góð og heilbrigð leið til
bættrar heilsu. Hreyfingarnar eru framkvæmdar í láréttri stöðu og kraft-
urinn í kviðnum er nýttur til að framkvæma þær.
Rope Yoga er fyrir alla – konur og karla á öllum aldri.
Skráning og allar nánari upplýsingar í s. 899 8596 Svava.