Fréttablaðið - 25.10.2005, Blaðsíða 48
Tripp Trapp barnastólinn vex með
barninu sem getur farið að nota
hann strax og það er fært um að
sitja óstutt. Stóllinn veitir barninu
fullkominn stuðning á hvaða aldri
sem er, enda má hækka og lækka
bæði sæti og fótafjöl eftir þörfum.
Fæst í Epal og Baby Sam.
Húsgögn fyrir minnsta
fólkið á heimilinu
Notagildi og útlit þarf að fara saman þegar kemur að
barnahúsgögnum.
Minnstu fjölskyldumeðlimirnir þurfa líka húsgögn við sitt hæfi. Barnahús-
gögn þurfa að uppfylla ýmsar gæðakröfur og það borgar sig að vanda vel
til kaupa á þeim til að forðast slysin. Margar húsgagnaverslanir hérlendis
hafa til sölu falleg og skemmtileg barnahúsgögn enda er hönnun þeirra
ekki síður mikilvæg þar sem skemmtilegt útlit og notagildi þarf að fara
saman til að heilla smávaxna notendur. Húsgögnin í barnaherberginu
þurfa nefnilega oft að verða að skipum, hellum eða fjöllum og geta þegar
minnst varir umbreyst í ævintýraheim.
Hagaflöt 2, 210 Garðabær
Sími 544-8001. Fax 544-8002
Tölvupóstur : vefur@centrum.is
Heimasíða : www.vefur-efh . i s
Ný áklæðis- og gluggatjaldaefni
ásamt miklu úrvali af veggfóðri
10
35
.6
Hundafjölskyldan nýtur vinsælda
hjá ungu kynslóðinni og fæst hún
bæði hvít og græn. Hundarnir eru
heppilegir reiðskjótar fyrir lítil
börn og þau hafa líka gaman að
veltast með þá þótt þeir séu ekkert
sérstaklega mjúkir viðkomu.
Fjölskyldan býr í Epal.
Þessi fallegu gamaldags skemla,
bekki og rúm má fá í Tekkhúsinu.
14 ■■■■ { hús og heimili } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Trioli má nota sem
rugguhest og líka er
hægt að stilla honum
upp þannig að stólsetan
er mishátt frá gólfi svo
stóllinn hentar börnum á
ýmsum aldri. Hann fæst
í Epal.
Húsgögn í barnaherbergi þurfa að vera fal-
leg og notadrjúg til að heilla litla notend-
ur.
Þvottahús Ölfuss
er fjölnota fyrtæki sem samanstendur af þvottahúsi,
efnalaug og saumastofu.
Einnig útleiga á dúkum og mottum.
Meðhöndlar allt sem venjulegt heimili og fyrirtæki þurfa á að halda.
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar í símum 483 3530 eða 862 1917.
Selvogsbraut 4, 815 Þorlákshöfn
14-15 NOTA lesið 24.10.2005 15:43 Page 2