Tíminn - 05.10.1975, Qupperneq 3
Sunnudagur S. október 1975
TÍMINN
3
OSKYNSAMLEG
RÁÐSTÖFUN, SEM KOSTAR
BORGARBÚA HUNDRUÐ
MILLJÓNA KRÓNA
segir Kristján Benediktsson um gatnagerðargjöldin í Kringlubæ
BH-Reykjavik — A fyrsta fundi
borgarstjórnar eftir sumarleyfi,
sem haldinn var sl. fimmtudag,
gerði Kristján Benediktsson
borgarfu lltrúi Framsöknar-
flokksins grein fyrir máli, sem af-
greitt var i borgarráði, meðan
borgarstjórn var I sumarleyfi, en
það var úthlutun lóðar I nýjum
miðbæ fyrir Hús verzlunarinnar
og gatnagerðargjöld i þeim bæj-
arhluta.
Kristján Benediktsson mælti á
þessa leið:
Vegna þeirrar ákvörðunar
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins i
borgarráði að láta þá aðila, sem
standa að byggingu væntanlegs
stórhýsis, sem kallast „Hús
verzlunarinnar”, á nýja miðbæj-
arsvæöinu — Kringlubæ — aðeins
greiða kr. 750 i gatnagerðargjald
á hvern rúmmetra og reyndar
einungis kr. 375 á rúmmetra fyrir
hluta af byggingunni, vil ég að
eftirfarandi komi fram:
1. Hjá Reykjavikurborg miðast
upphæð gatnagerðargjalds við
visitöluhúsið og má vera fyrir
verzlunar-og skrifstofuhús allt
að 10% af kostnaði á rúmm. I
visitöluhúsinu. Samkvæmt
þessu má gatnagerðargjald
fyrir umrætt hús vera kr.
1322.00 á rúmmetra, sem
mundi gera um 40 millj. kr.
miðað við að hálft gjald yrði
reiknað fyrir það rými, sem
verður i kjallara.
Samþykkt meirihluta borgar-
ráðs gerir hins vegar ráð fyrir,
að gatnagerðargjaldið verði
tæpar 23 milljónir króna.
Munurinn varðandi þetta eina
hús er þannig 17 milljónir, en
fyrir hverfið i heild er hér um
hundruð milljóna að ræða.
2. Ég tel, að gatnagerðargjald i
miðbæjark jarna eins og
Kringlubæ megi vera mun
hærra en á öðrum stöðum i
borginni. Ber þar margt til.
Fasteignir eru hætta metnar
og ávaxta sig betur i slikum
miðbæjarkjörnum en annars
staðar. Kostnaður borgarinnar
við skipulagningu Kringlubæj-
arsvæðisins er þegar orðinn
mikill, þótt skipulagningunni
sé hvergi nærri lokið. Reisa
þarf umferðarmannvirki fyrir
Kristján Benediktsson.
hundruð milljóna króna til að
tengja þetta svæði við ytra
gatnakerfið. Þá er ótalinn
kostnaður við gatna- og hol-
ræsagerð inni á svæðinu sjálfu.
3. 750 kr. gatnagerðargjald á
rúmm.i hinum nýja miðbæ við
Kringlumýrarbraut er nánast
hlægilega lágt miðað við þann
mikla kostnað, sem borgar-
sjóður verður að inna af hönd-
um vegna þessa hverfis og
miðað við gatnagerðargjöld
siðustu ára annars staðar i
borginni.
Árið 1973 var gatnagerðar-
• gjaldið á iðnaðar- og .verzl-
unarlóðum kr. 500 á rúmm.
Árið 1974 var sama- gjald 665
kr. á rúmmetra. Árið 1975 á
það svo að vera 750 kr. og það i
miðbæjarkjarna.
Meðalvisitala byggingarkostn-
aðar árið 1973 var 787 stig, en
1157 stig 1974. Nú er bygginga-
visitalan hins vegar 1881 stig.
4. 1 miðbæ Kópavogskaupstaðar
voru gatnagerðargjöld ákveð-
in kr. 1696 á rúmmetra, þótt
þau séu aðeins kr. 678 annars
staðar i kaupstaðnum. Færri
en vildu fengu þó lóðir i miðbæ
Kópavogs, að þvi er bæjarrit-
ari tjáði mér.
5. Tillaga min um, að gatnagerð-
argjald i Kringlubæ verði i
hámarki, eða verulega hærri
en meirihlutinn vill fallast á,
er flutt vegna þess, að ég tel
sanngjarnt og réttlátt, að þau
fyrirtæki, sem þarna ætla að
reisa stórhýsi, taki meiri þátt i
þeim gifurlega kostnaði, sem
skipulag, holræsa- og gatna-
gerð og umferðarmannvirki
kosta borgarsjóð. Þeim, sem
þarna byggja, verður lika
sköpuð alveg sérstök aðstaða,
sem enga hliðstæðu á annars
staðar i borginni.
6. Þóttborgarráðsmönnum Sjálf-
stæðisflokksins sé e.t.v. rikt i
huga, að þeim aðilum, sem
standa að byggingu hinnar 40
þús. rúmmetra verzlunarhall-
ar, sé ekki iþyngt um of með
háu gatnagerðargjaldi, verða
þeir að gera sér grein fyrir, að
hér er um grundvallarákvörð-
un að ræða, sem taka verður
mið af i framtiðinni, þegar
gatnagerðargjald er ákveðið
fyrir aðrar byggingar.
7. Ég mótmæli þvi harðlega, að
sú stefna skuli mörkuð, að
borgarsjóður beri meginhluta
þess kostnaðar að gera mið-
bæjarsvæðið við Kringlumýr-
arbraut byggingarhæft og að
þeim aðilum, sem þar munu
reisa stórhýsi, skuli ætlaður
svolitill hlutur iþeim kostnaði.
Borgarstjóri, Birgir Isleifur
Gunnarsson, varð fyrir svörum,
og upplýsti, að innan skamms
yrði gatnagerðin i 1. áfanga
Kringlubæjar boðin út, og væri
hér um að ræða yfirbyggðar
göngugötur og kostnaðarsöm
bilastæði, sem gerð væru á kostn-
að lóðahafa sjálfra. Hins vegar
væri hannuggandi um áhugaleysi
væntanlegra lóðahafa fyrir að
setjast þarna að, þvi að mörgum
hrysi hugur við sameiginlega
kostnaðinum, en það væri þýð-
ingarmikið, að góð og öflug fyrir-
tæki fengjusttil að koma þangað.
Borgarstjóri upplýsti, að kostn-
aður við gatna- og holræsagerð i
1. áfanga nýja miðbæjarins næmi
224 millj. kr., en gatnagerðar-
gjöld i sama áfanga myndu nema
315 millj.
Kristján Benediktsson kvað
traust og góð fyrirtæki hljóta að
vera fær um að borga fyrir verð-
mæti sem þeim væri lögð upp i
hendurnar, og það hefði ekkert
reynt á það, hvort fyrirtæki vildu
byggja þarna. Það væri hins veg-
ar staðreynd, að borgin væri
auralaus, og þvi gæti hún ekki
hafið byrjunarframkvæmdir, og
með þvi að gefa lóðirnar eins og
gert væri, væri haldið áfram að
koma I veg fyrir byrjunarfram-
kvæmdir, af þvi að ekki rættist úr
auraleysinu. Þá benti Kristján á
kostnaðinn við að beina umferð
inn á svæðið og taldi ekki töluupp-
lýsingar segja allan sannleikann.
— Þetta er óskynsamleg og
furðuleg ráðstöfun borgarráðs,
sagði Kristján Benediktsson, og
ekki sú eina, en hér er um að ræða
mistök, sem eiga eftir að kosta
borgarbúa ekki aðeins tugi heldur
hundruð milljóna króna.
Töpuð hross
5 vetra rauð hryssa með hvita stjörnu á
enni, merkt blárri smellu i öðru eyra og
2ja vetra tryppi, steingrátt, ómerkt, töp-
uðust úr girðingu á Kjalarnesi.
Þeir, sem upplýsingar gætu gefið, vinsamlegast hringið I
sima 4-02-93.
Sjúkraþjólfi óskast
nú þegar til starfa við endurhæfingardeild
St. Jósefs-spitalans, Landakoti. Upp-
lýsingar hjá starfsmannahaldi.
Bankastarf
Hveragerði
Starfsmanneskju vantar nú þegar i
Búnaðarbanka íslands, Hveragerði.
Upplýsingar hjá útibússtjóra eða starfs-
mannastjóra bankans.
/... ■ -----------------------------\
NOTIÐ ■
feÁÐBESTA 1
Látið
miðs
TAKA
ÚR YKK
HR
HIjOSSIv—
Skipholti 35 ■ Símar:
-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa
AuglýsicT
i Timanum
Hinn
margumtalaði
og vinsæli
Dtsoiumarkaður
vekur
athygli á ... .
Þaö koma ávallt nýjar
vörur í hverrl viku á
markaðínn
Ótrúlegt
vöruúrval
. i<
verði
Markaðurinn
stendur aðeii
stuttan tíma
TÍZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
fa KARNABÆR
Útsölumarkaðurinh,
Laugavegi 66, sírrii 28155