Tíminn - 05.10.1975, Page 27

Tíminn - 05.10.1975, Page 27
Sunnudagur 5. október 1975 TÍMINN 27 140 FULLTRUAR Á IÐNÞINGINU 36. iðnþing tslendinga verður haldið i Reykjavik dagana 8.-11. október n.k. Iðnþingið verður sett á Hótel Sögu miðvikudaginn 8. október kl. 14.00. Sigurður Kristinsson málarameistari, for- seti Landssambands iðnaðar- manna, mun setja þingið, enn fremur mun Gunnar Thoroddsen iðnaðarráðherra flytja ávarp. Sérstakir heiðursgestir Lands- sambands iðnaðarmanna munu verða viðstaddir þinghaldið. Eru það þeir Adolph Sörensen múrarameistari, formaður systursamtaka Landssambands- ins i Danmörku, Stig Stefanson optikermeistari og þingmaður, sem jafnframt er formaður hlið- stæðra samtaka i Sviþjóð, og Ei- vind Halle, framkvæmdastjóri norsku samtakanna. Þingfundir munu fara fram i fundarsal Domus Medica, Egils- götu 3, Reykjavik. Fjölmörg mál eru á dagskrá iðnþings að þessu sinni, m.a. verk- og tæknimenntun, iðnþróun og efnahagsmál og ýmis aðstöðu- mál iðnaðarins, svo sem skatta- mál, tollamál og verðlagsmál. Enn fremur verður fjallað um margvisleg önnur málefni, og má þar nefna útflutnings- og markaðsmál, innkaup opinberra aðila, iðnlöggjöfina o.fl. Þetta er i fyrsta sinn sem iðn- þing er haldið eftir allmiklar breytingar, sem gerðar voru á skipulagi Landssambands iðnaðarmanna fyrir tveimur ár- um. M.a. er nú i lögum Lands- sambandsins gert ráð fyrir lengri og meiri undirbúningi þingsins en áður hefur verið, og er iðnþing nú haldið annað hvert ár. Rétt til þingsetu eiga um 140 fulltrúar viðsvegar af landinu. Sérstök dagskrá er fyrir maka iðnþingsfulltrúa, sem munu, meðan þingið stendur, sækja heim nokkur söfn og fleiri staði i Reykjavik, og m.a. fara i hópferð til Hveragerðis. Þinginu lýkur laugardaginn 11. október. ERKINU A VIKUM var ánni veitt aftur i gamla far- veginn, og hófst þá uppfylling skarðsins i stiflunni. Fyrir fram hafði verið gert ráð fyrir að fyll- ingin tæki 3 mánuði, en starfs- menn þeir sem unnu við verkið luku þvi' á 3vikum. Lengd stffl- unnar er um 970 metrar og breiddin efst er 5 metrar. Mesta hæð er 43 metrar og hallinn lóns- megin 1 á móti 1,8. Malbikunar- framkvæmdir við stifluna eru langt á veg komnar. Malbikslögin eru tvö og verður malbikið samtals 53 þúsund fer- metrar lónsmegin. Þegar botn- lokunum verður lokað við stffl- una.mun myndast stöðuvátn sem verður 1,4 milljón rúmmetrar og 15 ferkilómetrar að stærð. Veruleg útflutnings- aukning hjá Álafossi Veruleg aukning hefur orðið á út- fiutningi ullarvöru frá Aiafossi hf. á þessu ári. Kemur þessi aukning útflutningsins fram á nær öllum framieiðslu- og söluvörum fyrir- tækisins. Mest er þó aukningin i tilbúnum fatnaði. Lætur nærri, að fyrirtækið sé á árinu búið að flytja 50 þúsund flikur út, og fyrir liggja það verulegar pantanir til afgreiðslu á næstu mánuðum að afgreiðslugeta fyrirtækisins er þar fuilnýtt. Fatnaður sá, sem Álafoss hf. flytur út er aðeins að litlu leyti framleiddur hjá fyrirtækinu sjálfu. Að framleiðslu þessa fatnaðar standa prjóna- og saumastofur, sem staðsettar eru viðsvegar um landið. Hefur Ala- foss hf nú um nokkurra ára skeið haft samvinnu við þessi fyrirtæki og séð um útflutning á fram- leiðsluvöru þeirra. Hefur þessi tilhögun komið sér Rauða kross deild stofnuð í Austur -Skaftafellssýslu Stofnfundur Rauða kross deildar Austur-Skaftafellssýslu var nýlega haldinn i Gagnfræða- skólanum á Höfn, Hornafirði. Formaður undir búnings- nefndar, séra Gylfi Jónsson, setti fundinn. Fundarstjóri var kosinn Friðjón Guðröðarson lögreglu- stjóri. Eggert Ásgeirsson framkv.stj. Rauða kross Islands hélt erindi um Rauða kross starf og hugsanl. verkefni deilda og starfsaðferðir, en starf Rauða kross deilda fer að mestu leyti eftir þörfum i héraði, enda þótt eitt verkefni sé öllum deildum sameiginlegt, neyðar- varnir. Óhugnanlegur hraði Undanfarna daga hefur lögreglan verið með skeið- klukku við hraðamælingar á helztu leiðum út úr borginni og margir ökuþórar reynzt á alltof miklum hraða. Sá hraðasti á Vesturlandsvegi reyndist á 135 km hraða á klukkustund, og á Suður- landsvegi mældist mestur hraði 115 km. Einn reyndist vera á 80 km hraða á Range Rover, og hefði kannski ekki verið svo tiltakanlegt, ef han hefði ekki verið með annan bil aftan i, og rikti veruleg skelfing i þeim bil. Formaður var kosinn séra Gylfi Jónsson og með honum i stjórn voru kosin Egill Jónasson, Ingi- björg Guðmundsdóttir, Ingólfur Arnarson og Sigriður Guðmunds- dóttir. Á fundinum hélt Skúli Johnsen borgarlæknir erindi um heilsu- gæzlustöðvar og þátttöku Rauða kross deilda i starfi þeirra. Skúli skýrði frá umfangsmiklu hlut- verki heilsugæzlustöðva og mikil- vægi þess að starfið sé aukið og gert fyllra með þátttöku af hálfu sjálfboðins liðs. Þar gæti verið um margt að ræða^ s.s. blóð- gjafarsveitir, rekstur sjúkrabif- reiða, heimilishjálp, útlán hjálpartækja, námskeiðshald og heilbrigðisfræðsla. Tengsl Rauða kross deildanna og heilsugæzlu- stöðvanna yrðu vart of náin, þar sem tilgangur beggja sé heil- brigðis- og félagsleg velferð ibúa héraösins i bezta skilningi orðanna. Guðjón Petersen, fulltrúi Almannavarna, tók næstur til máls og tilkynnti fundarmönnum þau tiðindi að gengið heföi verið frá stofnun almannavarna- nefndar á Höfn þá um daginn. Hann skýrði frá samstarfi Almannavarnarráðs rikisins og RKI og samkomulagi þvi sem þessir aðilar gerðu með sér fyrir um ári og mikilvægu hlutverki Rauða kross deida i neyðar- vörnum Rauða krossins, m.a. að undirbúa skráningu fólks og sjá um að hægt væri að veita fólki fæði, klæði og húsaskjól ef til neyðar kynni að koma. Þyrfti að undirbúa starfið með ýmsum hætti og hafa á að skipa þjálfuðu liði til aö sinna hinum ýmsu verkefnum. Urðu miklar umræður um erindi ræðumanna, hvernig vinna mætti að málum þessum i sýslunni og að hvaða leyti væri hægt að vinna að lausn þeirra með aðst. Rauða krossins. Rætt var um hin ýmsu verkefni og var talið einna brýnast að Rauða kross deildin tæki að sér sjúkra- flutning, undirbuning að heilsu- gæzlustarfi og tæki höndum saman við björgunarsveitina á Höfn að hinum ýmsu verkefnum sem sameiginlegur áhugi væri fyrir. Kvennadeild Slysavarna- deildarinnar á Höfn gaf fundar- mönnum kaffi og meðlæti. Þeir sem gerast félagar i Rauða kross deildinni i Austur- Skaftafellssýslu fyrir áramót teljast stofnfélagar. kérndum Kerndum. rotendi/ LANDVERND vel fyrir báða aðila — skapað aukna fjölbreytni i atvinnulifi þeirra staða, þar sem fatnaðurinn er framleiddur og ennfremur ■ skapað nýja möguleika fyrir band- og vefnaðarframleiðslu Alafoss hf. Allveruleg útflutningsaukning hefur einnig orðið á handprjóna- bandi fyrirtækisins. Að venju á hespulopi sinn stærsta þátt þar i. Á árinu hefur fyrirtækið kynnt nýjar ullarbandstegundir, sem þegar hafa haslað sér völl viða um lönd og virðast ekki ætla að verða siður vinsælar en hinn gamalkunni hespulopi. Stöðugt er unnið að markaðs- könnunum og markaðsrannsókn- um á vegum Álafoss hf. A þessu ári hefur markaðskönnunin beinzt að þvi að markaðssetja vefnað fyrirtækisins s.s. áklæði og værðarvoðir. Verða þessar rannsóknir efldar á næstu mánuðum, enda bendir margt til að um verulegan út- flutning geti orðið að ræða á þess- um framleiðsluvörum fyrirtækis- ins. 2,5% til vinnslu í hæsta verð- flokki 1 sambandi við frétt blaðsins á laugardaginn af vinslu aflans hjá BÚR og vinnsluaðstöðu fyrirtækisins skal tekið fram, að þar sem segir í fyrirsögn, að að- eins 2.5% aflans fari i fyrsta flokk.er áttviðhæsta verðflokk, þ.e. að ekki er unnt að vinna nema þetta brot aflans i neytendaumbúðir til út- flutnings. Þá skal einnig tekið fram, að öll meðferð sjómanna á skipum BÚR á fiskinum er góð og vinnslan sjálf er sömuleiðis ágæt. Hins vegar er aðstaða fyrirtækisins svo slæm, eins og fram kemur i ræðu Páls Guðmundssonar, sem birt er á slðu sex i laugardagsblaðinu, að það kemur niður á hráefninu. LYKUR 31. OKTÓDER Útboð stjórn verkamannabústaða óskar eftir til- boðum i málun 308 ibúða, úti og inni, i Seljahverfi i Reykjavík. Útboðsgögn verða afhent i Mávahlið 4, Reykjavik, gegn 5.000,- kr. skilatrygg- ingu. Tilboð verða opnuð föstudaginn 24. okt. 1975, á skrifstofu stj. verkamannabústaða Mávahlið 4. Kjöttunnur úr plasti 35 iitra kr. 1310 50 litra kr. 1835. LIVERPOOL Laugavegi 18A

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.