Tíminn - 23.09.1975, Side 7
Þriðjudagur 23. september 1975
TÍMINN
7
Bárujárnið og kenningar Einars
Pálsssonar áhugaverðast á íslandi
Buckminster Fuller, arkítekt,
skdld og rithöfundur
Það er liklega ekki auðvelt að
ætla honum Buckminster Fuller
bás i veraldarsögunni, á nafn
hans að finnast undir arkitektúr,
verkfræði, eðlisfræði, skáldskap,
eða jafnvel guðsorði? Við hér
flokkum- hann undir listamenn,
skáld og teiknara.
Til þess að gera grein fyrir
Buckminster Fuller þarf liklega
margar bækur, þvi ekki þyrfti
aðeins að lýsa litrikum ferli,
heldur lika margvislegum
kenningum og speki.
Við hittum Fuller á höteli hans i
Reykjavik á dögunum, en hér
hafði hann verið að halda fyrir-
lestra og boða kenningu sina
bjartsýni og við snerum okkur
svo að segja beint að efninu, hvað
honum hefði fundizt athyglis-
verðast á íslandi.
— Ég veit það ekki. Ég gagnrýni
ekki, heldur sinni jákvæðum hlut-
um. Ef til vill er bárujárnið
merkilegasti hluturinn i
arkitektur á íslandi. Menn
byrjuðu að valsa járn árið 1851 og
bárujárnið varð til árið 1870.
Hörður Ágiistsson segir mér aö
þaö hafi verið komið til Íslands
þegar árið 1875og árið 1880 er það
komið svo að segja á öll hús i
Reykjavik.
— Ég tel þetta makalaust.
Bárujárnið gerir húsin fögur,
allar þessar beinu, lóðréttu llnur
og þökin verða lika falleg.
Ég ætla að skrifa bók um
bárujárnið á íslandi, og þá fæ ég
menn til þess að aðstoða mig við
að taka myndir.
Annars er húsgerð á Islandi
5000 árum á eftir timanum, rétt
eins og i öðrum menningar-
löndum, en bárujárnið, um það
gegnir öðru máli.
— Nu ert þú liklega frægastur
fyrir framtiðarhús og fyrir
hvelfingar, geodesic. Hvenær
hófst þú handa við húsgerð?
— Það er erfitt að segja hvenær
þetta raunverulega byrjaði. Ég
fluttist tíl Chicago árið 1927 og hóf
þá að sinna vissum hugmyndum i
byggingalist. Kunnust eru hvolf-
þökin, eða hálfkúlurnar,
geodesic, sem núna eru notaðar
um allan heim. Ennfremur gerði
ég tilraunir með fullkomið
Ibúðarhús. Meginkostur slikra 1
bygginga er að þær eru léttar,
vega aðeins 1:10 af venjulegu
húsi.
— Mér er nær að halda að til séu
um 100.000 hálfkúlur af þessari
gerð og þær er að finna I öllum
mögulegum löndum, lika á ís-
landi. Radarstöðin á Stokknesi
og á Miðnesheiði eru með svona
hús um loftnetin.
— Þekktasta byggingin þessarar
gerðar er ef til vill sýningarskáli
Bandarikjanna á heimssýning-
unni I Kanada.
Þessar byggingar eru nú
notaðar til margvi'slegra hluta,
fyrir söfn, vöruhús, iþróttahús og
hvaðeina.
Meginkosturinn við þessar
byggingar er að þær eru
auðreistar og þeir sem reisa þær
þurfa ekki að kunna neitt. Villi-
menn geta reist þessi hús og eru
fljótari að þvi' en faglærðir menn.
— Hvað með styrkleika?
— Ég hafði reiknað það út, að
kúla, gerð úr jafnarma
þrihyrningum væri sterkasta og
„náttúrulegasta” byggingiq, sem
hægt væri að reisa. Teningslaga
byggingar eru misþyrming á
vissum lögmálum. Hyrna
(mjólkurhyrna) er stöðug, en
ferna er það ekki. Það kemur i
ljós að náttúran notar sömu lög-
mál. Frumstæðir menn,
svertingjar, indiánar og
eksimóar nota kúluformið i húsa-
gerð oghús þeirra eru létt og þola
ótrúlegustu veður.
— Bandariski herinn hefur notað
þessihús min á erfiðum svæðum i
norðurhéruðum. Þessi hús höfðu
þá kosti að það var unnt að reisa
þau á svipstundu og þau þoldu
veður betur en önnur hús.
— Sem dæmi um styrkleikann er
að bandariski flotinn missti allar
sinar byggingar I hvirfilvindi á
eyjunni Okinava fyrir nokkrum
árum, nema tvö kúluhús. Hvers
vegna? Þegar loftþrýstingurinn
fellur mjög ört úti, þá þenjast
kassahúsin út og reyna að breyta
sér i kúlur, en það þola þau hins-
vegar ekki. Þessi þrýstingsmun-
ur vinnur ekki á kúluhúsunum.
Flotinn reyndi lika að nota „upp-
blásnar” hvelfingar um radar-
loftnet, þeim var haldið uppi með
loftþrystingi, sem var meiri inni
en úti. Þessir dómar þoldu ekki
hvirfilvinda, þvi' þeir þöndust
bara út, þegar loftþrýstingurinn
úti féll og þá tættust þeir i sundur.
Fuller og skólakerfið
— Gekkst þú ekki i skóla?
— Jú, það gerði ég. Það er dálitið
orðum’aukið, að ég sé algjörlega
óskólagenginn. Ég komst i
■Harvard University, en náms-
brautirnar þar hentuðu mér ekki.
Ég er enn viðriðinn Harvard, á
sæti I vi'sindaráði skólans svo eitt-
hvað sé nefnt.
Siöan lærði ég verkfræði i
sjóliðsforingjaskóla bandariska
flotans i Maryland. Ekki varð ég
samt arðmiráll, heldur sneri mér
að öðru. Frá árinu 1927 hefi ég
fengizt algjörlega við eigin hug-
myndir.
1 fyrstu var starf mitt einkum á
sviði léttbygginga. Ég smiðaði
framtiðarbil árið 1933. Hann var
straumlinulaga og rann á þrem
hjólum. Þessi bill náði 120
kflómetra hraða á klukkustund og
eyddi rúmum 10 litrum á
hundraðið. 1 þá daga voru bif-
reiðar þungar og kassalaga, eins
og húsin, og vélarnar máttu sin
litils gegn.
— Hvað er aðalstarfið núna?
— Ég ver miklum tima til fyrir-
lestrahalds. Ég kynni hug-
myndir minar og reyni að hvetja
unga fólkið, visindamennina til
þess að reyna nýjar leiðir. Við lif-
um I veröld, sem er full af svar-
sýni. Orkulindir okkar eru senn
að tæmast, segir það og menn
leggja fram uggvænlegar birgða-
tölur fyrir heiminn.
Ég reyni að hvetja menn
til bjartsýni og til að leita nýrra
leiða. Hugsum okkur hve mikið
má spara með visindum.
Gervihnöttur sem vegur eitt eða
tvö tonn getur „afgreitt” tug-
þúsundir simtala milli heimsálfa
þar sem hann svífur umhverfis
jörðina. Hafa menn reiknað út
hve mörg þúsund lestir af kop-
ar þyrfti til þess áð flytja þessi
simtöl meö sæstrengjum og öðr-
um simalinum?
— Við getum sumsé verið bjart-
sýn, þvi við getum gert miklu
meira fyrir minna ef við einbeit-
um okkur að hlutunum.
Buckminster Fuller hefur
dvalizt á Islandi i 10 daga. Hann
hefur flutt fyrirlestra af miklum
eldmóði. Á sunnudaginn var hélt
hann fjölmennan fyrirlestur i há
skólanum og annan á vegum Is-
lenzk-ameriska félgsins. Hann
hefur hitt hér að máli ýmsa
frammámenn i visindum og list-
um. Baráttumenn hér á landi i
vistfræði og húsafirðun svo eitt-
hvað sé nefnt. Eitt af þvi sem
vakti mesta athygli Fullers voru
kenningar Einars Pálssonar rit-
höfundar á sögu og menningu
Norðurlandaþjóðanna. Hvatti
hann Einar eindregið til þess að
afla skoðunum sinum fylgis á al-
þjóðasviðinu.
Buckminster Fuller hélt
heimleiðis á laugardag.
Jónas Guðmundsson.
Buckminster Fuller við hvolfbygginguna I Laugardal. (Timamynd GE)
Hvolsvellingar -
Rangæingar
Tónlistarskólinn á Hvolsvelli hefur starf-
semi sina i byrjun október.
Innritun fer fram i Gagnfræðaskólanum á
Hvolsvelli kl. 4-7, 24. og 25. september.
Simi 5171.
Skólastjóri.
AuglýsiC i Ttmanum
Tímaritum lifsambönd viö
aörar stjörnur. Kemur út 5
sinnum á þessu ári.
Áskriftarverð kr. 500,00.
Gerist áskrifendur.
Útgefandi Félag Nýals-
sinna, pósthólf 1159,
Reykjavík.
Einnig er tekið á móti
áskriftum í símum 4-10-06
og 40-765.
Akraneskaupstaður -
Skrifstofustörf
Skrifstofustörf við barna- og gagnfræða-
skóla Akraness, eru hér með auglýst laus
til umsóknar.
Hálft starf i hvorum skóla.
Umsóknarfrestur til 5. október n.k.
Nánari upplýsingar á bæjarskrifstofunum
á Akranesi.
Bæjarstjóri.
Eggjaframleiðendur athugið:
Þeir viðskiptavinir Alifuglabúsins að Teigi i Mosfellssveit sem
æt(la sér að kaupa 2ja mánaða eða dags gamla unga á næsta ári,
vinsamlegast geri pantanir sem fyrst i sima 6-61-30.
Tvær stúlkur óskast
til starfa i Iðnó 1. október n.k. Vaktavinna,
herbergi og fæði á staðnum.
Upplýsingar i sima 1-23-50.