Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 80

Fréttablaðið - 25.10.2005, Side 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 BAKÞANKAR KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR Kvennafrídagurinn er að baki og nú ef til vill er dögun nýrra tíma. Á þessum þriðju- dagsmorgni má gera ráð fyrir að gengið verði vasklega til verka svo leiðrétta megi hið snarasta hinn óheyrilegan og kynbundna launamun. Nú fara stjórnendur með skilaboðin, vinna úr þeim og kippa þessu í lag eins og skot. Ábyrgðin liggur hjá vinnuveit- endum. Launaleynd varðveitir einna best óréttmæta mismunun. Það er gömul saga og ný að óværa þrífst best í þögninni. RÁÐHERRA fann kynbundinn launamun á sínum vinnustað og leiðrétti í grænum hvelli. Nú fer boltinn að rúlla. Hvað ef slíkar leiðréttingar væru afturvirkar? Hvað ef allar þær konur sem þolað hafa launamisrétti árum saman myndu krefjast uppgjörs aftur í tímann? Gæðavottun um jöfn laun til handa fyrirtækj- um er ein leiðin til að verðlauna þá sem virða mannréttindi, en afnám launaleyndar væri einnig skilvirk leið. ÞESSI launamunur getur ekki staðist. Svo verður bara hver og ein að standa í sinni launabar- áttu og eiga sín launamál við sinn vinnuveitanda,“ sagði kona ein undrandi. Ekki deila allir þeirri skoðun, enda hefur barátta fyrir mannréttindum yfirleitt skilað mestum árangri með fjöldaátaki. Skynja má bakslag frá því fyrir þrjátíu árum. Í gær báðu marg- ar konur náðarsamlegast um frí. Fyrir þrjátíu árum gengu þær bara út. JAFNRÉTTISBARÁTTA snýst um lífsgæði. Til að njóta þeirra saman þarf samvinnu. Henni var lítt fyrir að fara í sögunni úr skóg- inum sem flýgur nú um netheima. Dag einn reis bangsafjölskyld- an úr rekkju. Litli bangsi settist við morgunverðarborðið og sá að skálin var tóm. „Hver hefur borð- að grautinn minn?“ vældi hann. Bangsapabbi leit ofan í sína skál og hún var líka tóm. „Hver hefur borðað grautinn minn?“ urraði hann. Bangsamamma leit upp frá vaskinum. „Hvað þurfum við að fara oft í gegnum þetta?“ spurði hún þreytulega. „Ég fór fyrst á fætur, vakti ykkur, hellti upp á könnuna, tæmdi uppþvottavél- ina, raðaði í skápa, setti í eina vél, lagði á borðið, hleypti kettinum út, gaf honum að éta og sótti blað- ið. Og nú þegar þið loks drattist á fætur þá segi ég þetta bara einu sinni enn - ég er ekki búin að gera fjárans grautinn ennþá.“ Daginn eftir AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.