Tíminn - 07.12.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 07.12.1975, Blaðsíða 15
Sunnudagur 7. desember 1975. TÍMINN 15 Séra Gísli Brynjólfsson: Mannfólk mikilla sæva — Staöhverfingabók — Þessi bók er í lausu máli, Ijóðum og myndum lýsing á horfinni byggð. Hún er átthagarit í fyllsta skilningi þess orðs, en samt svo mikið meira. í lausu máli og mörghundruð Ijósmynd- um birtast okkur á síðum þessarar sérstæðu bókar hörð lífskjör hinna fræknu sjósóknara á Suðurnesjum. Bókin er jafnframt samnefnari fyrir íslenskt mannlíf á liðnum öldum allt fram á þennan dag. Steinar J. Lúðvíksson: Þrautgóðir á raunastund Sjöunda bindi björgunar- og sjóslysasögu íslands. Þessi bók fjallar um árin 1925-1927, en áður var búið að rekja atburði áranna 1928-1958 og fjalla einnig um brautryðjendur og forystu- menn slysavarna hérlendis. Drjúgur hluti hinnar nýju bókar fjallar um Halaveðrið mikla árið 1925, en þegar það skall á voru margir togarar, bæði íslenskir og erlendir, við veiðar á Hala- miðum og lentu þeir flestir í kröppum dansi og tveir þeirra fórust með allri áhöfn. Bókin sem breytt getur lífi þínu: Undraverður árangur jákvæðrar hugsunar eftir Norman Vincent Peale, í þýðingu Baldvins Þ. Kristjánssonar. Þetta er bók sem sýnir hvernig fólk getur unnið bug á erfiðleikum sínum, forðast ósigur og mis- tök og lifað glatt og öruggt í stað þess að búa við óvissu og ringulreið. Hápunkturinn er hinn hrífandi þáttur um undraverkin, hina miklu titrandi orku, sem okkur ennþá aðeins órar fyrir. Hinn andlegi heimur getur bjargað okkur, ef við aðeins lifum í samræmi við hann. Sýnir og vitranir eftir Erich von Dániken í þýðingu Dags Þorleifssonar. I fjórðu bók sinni sem út kemur á íslandi fjallar Erich von Dániken um ráðgátur sem heillað hafa mannkynið frá örófi alda. Höfundurinn hef- ur kannað sýnir og vitranir um víða veröld og telur að hér sé um raunverulega atburði að ræða. Niðurstöður hans hafa vakið svo mikla athygli að þær eru nú ræddar um allan heim, enda er Dániken einn víðlesnasti höfundur vorra daga. Jökull Jakobsson: Feilnóta í fimmtu sinfóníunni Mannleg náttúra lætur ekki að sér hæða, nú fremur en fyrri daginn. Kona þingmannsefnisins í Arnarnesinu býr í ástlausu hjónabandi og leitar sífellt burt frá veruleikanum með síð- hærðum strákslána í Þingholtunum. Það er talsvert önnur sinfónía sem hljómar í bedda- ræflinum undir bárujárnssúðinni eða í bein- hvíta hjónarúminu í svefnherberginu gegnt Gálgahrauni. Einn getur kallað fram undursam- lega tóna þar sem annar nær engu nema óræðu surgi. Ár gullna apans Fimmta bók Colin Forbes. Þýðandi: Björn Jónsson. Þrjár milljónir sterlingspunda voru greiddar fyrir kvikmyndaréttinn. Olía, arabar, skemmdarverk, allt eru þetta orð sem hljóma í eyrum okkar daglega og aldrei er að vita hvenær og hvar næsta sprengja spring- ur. Þetta er hörkuspennandi bók er segir frá ráni arabiskra skemmdarverkamanna á risa- stóru olíuskipi, sem þeir hyggjast sprengja í loft upp í höfninni í San Francisco. Atburða- rásin er vægðarlaus og við hæfi óskeikullar frásagnargáfu höfundarins. Björn Þ. Guðmundsson, borgardómari: Formálabókin þín Handbók fyrir lærða og leika sem geymir sýnis- horn allra helstu samninga og löggerninga sem fyrir koma í daglegum störfum manna. Upp- bygging bókarinnar er við það miðuð að vera sem auðveldust í notkun. Efninu er skipað í níu meginflokka, en þess utan er efnisyfirlit og orðaskrá svo ítarleg, að þar er um nær tæmandi leiðarvísi við notkun bókarinnar að ræða. Þetta er bók sem hver og einn hefur gagn af að eiga. geymlr sýniBhorn hvers M Konáf. . ; 'A: og anrtföfe logö«m!nga. Elín Kristjánsdóttir: Some lcelandic Recipes Litla matreiðslubókin sem þú sendir erlendum vinum í jólagjöf — og hún kostar lítið. Þessi bók er ekki stór, aðeins 80 litlar síður, en hver segir að gjöf þurfi alltaf að vera svo voða stór og dýr. Það eru gæðin sem skipta máli. Þessi litla bók geymir fjölmargar uppskriftir íslenskra rétta, sem margir útlendingar hafa þegar prófað og lokið lofsyrði á. Bókin er svo lítil fyrirferðar að hana er hægt að senda í stóru umslagi hvert sem er. og íetfturfm Itbtmmöhhiri V' ->• Iwviálti ritar (kKástjáfib'Jijánt Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi: Horfnir starfshættir Formáli eftir dr. Kristján Eldjárn. Daglaunamaðurinn, þúsundþjalasmiðurinn, fræðaþulurinn og hinn ritgjarni orðhagi, Guð- mundur frá Lundi, hefur skilað samtíð sinni bók sem mun lifa í framtíðinni. Hér eru á ferð- inni fróðleiksþættir og heimildir um lífsbjargráð og menningarsnið á sviðum horfins þjóðlífs sem íslenskri menningarsögu er mikill fengur í. Þetta er bók sem á erindi til allra sem unna þjóðlegum fróðleik og með nokkrum sanni má segja að hún brúi bilið milli bókar Jónasar frá Hrafnagili og okkar daga. Snjólaug Bragadóttir frá Skáldalæk. Holdið er torvelt að temja Holdið er torvelt að temja er samtímasaga úr borgarlífinu um listamenn og lífsglatt fólk, þar sem ástin á það til að hafa endaskipti á tilver- unni og enginn veit hver annars konu hlýtur að lokum. Spennan vex frá fyrstu blaðsíðu og heldur stíganda allt til enda. Þetta er fjórða bók hinnar ungu skáldkonu. Hinar fyrri voru allar uppseldar en fást nú aftur í bókabúðum. Holdiö ertorveltaö temja Snjólaug Rragadórtir íiá Skitldaltek GÓÐ BÓK ER GULLIBETRI Örn og Örlygur, Vesturgötu 42, Simi: 25722

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.