Tíminn - 07.10.1975, Síða 19
Þriðjudagur 7. október 1975.
TÍMINN
19
0 Skagaströnd
smiðjuna, en hluthafar eru menn
af staðnum og Hólanes hf.
Gjöful rækjumiðeru i Húnaflóa.
Bátarnir hafa sótt á mið útaf
Vatnsnesi, i Reykjafjörð og á
Ingólfsfjörð á Ströndum.
Var unnið af fullum krafti á
rækjuvertiðinni þar til veiðikvót-
inn var full nýttur.
Um þessar mundir er verið að
leggja siðustu hönd á nýja rækju-
verksmiðju', sem tekur til starfa á
næstunni, búin fullkomnum vél-
um og ýmsum nýjungum.
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Viðtalstimar þingmanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokks-
ins i Reykjavik hefjast næstkomandi laugardag, 11. okt. Þá
verður til viðtals Þórarinn Þ.orarinsson alþingismaður frá kl.
10—12 að Rauðarárstig 18.
Aðalfundur FUF í Hafnarfirði
verður haldinn miðvikudaginn 8. október i hinni nýju starfsað-
stöðu félagsins að Strandgötu 11, II. hæð. Dagskrá: 1. Venjuleg
aðalfundarstörf. 2. Starf félagsins á komandi vetri. Mætið stund-
vislega. Stjórnin.
Sjómannaheimili
í Reykjavík
Margir sjómenn og aðrir hafa
látið undrun sina I ljósi yfir þvi
að ekki skuli finnast myndarlegt
sjómannaheimili i Reykjavik,
gagnstætt þvi sem nauðsynlegt
er talið i nær öllum hafnarbæj-
um á Norðurlöndum og viða um
heim. Já, einnig i' Færeyjum og
á Grænlandi eru þessiheimili á-
berandi.
Alltof fáir vita, að i Reykjavlk
starfar fámennt og fátækt félag,
sem kallar sig: Kristilega sjó-
mannastarfið, og hefur það á
stefnuskrá sinni að reisa og
starfrækja Kristilegt sjómanna-
heimili i Reykjavik og viðar ef
ástæður leyfa. Þetta félag er
ungt,fámennt og fátækt, eins og
fyrr segir og getur þvi ekki lagt
fram langan afrekalista, en það
hefur þó reynt að kynna sig með
þvi að gefa út litið ársrit, sem
nefnist: Vinur sjómannsins.
Hefur það komið út fjögur und-
anfarin ár og verið gefið i skip
og til sjómanna, sem til hefur
náðst.
Þá hefur félagið haft opna
litla sjómannastofu á Vestur-
götu 19 I nærri þrjú ár. Þangað
eru allir sjómenn hjartanlega
velkomnir og leitazt er við að
leiðbeina þeim á ýmsan hátt,
svo sem: veita aðstöðu til að
skrifa bréf, lesa blöð, annast
pósto.fl. Þá er haft samband frá
stofunni við flest skip, sem
koma til Reykjavikur og borin
þangað blöð og rit, á ýmsum
málum. eftir þvi sem við á
hverju sinni.
Þessi litla stofa á Vesturgötu
19 er aðeins opin tvær stundir á
dag, sem er vitanlega alltof lit-
ið, en það stafar af þvi að félagið
er fjárvana og getur ekki greitt
neitt kaup, svo hér er algerlega
um sjálfboðastarf að ræða. Hitt
er svo lika alvarlegt mál, að
húsnæðið á Vesturgötu 19 er
alltof litið og á margan hátt ó-
fullnægjandi til þess að hægt sé
að veita þá þjónustú, sem nauð-
synleg er.
Fjáraflanir ganga hægt, bæði
hvað snertir byggingarsjóðinn
og til þess að standa straum af
rekstrinum, enda hefur félagið
ekki fengið neinn styrk af al-
mannafé og enn sem komið er
hefur heldur ekki verið efnt til
viðtækrar fjáröflunar, en oftast
hefur kvenfélagið gengizt fyrir
kaffisölu eða bazar einu sinni á
ári til þess að afla f jár fyrir fé-
lagið.
Nú i ár mun kvenfélagið hafa
söludaga á sjómannastofunni
Vesturgötu 19 dagana 6,—14. þ.,.
Þar verða ullarvörur og ýmsar
handunnar vörur á boðstólum
og hver veit hvað?
Félagið hefur nýfega gefið út
fallega veggskildi úr postulini, i
fánalitunum. Þeir verða til sýn-
is og sölu.
Þeir vinir og velunnarar
Kristilega sjómannastarfsins,
sem vilja styrkja starfið með
þvi að gefa muni, eða koma og
kaupa, eru vinsamlega beðnir
að koma fyrrnefnda daga, en þá
verður opið frá kl. 14—18 alla
dagana. VERIÐ HJARTAN-
LEGA VELKOMIN.
Menn hafa
nóg að starfa
— Hvernig hefur tekizt að selja
rækjuna-
— Það hafa verið nokkrir
örðugleikar á rækjusölu á erlend-
um mörkuðum. Hinsvegar erum
við ekki með neinar óseldar
birgðir. Okkar rækja er seld.
— Hvað með mannfjölda. Flyzt
fólk enn burtu?
— Nei þetta hefur alveg snúizt
við. Menn hafa nóg að starfa, nóg
að bita og brenna og það sem
hrjáir okkur mest er húsnæðis-
leysið. Mér er kunnugt um einar
10 fjölskyldur, sem hér vildu setj-
ast að, ef húsnæði fengist.
— Við verðum að gæta að þvi að
almenningur hefur ekki bolmagn
til þess að koma á svona staði og
byggja yfir sig hús. Menn þurfa i
öllu falli húsnæði meðan þeir eru
að koma yfir sig þaki i nýju um-
hverfi, svo þetta mál er i rauninni
I sjálfheldu, nema hreppurinn,
eða yfirvöldin skerist i málin og
reisi leiguhúsnæði fyrir aðkomu-
fólk og þá sem búa við vont hús-
næði. Mörg hús eru i smiðum á
Skagaströnd núna og þá losnar
eitthvað af húsnæði, en skriður
kemst ekki á stækkun þorpsins,
nemaunntséaðtaka á mótifólki,
sem hér vill setjast að.
Skipasmíöastöðin
— Hér að framan hefur mest
veriðrættum fiskvinnsluna og út-
gerðina, og þá um leið þýðingu
þessara atvinnuvega fyrir þorpið.
Hér eru lika fleiri fyrirtæki, sem
veita vinnu. Til dæmis Skipa-
smiðastöð Guðmundar Lárusson-
ar, en framkvæmdastjóri hennar
og aðaleigandi er Guðmundur
Lárusson, sem er okkar aðal
maður i framförum og eflingu at-
vinnu á staðnum. Harðduglegur
og traustur maður. Guðmundur
rekur einnig trésmiðaverkstæði
og annast húsbyggingar.
— Skipasmiðastöðin smiðar
fiskibáta og annast viðgerðir og
Fyllið út áfklippuna neðst í auglýsingunni og sendið okkur
ásamt kr. 1000.-. Þá fáið þér vörulistann sendan ásamt
leiðbeiningum. Afsláttarseðill að upphæð 12 þýsk mörk
fylgir hverjum lista.
Quelle vara er gæðavara á góðu verði.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Rabbfundur um félagsstarfið i vetur verður að Rauðarárstíg 18
Ikvöld, þriðjudagskvöld kl. 21.
Takið kaffibrúsann með ykkur. Stjórnin
Haustfagnaður FUF í Reykjavík
verður haldinn i Félagsheimili Fóstbræðra laugardaginn 18.
október, og hefst kl. 21. Hálfbræður skemmta. Allir velkomnir.
nú eru ýmsar nýjungar þar i
undirbúningi, sem verið er að
vinna að, en rétt er þó að Skipa-
smiðastöðin geri grein fyrir þeim
málum.
Kaupfélagiö byggir
stóra verzlun
— En kaupfélagið. Hvernig
gengur rekstur þess?
— Hér er rekið útibú frá Kaup-
félaginu á Blönduósi. Það rekur
hér tvær verzlanir og verið er að
reisa mikið verzlunarhús fyrir
útibúið.
— Hér var áður starfandi sjálf-
stætt kaupfélag, Kaupfélag Skag-
strendinga, Höfðakaupstað, en
sögu samvinnuverzlunar i Húna-
vatnssýslu má rekja mjög langt
aftur i timann, allt til ársins 1869
er bændur stofnuðu Félags-
verzlun við Húnaflóa. Kaupfélag
Húnvetninga var stofnað. Vorum
við hér i þvi félagi, en sérstakt
kaupfélag varstofnaðárið 1907 og
var það starfandi til ársins 1968,
er félögin voru sameinuð á ný.
Hóf Kaupfélag Húnvetninga
verzlunarrekstur hér i mai árið
1968og hefur haldið honum áfram
siðan.
Kaupfélagsstjóri er Arni S. Jó-
hannsson og situr hann á Blöndu-
ósi.
Annarleg sjónarmið
Við ókum út úr þorpinu, eftir að
hafa litazt um og skoðað mann-
virki. Niður við höfnina húkir
sildarfabrikkan mikla einsog
minnisvarði um liðnar sildar-
göngur og það garnagaul er á eft-
ir kom, þegar sildin var farin.
Þar er nú beinamjölsverksmiðja,
sem vinnur fiskimjöl úr tilfall-
andi úrgangi frá fiskvinnslunni á
Skagaströnd. Stóra mjölskemm-
an hefur nú verið tekin að hluta
undir skipasmíðastöð og að liðn-
um áratugum hafa þessi hús loks-
ins komizt i liflega drift.
Margt vakti athygli okkar af
þvi sem við sáum, en ekki siður
það sem við heyrðum. Stúlkurnar
i kaupfélaginu sögðu okkur að
hann Arnar væri bezti togari á Is-
landi og liklega bezti togari i
heimi, þvi hann bilaði aldrei, og
við bönkuðum i tré og kvöddum.
Þetta siðasttalda er liklega það
merkilegasta við hagfræðilega
athugun og úttekt á Skagaströnd,
þvi það er ekki nóg að atvinnu-
hættir breytist, fólkið verður lika
að breytast og öðlast trú á stað-
inn. Það hlýtur að minnsta kosti
að vera gott að stjórna togara
fyrir ungar stúlkur sem ljóma ef
á hann er minnzt.
Þetta nefndi meistari Þórberg-
ur að hafa ekki annarleg sjónar-
mið.
—J.G.
UTANLANDSFERÐ
Ódýr
Lundúnaferð
Framsóknarfélögin i Reykjavik efna til Lundúnaferðar 23. októ-
ber til 30. okt. Nánari upplýsingar á skrifstofunni I sima 24480.