Fréttablaðið - 25.10.2005, Page 34
Skór eru kannski ekki miklir um sig að rúmmáli en þar
sem margir skór koma saman, þar er flóð.
Óskipulag í forstofum getur gert hvern mann gráhærðan. Þegar skórnir
byrja að flæða út úr skápum og fram á gólf, bakvið hurðina og jafnvel
farnir að skríða út um póstlúguna þá er kominn tími til að huga að skipu-
lagi í forstofunni. Margar sniðugar lausnir eru í boði sem þurfa ekki að
kosta margan skildinginn. Hægt er að fá grindur til að staðsetja í
forstofunni. Skóskápa sem má hengja upp á vegg. Kassaeining-
ar sem hægt er að stafla hverja ofan á aðra og skóhillur sem má
ýmist hengja upp eða láta standa á gólfi.
8 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Lækjargötu 34c • 220 Hafnarfirði • S:553 4488
Dúndurútsala á flísum,
eigum nokkra
sturtuklefa á fínu verði
Ef þú þarft gler eða spegil?
...þá eigum við það sem þig vantar
stuttur afgreiðslufrestur
Margbrotin ljósakróna
PORCA CHINA EFTIR INGO MAURER.
Skór skór skór
LEKSVIK skóhilla. Lútuð og lökkuð gegnheil
fura/greni. Hæðin er 45 sentimetrar breidd-
in 120 sentimetrar.
LÍNAN: Flipp hnotuviðar
skóhilla. Hillan er 80 senti-
metrar á breiddina, nær
um 29 sentimetra frá vegg
og er 38 sentimetrar á
hæðina.
LOGGA skógrind úr lökkuðu stáli.
Rúmar 8 skópör. 38 sentimetrar á
hæð, 90 sentimetrar á breidd.
HABITAT – VERY IMPORTANT
PRODUCT Sérhönnuð vara
fyrir Habitat. Hnotuviður.
Lengd 35 sentimetrar, breidd
26 sentimetrar og hæð 18
sentimetrar. Hægt er að snúa
einingunum ef einni er raðað
ofan á aðra.
BABORD skógrind. Ómeðhöndlað-
ur gegnheill viður. Tekur 8 pör af
skóm. 30 sentimetrar á hæð, 80
sentimetrar á breidd.
IKEA: Trones skóskápur
með 3 skúffum sem raða
má saman á ólíka vegu.
Hver eining rúmar tvö
skópör. Hæð 40 sentimetr-
ar. Breidd 51 sentimetri.
Hverjum hefði dottið í
hug að brotið postulíns
matarstell gæti orðið að
glæsilegri ljósakrónu?
Ljósahönnuðurinn Ingo
Maurer hannaði þessa
stórbrotnu ljósakrónu sem
er sett saman úr bollum,
diskum, göflum og skál-
um. Ljósakrónan heitir
Porca China og hvert ein-
tak af henni er sérsmíðað,
þannig að engar tvær eru
eins. Hún kostar í kring-
um eina milljón íslenskra
króna, en sérstök útgáfa
af henni verður seld á
uppboði í París til styrktar
samtökunum Læknar án
landamæra.
08-09 lesið 24.10.2005 15:38 Page 2