Tíminn - 23.09.1975, Page 13
Þriðjudagur 23. september 1975
TÍMINN
13
ImEiÍÍ.iISiÍiÍ,.
Árásarmenn og fórnar-
lömb
Það hefur verið sagt, að lengi
geti vont versnað, og mikið mun
vera hæft i þvi.
Það er mi sjálfsagt að bera i
bakkafullan læk, að fara að
minnast á árásarhneigð sumra
manna, en sem kunnugt er, þá
verða fómarlömb slikra manna
oft og tiðum að láta óþyrmilega
i minni pokann.
Ýmsir álita, að nöfn og
heimilisföng þeirra þokkapilta,
er ekki geta séð saklaust fólk i
friði, ætti að birta — og jafnvel
lika mynd af þeim. Sumir hafa
mótmælt þeirri refsiaðgerð, og
borið þvi við, að það myndi
koma sárt við þeirra aðstand-
endur að sjá ástvini sina brenni-
merkta.
JU, satt getur það verið en
samt hygg ég, að ástvinir
óþokkanna myndu tæplega liða
meira, en fórnarlömbin, sem
verða fyrir barðinu á þessum
þrælmennum. Og þarna er nU —
ef satt skal segja — komið að
hinu öfgafulla umburðarlyndi,
sem næstum þvi gerir þá rétt-
lausa, sem eru svo óheppnir að
lendá i klóm illvirkjanna, og
eiga þá á hættu að verða
misþyrmt svo fólskulega, að
þeir verði örkumla ævilangt.
Þessi þrælmenni hafa lika það
til, að ganga að herfangi sinu
með oddi og egg, eða jafnvel að
sýna banatilræði.
Það er vist um það, að nU er
ekki viðhöfð hörð lagarefsing
gagnvart þessum ódáðamönn-
um. Ég hygg að miklu fremur
mætti segja, að refsingin gagn-
vart illmennum þessum sé alltof
væg.
Það má vel vera, að fanga-
geymslur séunU orðnar of fáar,
og einnig að fjölga yrði lög-
regluliði, þar sem svo virðist
sem afbrotamönnum fari nU
fjölgandi.
En hvert stefnir i þjóðlifi
okkar, ef þarna sannast hið
fomkveðna: „Lengi getur vont
versnað”? Það virðist a.m.k.
svo,að varnarlaust fólk — og þá
ekki sizt gamalmenni — geti
tæplega verið óhultum lif sitt og
limi vegna þessara illfygla. Og
þessir friðsömu borgarar geta
jafnvel tæplega verið með öllu
óhræddir innan dyra á heimil-
um sinum.
Þótt ýmsir tali um umburðar-
lyndi gagnvart ómennum þess-
um, þá er það alveg áreiðanlegt,
að umbyrðarlyndið á ekki alls
staðarheima. Og eitt ervist, að
menn, sem eru stórhættulegir
friðsömum borgurum þarf
alveg að taka Ur umferð.
Ég veit satt að segja ekki
hvað er óforsvaranlegt, ef ekki
það, þegar slikir menn eru
látnir ganga lausir. -E.G.
Stóðréttir
á Norður-
landi í
vikunni
— Melarétt í
Fljótsdal
á föstudag
SJ-Reykjavik Guðmundur Jósa-
fatsson hjá BUnaðarfélagi tslands
sendi okkur upplýsingar um
helztu stóðréttir norðanlands, en
þær eru sem hér segir:
Stafnsrétt miðvikudaginn 24.
sept.
Mælifellsrétt laugard. 27. sept.
Reynistaðarétt sunnud. 28. sept.
AuðkUlurétt, Undirfellsrétt og
Viðidalstungurétt 28. sept.
I skránni um fjárréttir, sem
birtist i blaðinu á laugardag, var
ekki greint frá réttum á Austur-
landi Þær eru flestar afstaðnar.
Ein stærsta réttin er þó eftir —
Melarétt i Fljótsdal, sem verður
föstudaginn 26. september.
Aðatfundur Rauða kross Islands 1975
r
Aætlaðar tekjur RK 87,5
milljónir króna
Aðalfundur Rauða kross Is-
lands var haldinn i Reykjavik
dagana 13.-14. september i nýjum
höfuðstöðvum félagsins að Nóa-
tUni 21 Reykjavik.
Formaður félagsins, Björn
Tryggvason, setti fundinn og
bauð 75 fulltrUa 22 deilda vel-
komna til fundáríns- 6 deildir
sendu ekki fulltrUa á fundinn.
Fundarstjóri var Kjartan J. Jó-
hannsson Ur Kópavogi.
A fundinum voru lagðar fram
skýrslur og reikningar um
starfsemi félagsins. Formaður
flutti skýrslu stjórnar, og kom i
henni fram, að vöxtur félagsins
hefur verið mjög ör undanfarin
ár, starf i deildum hefur vaxið
mjög, nýjar deildir stofnaðar, og
viða er starf i undirbUningi Uti um
landið. Félagatala hefur vaxið
mjög undanfarin ár, og almennur
áhugi virðist vera um að hrinda i
framkvæmd samkomulagi þvi,
sem Almannavarnaráð og Rauði
krossinn gerðu með sér um
verkaskiptingu, ef til neyðar
kæmi. Rekstur sjUkrahótels hefur
gengið betur en vænta mátti og
sjUkraflutningar Rauða krossins
hafa eflzt. Þá hefur undirbUningi
nýrra verkefna miðað nokkuð á-
leiðis, og ber þar hæst stofnun
hjálpartækjabanka og nýtt
kennslukerfi i skyndihjálp og að-
hlynningu sjúkra i heimahUsum.
Erlend samskipti hafa aukizt
verulega og RKI lagt sitt af
mörkum til eflingar neyðarvarna
með því að kosta Utgáfu á nýrri
alþjóðlegri handbók i neyðar-
vörnum, sem nU liggur fyrir i
handriti.
Arni Björnsson, gjaldkeri fé-
lagsins, lagði fram endurskoðaða
reikninga félagsis. Hagur félags-
ins er mjög góður og öll undir-
staða þess mjög styrk fjárhags-
lega. Félagið hefur fest kaup á
svo til allri húseigninni á horni
Skipholts og NóatUns, þar sem
SjUkrahótelið, skrifstofur félags-
ins og kennslusalur eru til hUsa,
þar er og hjálpartækjabanki fyr-
irhugaður.
Olafur Mixa, formaður fjár-
hagsnefndarfélagsins, lagði fram
fjárhags- og framkvæmdaáætlun
félagsins 1975-76. Var hUn sam-
þykkt. 1 fjárhagsnefnd félagsins
sátu auk Ólafs, Helga Einarsdótt-
ir og Árni Björnsson. Sam-
kvæmt henni eru áætlaðar tekj-
ur ársins 87.5 milljóir króna.
Renna 9.2 milljónir króna beint til
deilda, skv. lögum félagsins, og
aðrar 9.2 til sérstakra stærri
verkefna, sem deildir hafa á
prjónunum. 14 verkefni, sem 10
deildir hafa á prjónunum, voru
samþykkt á þessu ári. Stærsti lið-
urinner vegna kaupa á tækjum til
sjUkraflutninga á vegum Reykja-
vfkurdeildar, en til verkefna á
vegum deildarinnar voru veittar
5.860 þUsund krónur. Af öðrum
verkefnum var aðallega um að
ræða kaup á sjUkraflutningatækj-
um. Sambærileg áætlun var sam-
þykkt fyrir næsta ár. Þá var og
samþykkt að tekjuafgangi þessa
og næsta árs, að upphæð 7.7
milljónum króna, skyldi á næsta
ári varið til eftirtalinna verkefna:
hjálpartækjabanka (2.6 millj.),
kaupa á blóðsöfnunarbifreið (2.5
millj.), skyndihjálparkerfis (1.0
millj.), neyðarvarna (0.4 millj.).
kennslukerfis i aðhlynningu
sjUkra (0.2 millj.) og styrks til
rannsóknaá heilsugæzlu aldraðra
(0.5 millj.). Sambærileg áætlun
var gerð fyrir 1977, en þá er gert
ráð fyrir 8.7 millj. kr. tekjuaf-
gangi.
1 stjórn voru kosin: Björn
Tryggvason formaður, i aðal-
stjórn til fjögurra ára Kjartan J.
Jóhannsson Kópavogi, Ragnheið-
ur Jónsdóttir Egilsstöðum, Jónas
B. Jónsson Reykjavík og Njáll
Guðmundsson Akranesi. Fyrir i
aðalstjórn eru til næstu tveggja
ára: Arinbjörn Kolbeinsson
Reykjavik, Gisli Ólafsson Akur-
eyri, Ólafur Mixa Reykjavik og
Ragnheiður Guðmundsdóttir
Reykjavik. I varastjórn eru: Alda
Jónsdóttir Njarðvik, Benedikt
Blöndal Reykjavik, GuðrUn Holt
Reykjavik,, Lovias Ibsen SUg-
andafirði, Ólafur Helgason Vest-
mannaeyjum, Sigurjón Jó-
hannesson HUsavik, Sigriður
Helgadóttir Reykjavik og Þórir
Stephensen Reykjavik. Varafor-
maður félagsins hefur verið kos-
inn Arinbjörn Kolbeinsson, gjald-
keri Ólafur Mixa og ritari Jónas
B. Jónsson.
Á fundinum lagði fram-
kvæmdastjóri félagsins fram
nýja skýrslu, sem gerð hefur ver-
iðum alla starfsemi Rauða kross-
ins i heiminum, bæði yfir hjálpar-
störf, stofnanir félagsins og al-
þjóðafundi, auk athugunar á
starfsemi landsfélaga og þær til-
lögur, sem helztar hafa komið
fram um endurbætur á starfsem-
inni. Þeir þættir skýrslunnar,
sem fjalla um landsfélög Rauða
krossins, voru teknir til umræðu i
5 hópum. Skiluðu þeir áliti til ný-
kjörinnar stjórnar, og má bUast
við endurbótum á félaginu i sam-
ræmi við margar framkomnar
tillögur og ábendingar.
Fundarmenn sóttu boð heil-
brigðismálaráðherra i sambandi
við aðalfundinn.
ef þig
Nantar bíl
Til að komast uppí sveit.út á land
eða i hinn enda
borgarinnarþá hringdu í okkur
4L1L7\ ál
tí, \ n j étn
LOFTLEIDIR BILALEIGA
Stærsta bilalelga landsins
<2^21190
DATSUN
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Miöborg
Car Rental « q , qai
Sendum l-94-92|
Ferðafólk! f
Við sækjum
ykkur á flugvöllinn,
ef ykkur vantar bíl á
leigu.
BÍLALEIGAN
IEYSIR
CAR RENTAL
Laugaveg 66
2-44-60 & 2-88-10
FERÐABILAR hf.
Bílaleiga, simi 81260.
Fólksbílar —
stationbilar —
sendibílar— hópferða-
bílar.
Erum fluttir
meö starfsemi okkar á
Laugaveg 118, Rauðar-
árstígsmegin.
BÍLALEIGAN
EKILL
SÍMAR: 28340-371991
Ford Bronco VW-sendibilar
Land/Rover VW-fólksbllar
Range/Rover Datsun-fólks-
Blazer bilar
FFSÍ byggir í Borgartúni
J.G. Reykjavik — Árið 1969, 17.
október, sótti Farmanna- og fiski-
mannasambandið um byggingar-
lóð viö BorgartUn 18, Reykjavik.
Árið 1969 leið án þess að nokkuð
gerðist i málinu, en 18. ágUst 1970
var samþykkt af borgaryfir-
völdum að gefa sambandinu kost
á lóðinni BorgartUn 18. Er hUn
4.409 fermetrar að stærð.
Þegar Uthlutun fór fram, stóðu
enn ibUðarhUs á lóðinni, en bUizt
var viö, að áriö 1971 yrði lóðin til-
bUin til þess að hefjast handa um
býggingu, en erfiðlega gekk aö
fjarlægja hUsin, þar sem hUsnæð-
ið var setið fólki, sem ekki átti völ
á öðru hUsnæði i bili.
Stóð svo allt fram til haustsins
1974, að lóðin er rýmd og endan-
lega gengið frá Uthlutun.
óli Asmundsson arkitekt hef-
ur teiknað hUsið, og er nU hugur
manna þannig stefndur, að fram
skal sækja i byggingarmálum.
I hUsinu munu Farmanna- og
fiskimannasamband Islands og
aðildarfélög sambandsins hafa
aðsetur, ásamt Sparisjóöi vél-
stjóra.
NORÐUR