Tíminn - 05.10.1975, Qupperneq 5
Sunnudagur 5. október 1975
TÍMINN
5
Þegar verkamenn voru að vinna
við hreinsun botnleðju við ós
Desnas, sem er þverá er fellur i
Dnjepr, fundu þeir tiu metra
langan eikarstokk i leðjunni. Er
stokknum, sem var sex tonna
þungur, var lyft um borð i
hreinsunarskipið, sáu menn, að
niu bjarnartennur höfðu verið
reknar inn i stofninn svo þær
mynduðu ferhyrning. Fornleifa-
stofnun visindaakademiunnar i
Ukraniu hefur upplýst að hér sé
um að ræða eina af hinum
„heilögu eikum” Peruns, sem
um 800 stóðu uppreistar við
★
gatnamót i grennd við slafneska
bæi. í höfuðborginni Kiev hefur
aðeins einu sinni fundizt sams
konar eikarstofn, var það árið
1910, en I þann stofn höfðu verið
teknar villisvinatennur. I annál-
um er einnig talað um „heilögu
eikumar”. Perun var einn af
helztu guðum austurslafa fyrir
kristinn tima, og var hann guð
þrumu og eldinga. Pemn var
einnig dýrkaður sem regnguð.
Þegar kristindómurinn kom til
sögunnar, kom spámaðurinn
Elia i stað Pemns.
★
Höfrungarnir
eru merkilegar
skepnur!
Fáar skepnur hafsins hafa
vakið jafnmikla athygli undan-
farin ár og höfrungarnir. Mikið,
en þó um leið mjög litið, er
vitað um þessar merkilegu
skepnur. Meðal annars vita
menn þó, að þessar skepnur
geta fundið 0.15 mm vir i sjón-
um, og geta kafað niður á
nokkur hundruð metra dýpi.
Vlsindamenn, sem starfa i
höfrungasafni i Batumi I Sovét-
rikjunum leggja mikið á sig um
þessar mundir til þess að fá sem
beztar upplýsingar um tauga-
kerfi höfrunganna, og einnig
um heilastarfsemi þeirra. Sam-
kvæmt upplýsingum Andreis
Shevalev, yfirmanns höfrunga-
rannsóknastöðvarinnar, er ekki
fullsannað, að höfrungar hafi
vit. Visindamennirnir reyna nvl,
aö komast að raun um, hvort
þeir séu vitibornir, með þvi að
skapa umhverfi, sem hvorki er
þannig, að eðlisávisun geti
hjálpað skepnunum til þess að
leysa ilr þeim vanda, sem
verður á vegi þeirra, né heldur
áunnir hæfileikar. Visinda-
mennirnir reyna sem sagt að
sjá, hvort vitiö sé það mikið, að
dýrin geti ráðið fram úr þeim
vanda, sem á vegi þeirra
verður. Höfrungarnir eru mjög
félagslyndir og hafa gaman af
að sýna áhorfendum listir sinar,
og fólk hefur gaman af að horfa
á þá. Höfrungarnir, sem þessar
myndir eru af, eru allir I
Batumi-höfrungastöðinni, en
þótt þeir séu upprunnir i Svarta
hafinu, liöur þeim mæta vel I
Batumi. Þriðja myndin, sem
hér ermeð.er af Roin Iosava,
sem starfar að höfrunga-
rannsóknunum i Batumi. Hann
er hér að gefa vini sinum
Perseusi að borða.
„Heilög eik"
fannst á
fljótsbotni
SSjlifil
<vy£.'x ' 'x-.'