Tíminn - 05.10.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 5. október 1975
TÍMINN
31
ll 1
llfllll
Rósalind Schneider:
AMERÍSKAR ABSTRAKT
KVIKMYNDIR
Menningarstofnun
Bandarikjanna bauð
fáeinum gestum til að
sjá kvikmyndir eftir
bandarisku listakon-
una Rosalind Schneid-
er. Myndir þessar eru
sýndar undir yfirlýs-
ingunni: Tilraun með
filmur sem listform.
Undanfarin 11 ár hefur frii
Schneider unnið að listmálun og
sem kvikmyndastjóri, eða öllu
heldur framleiðandi og hefur
farið eigin leiðir i von um að
finna nýtt listform, þótt ekki sé
hiin upphafsmaður að afstrakt-
kvikmyndum, þær voru kunnar
fyrir nokkuð löngu siðan.
Ég var i réttum og kom of
seint á sýningu ungfrúarinnar,
hefi þvi vafalaust missúaf ein-
hverju, en sá þó fáeinar filmur,
sem mér þóttu athyglisverðar,
einkum þó og sér i lagi tónlistin,
eða hljóðin. Svona kvikmyndir
eru ágætur vettvangur fyrir
electroniska tónlist, sem vitað
var fyrirfram, þvi Magnús
Blöndal Jóhannsson hefur gert
svoleiðis tónlist við myndir af
eldgosum, sem ef til vill eru það
likasta myndefni frúarinnar af
innlendri framleiðslu.
Eftir þvi sem næst verður
komizt byggist kvikmyndalist
þessarar gerðar á tæknibrögð-
um. Fjórar eða fimm litfilmur
eru lagðar saman, keyrðar
samtimis og skiptingar eru
hugsaðar nógu tiðar til þess að
halda áhorfandanum við efnið.
Út úr þessu koma kynlegar
abstraktsjónir, einhverskonar
súrrealismi lika, en fyrst og
fremst eru hlutirnir ekki i þvi
samhengi, sem við eigum að
venjast.
Þá virðast notuð smásjár-
form, menn skriða um skorið
rauðkálshöfuð, eftir blómum og
kynlegum jurtum. Inn i þetta
blandast svo tónlistin og oft af
unaði.
Þessar filmur Rósalindar
Schneider voru áhugaverðar og
mjög lærdómsrikar, a.m.k.
fyrir myndlistarmenn þvi ýms-
ar samsuður voru athyglisverð-
ar. Nokkuð er samt þreytandi
að horfa á svona myndir lengi,
það gerir menn rjnglaða, jafn-
vel þótt þeir séu ekki að koma úr
réttum. Það var sannarlega lif i
tuskunum á stundum.
Eins og fram kom i upphafi
þessa máls, er litið svo á að
þessi tegund myndlistar sé enn
á tilraunastiginu. Þetta er nýj-
asti ættliðurinn i kvikmynda-
heiminum, en senn eru liðin 150
ár frá upphafi hreyfimynda,
kvikmynda. Engu skal spáð um
það hvort tilraunafilmur Rosa-
lindar Schneider, eða þeirra er
við svona myndlist fást, nái ein-
hverskonar fótfestu i 'daglegu
lifi manna, eða listum. Kannske
var upphafið af electronisku
tónlistinni komiðfrá truflunum i
útvörpum tónskálda, sem námu
nýjan, hreinan tón, sem siðan
þroskaðist eða þróaðist i nýja
hljómkviðu, sem við vildum
ekki vera án, ef til vill lærum við
lika að segja eitthvað nýtt með
svona myndum.þegarfram liða
stundir. En umfram allt,það var
gaman og fróðlegt að sjá þessar
abstraktfilmur hennar Rósa-
lindar Schneider.
Jónas Guðmundsson.
Jazzklúbburinn á
mánudagskvöld
BH-Reykjavik. — Vetrarstarf-
semi Jazzklúbbs Reykjavikur
hefst mánudaginn 6. október kl.
21 og verður fyrsta jazzkvöld
vetrarins að Hótel Loftleiðum.
Stendur til að fá ýmsa fræga er-
lenda jazzleikara til að koma
fram á skemmtununum i vetur,
og er von á Eje Thelin með
grúppu meðal annarra, og að
likindum kemur Dizzie Gillespie
hérvið ájazzkvöldi á leið sinni til
Evrópu.
A mánudagskvöldið kemur
fram Kvintettinn „5 Jazzmenn”
sem er skipaður: Viðar Alfreðs-
son, trompet, Gunnar Ormslev,
Tenor-sax, Carl Möller orgel,
Arni Scheving, e-bassi, og Guð-
mundur Steingrimsson trommur,
ásamt „Blues Company”, sem er
skipaður, Magnús Eiriksson
gitar, Pálmi Gunnarsson el-bass,
Úlfar Sigmarsson piano-orgel og
Björn Björnsson trommur.
Aætlað er aö Jazzkvöld veröi
haldin hálfsmánaðarlega i vetur.
Drúttarvélar seldu
fyrir313milljá s.l.ári
AÐALFUNDUR Dráttarvéla hf.
fyrir árið 1974 var haldinn fyrir
nokkru. Þar kom m.a. fram, að
heildarsaia fyrirtækisins á árinu
varð 313,1 millj. kr. og jókst um
113,9 millj. frá árinu á undan.
Varð aukningin fyrst og fremst I
sölu Massey Ferguson vinnuvéla.
Seidar voru 202 MF dráttarvélár,
sem var 30% af heildarinnflutn-
ingi dráttarvéla. Einnig voru
seldar 26 MF 50B gröfu- og
moksturssamstæður og hafinn
innflutningur á nýrri gerð slikra
tækja, MF 70. Seldust 7 slikar
samstæður á árinu. Eftir afskrift-
ir varð reksturshagnaður fyrir-
tækisins 9,6 millj.
Stjórn Dráttafvéla hf. var
endurkjörin, en hana skipa Hjalti
Pálsson frkvstj., formaður,
Hjörtur Hjartar frkvstj., varafor-
maður og Agnar Tryggvason
frkvstj., meðstjórnandi. Fram-
kvæmdastjóri Dráttarvéla hf, er
Arnór Valgeirsson, en fastráðnir
starfsmenn fyrirtækisins eru 17.
BRAUN SYNCHRON PLUS
Örþunnt platínuhúðað blað
Það er leyndardómur hins snögga og
mjúka raksturs
Snöggur og mjúkur á
raksturinn aö vera.
Hann á svo sannarlega
ekki aö vera harður og
óþægilegur.
Þess vegna er blaðið húðað
örþunnri platínuhúð og það
er mjúkt þegar það leggst
þétt að húð þinni.
Platínuhúðin er öruggasta
tryggingin fyrir þægilegum,
snöggum og mjúkum rakstri.
Þessi þægilegi, snöggi ogmjúki
rakstur er ástæðan
fyrir þvf, að þér kaupiðog notið
BRAUN SYNCHRON PLUS rakvélina.
Fæst í raftækjaverzlunum í Reykjavik og víða
um land og hjá okkur.— Verð kr. 12.385.
Sími sölumanns er 1-87-85.
BRAUN-UMBOÐIÐ:
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76
Auglýsið í Tímanum
ZDIYIBI
Töíraborðið fyrir allt og ekkert
ZOMBI er sófaborö.
UTSÖLUSTAÐIR:
ZOMBI er sjónvarpsborð. Reykjavík:
ZOMBI er reykborð.
ZOMBI er hljómtækjaborð.
ZOMBI er morgunverðarborð. Akranes:
ZOMBI er skrautborð. Borgarnes:
ZOMBI erá hjólum. Bolungarvík:
ZOMBI ER ALLT.
Fæst í teak, Ijósri og dökkri eik
(wenge lituð).
Bernódus
Kristján Siggeirsson hf. Halldórsson
J L Húsið Siglufjörður: Bólsturgerðin
Híbýlaprýði Akureyri: Augsýn hf.
Dúna Húsavík: Hlynur sf.
Verzl. Bjarg Selfoss: Kjörhúsgögn
Verzl. Stjarnan Keflavík: Garðarshólmi hf.
Verzl. Virkinn,
HÚSGAGNAVERKSMIÐIA
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Kcykjíivik simi 25870