Tíminn - 07.10.1975, Side 11
/ - .
|0 / ___________________________________________________TÍMINN__________________________________ >»r»»iéagMr 7, október 1875. ÞriOJudagur 7. október 1875.__________________________________ TÍMINN 11
Skipasml&astöb Gu&mundar Lárussonar er öflugasta i&nfyrirtæki& á Skagaströnd. Þeir smi&a fisklbáta inni. Hér er
myndarlegur bátur i smi&um. Skipasmi&astö&in hefur mikinn áhuga á aö smiöa fiskiskip úr trefjagleri, eöa trefjaplasti,
sem hefur ýmsa kosti.
Trillan er ennþá sálarskip þeirra Skagstrendinga. Hér standa nokkrar á kambien þær eru sumar hverjar gerftar út
mönnum til hugarhægöar, ekki síöur en til sóknar I sjávarafla.HraöfrystihúsiöHóíanes hf. sést í bakgrunni. Nú hefur
togarinn tekiö viö hráefnisöflun fyrir frystihúsiö aö verulegu leyti.
Sridarfabrikkan sem mala átti gull en malaöi I staöinn atvinnulifiö á Skagaströnd. Þaö uröu sár vonbrig&i aö sildin hún
sást ekki meir, þegar þessi giæsilega sildarverksmiöja var risin af grunni undir Spákonufelishömrum.
GJÖRBYLTING HEFUR
Á SKAGASTRÖND
Skagaströnd hét áður
Höfðakaupstaður og þar
hafði einokunarverzlunin
aðsetur í sinni tið og menn
komu langt að til að verzla.
Höfnin er í skjóli við Spá-
konufelIshöfða en Spá-
konufellsborg er fyrir of-
an. Þarna er nú myndar-
legt kauptún, sem á sér
merkilega sögu.
Meðan Höfðakaupstaður
var eini verzlunarstaður-
inn á þessum slóðum voru
þar mikil umsvif, því
næsta verzlun var á Borð-
eyri og á Hofsósi.
En svo breyttust timar
og nýir staðir komu til sög-
unnar og þegar fram liðu
stundir var verzlunin að-
eins við næstu bæi á
Skaganum og afkoman var
dræm. Allan mátt dró úr
staðnum.
Síldarverksmiðja
án síldar
Það mun hafa verið á fjóröa
áratug þessarar aldar að menn
fóru að hugleiða höfn við Spá-
konufellshöfða. Gjöful fiskimiö
voru fyrir landi, Húnaflóinn fullur
af sild á sumrum, og á fimmta
áratugnum var lagt i mann-
virkjagerð, höfn og sildarfa-
brikku og byggðin var skipulögð
undir nafninu Skagaströnd.
Þarna kom til framkvæmda ný
byggðastefna, reynt var að spá
um framtið hftnda nýjum bæ og
nýju samfélagi manna. En þrátt
fyrir spámannlega framgöngu
yfirvalda rann allt út i sandinn,
þvi sildin, sem allt átti að byggja
á, hvarf i þann mund er mann-
virkjagerö var lokið og svo nærri
skall hurð hælum, að verksmiðj-
an fékk varla sild til að prufu-
keyra vélarnar. Siðan var Skaga-
strönd staður vonbrigða i atvinnu
og sildarfabrikkan gnæfði yfir
önnur hús á staðnum einsog
skrimsli með tómar garnir og
maga.
Byggðastefna
framsóknar
Hér er ekki ráðrúm til þess að
rekja óhamingju sildarleysisár-
anna, né aldarfjórðungs von-
brigði Norðlendinga, en nú hefur
ný byggðastefna séð dagsins ljós
þar sem farið hefur verið að af
meiri hyggindum en nokkru sinni
fyr, en það er stjórnarstefnan
sem tekin var upp af rikisstjórn
Ölafs Jóhannessonar, vinstri
stjórninni, þegar landhelgin var
færð út i 50 sjómilur og keyptir
voru skuttogarar, sem leggja upp
i starfsstöðvar viösvegar um
landið. Ekki vildi þjóöin liklega
vera án þessara framfara nú,
einsog ástatt er i afurðasölu og
verðlagi á nauðsynjum. Fyrir
þetta fengu stjórnarflokkarnir þó
dræmar þakkir i siöustu kosning-
um, en það er önnur saga.
Byggðastefna og stjórnarstefna
vinstri stjórnarinnar gerbreytti
atvinnulifi og afkomu almennings
i strjálbýlinu. Auðvitað voru
áhrifin misjöfn, en llklega hafa
óviða orðið meiri umskipti en á
Sauðárkróki og á Skagaströnd,
Byggðastefnan á Skagaströnd
Rætt við Jón Jónsson, útibússtjóra
ORÐIÐ l
þar sem tókst að útrýma atvinnu-
leysinu, en það var landlægt fyrir.
Við lögðum leið okkar á Skaga-
strönd á dögunum og hittum að
máli Jón Jónsson, útibússtjóra
kaupfélagsins á staönum, en hann
er áhugamaður um margt, er
varðar atvinnu og framtið Skaga-
strandar. Hann hafði þetta að
segja um Skagaströnd og driftina
þar:
Rætt við Jón
' Jónsson, útibússtjóra
— Það hafa orðið mikil um-
skipti á Skagaströnd á seinustu
árum. Eftir að menn höfðu
Grein og
myndir:
Jónas
Guðmundsson
endanlega gefizt upp á sildinni og
miklum vandræðum i atvinnu, þá
var svo komiö að staðurinn var
hreinlega að leggjast i auðn.
Menn fluttust burtu i stórum hóp-
LÍFINU
um til þess að freista gæfunnar á
öðrum stöðum, þar sem atvinna
var meiri. Þessi vonbrigðasaga
spannar nú þrjá áratugi og ég
held að menn reikni ekki lengur
með sild til bræðslu, þótt vonandi
eigi sild eftir aö ganga aftur á
Húnaflóa.
Tvö frystihús
dóu saman —
— Menn telja að sildarverk-
smiðjan á staðnum hafi i rauninni
tafið aðra uppbyggingu i sjávar-
útvegi á Skagaströnd. Auðvitað
hefur alltaf verið gert hér út og
rekin fiskverkun, en hún hefur
aldrei haft nægjanlegt bolmagn
til þess að halda uppi fullri at-
vinnu á staðnum. Hér voru meira
að segja einu sinni starfandi tvö
hraðfrystihús, sem vesluðust upp
af hráefnisskorti. Með þeim var
engin samvinna en þau lognuðust
þó útaf sameiginlega.
— Nú hafa hinsvegar orðið
mikil umskipti á Skagaströnd og
ræður þar mestu stjórnarstefna
seinustu stjórnar.
Mestu munar að hingað fékkst
nýr skuttogari, tiundi togarinn
sem kom frá Japan. Hann hlaut
nafnið Arnar og hefur hann
reynzt mikið happaskip i hvi-
vetna.
— Skuttogarakaupin voru erfið.
Hér voru gerð út tvö litil togskip,
sem voru seld og þannig náðust
endarnir saman og skuttogarinn
kom til Skagastrandar.
Atvinnuleysið
úr sögunni
Það er útgerðarfélagið Skag-
strendingur hf. sem gerir út
togarann. Hluthafar eru menn á
staðnum, almenningur, hreppur-
inn og Hólanes hf., sem rekur
hraðfrystihús og fiskverkun.
Útgerð togarans hefur gengið
mjög vel. Hann hefur ekki orðiö
fyrir neinum óhöppum og hefur
aflað vel. A seinasta ári mun
hann hafa verið með næst mest
aflaverðmæti minni togaranna,
sem gerðir eru út á Norður- og
Vesturlandi.
Að visu lagði togarinn upp
annarsstaðar en á Skagaströnd á
seinasta vetri, þar sem greiðslu-
erfiðleikar voru miklir hjá frysti-
húsinu, en vonandi stendur það
einnig til bóta.
— Kringum þennan togara er
blómlegt atvinnulif og peninga-
velta, sem ekki var hér fyrir. At-
vinnuleysi var úr sögunni.
Annar meginþátturinn i at-
vinnu manna á staðnum er rækju-
vinnsla og rækjuveiðin. Rækju-
verksmiðja hóf hér framleiðslu á
siðari hluta ársins 1973 og hefur
starfað siðan. Þaö er Rækju-
vinnslan hf. sem rekur verk-
Framhald á bls. 19
„Veit um 10 fjölskyldur sem
vildu flytjast hingað, ef hús
næði væri fyrir hendi..."
— Viöinælandi Timans, Jón Jónsson.útibússtjóri kaupfélagsins. —
Hann er einnig stjórnarformaöur rækjuvinnslunnar og trillueigandi og
sjóma&ur i fristundum á sumrin.
Rækjubátaflotinn i höfn á Skagaströnd. Rækjubátar Skagstrendinga munu vera 7-8 talsins.
Nýja rækjuvinnsian er mikiö hús og minnir á listaverk I litum og formum frd bænum séö. Þarna hefst rækjuvinnsla og
niöursuöa á rækjum, þegar vertiöin hefst. Ekkert hefur veriö til sparaö til þess að gera verksmiöjuna sem bezt
11 »* t1 O !• A í **
Úr vinnslusalnum I nýju rækjuvinnslunni. ..Ketillinn” á myndinni er reyndar ny gerö af hraðfrystitækjum, fyrir rækjuna,
sem sett er á færiband og hún er hraöfryst á bandinu á ótrúlega skömmum tima. Þarna er beitt nýrri hraöfrystitækni
og kostar svona „áhald” milljónir króna.