Tíminn - 07.12.1975, Blaðsíða 27

Tíminn - 07.12.1975, Blaðsíða 27
Sunnudagur 7. desember 1975. TÍMINN 27 Hér er bókin til skemmtunar og fróðleiks Magnús Magnússon Ráðherrar íslands 1904—1971 Magnús Stormur, höfundur þessarar bókar, er lands- kunnur fyrir ritstörf og blaöamennsku og fyrir þaö, að vera ómyrkur I máli, tala tæpitungulaust. Hann segir i formáia bókarinnar: .... ég vil taka fram aö ég einn ber alla ábyrgð á þvi, sem sagt er ráðherrunum til lofs eöa lasts, nema þar sem um- mæli annarra eru tilfærö.” Og hann biður menn aö hafa i huga, að þetta eru aöeins svipmyndir og þvi hvergi um al- hliöa lýsingu aö ræöa, en segir jafnframt aö hann telji sig hafa góöa aöstööu til að geta lýst ráðherrunum meö nokkrum sannindum, „þvi ég hef séö þá alla, talað viö fiesta, kynnzt mörgum þeirra mikiö og sumum ailnáiö.” — Allir, sem þekkja Magnús Storm og skrif hans, vita að hér er bók, sem þeir veröa að eignast. Halldór Pjetursson Draumar, sýnir og dulræna Stórmerkar sagnir af draumspöku og dulrænu fólki, fjöidi merkra drauma, frásagnir af furöulegum sýnum og sérstæöar sagnir af óvenjulegum miðilsfundum. Hér er t.d. veigamikil frásögn af Þórunni grasakonu Gisiadóttur og ættfóiki hennar, en sonur hennar var hinn landskunni grasalæknir Erlingur Filippusson. ÍIAUBÖK WCTUHWWM ðraumar sýnir Ofl dulræna NOoiPun jómsson MHiqmr Ingólfur Jónsson frá Prestsbakka Þjóðlegar sagnir Þetta seinna bindi þjóðlegra sagna hefur aö geyma stuttorðar og gagn- orðar sagnir, margar bráðsnjallar og ýmsar stórfyndnar. Þær eru skráöar á kjarngóðu máli og sem fyrr hefur Ingólfur fyrst og fremst leitaö fanga hjá alþýðu manna, því þar finnst honum viðmótið bezt, frásögnin cinlægust og sagna- heimurinn stærstur. — Þetta er þjóðleg bók, góður viðauki viö fyrri sagnasöfn. Howard Murphet Sai Baba — maður kraftaverkanna Hér er sagt frá einum áhrifamesta kraftaverkamanni, sem fram hefur komiö um aldaraöir. Kraftaverk- um þessa undramanns er likt viö kraftaverk Krists og samfara þeim fer sú ást og umhyggja, sem Krist- ur hlýtur einnig að hafa búið yfir, og auk þess vitneskjan um Guö, sem opnar dyrnar aö nýrri llfssýn. Bókin um Sai Baba er stórkostleg og hrifandi. Gunnar M. Magnúss Gunnar M. Magnúss Sæti númer sex Bókin hefst á þvi er Asgeir Ásgeirsson kemur 29 ára gamall I framboð i Vestur- isafjarðarsýslu og berst þar um þingsætiö við hinn gamla þingkappa Guðjón Guð- laugsson. Ferill Ásgeirs er rakinn i héraði, sagt frá bar- áttu hans og sigrum og hvernig leið hans lá inn á þing og að lokum i forseta- stólinn. Þessi frásögn er af- burðasnjöll og mun lengi lifa. — Gunnar rekur slðan hinn pólitiska æviþráð sinn, fer eftir honum i „sæti númersex”á Alþingi og situr þar hundrað daga. Hér koma margir við sögu og þetta er „ismeygilega vel skrifuð bók, sem Gunnar sendir frá sér”. Hann dregur upp ógleymanlegar myndir af mönnum og málefnum og bókinni lýkur með palladómum um sam- þingsmcnn hans, —og fær þar hver kappinn sinn skammt ómældan. Jón Helgason Steinar i brauðinu Rithöfundareinkenni Jóns Helga- sonar eru fyrst og fremst fagurt mál, frásagnarlist og stilsnilld. Þessi bók hans ber öll þessi glæstu merki. Hún er leikur að máli og lifsmyndum, mikilúðlegur skáld- skapur, sem vekja mun athygli allra, sem fögrum bókmenntum unna. Þessar sögur hans eru svo vel sagðar að til tiðinda mun verða talið þegar bókmenntauppskera þessa árs verður gerð upp. BRAUOINU JÓN HBLQASON Skúli Guðjónsson, Ljótunnarstöðum Svo hleypur æskan unga Minningabrot frá bernsku höfundarins, þar sem hann scgir frá persónulegri reynslu sinni og bregður upp skemmtilegum svip- myndum af mönnum, sem honum urðu minnisstæðir. Hann segir frá „Guðfræðinámi i hænsnakofa”, ræðir „um gesti og gestakomur” og „Fornar ástir og þjóðlegt klám”, frásagnir, sem hafa sér- stakt heimildargildi um þau viðhorf, sem óðum eru að gleymast. 1 þeim birtist e.t.v. bezt hin sérstæða frá- sagnarsnilld höfundarins og hæfileiki hans til að skynja samtið sina og breytta menningarstrauma. SVO '3 =HLEYPUR “ÆSKAN '-XINGA $ K(? U G UDJÖN SSON' Wolfgang Lotz Kampavinsnjósnar- mn Þessi bók er hrikalega spennandi, hún er skjalfest og sönn frásögn af viðburðariku og æsilega ævintýra- legu lifi, ótrúlegasta njósnasaga sem skrifuð hefur verið. Lotz starf- aði sem israelskur njósnari i Egyptalandi, varð trúnaðarvinur hershöfðingja, ráðherra og leyni- þjónustuforingja og þýzka nýlendan I Kairó bauð hann sérstaklega velkominn. En upp komast svik um siðir, og Lotz var handtekinn og ekkert virtist biða hans annaö en snaran. Sexdagastriðið varðhonum til bjargar. — Þetta er æsispennandi og ótrúleg bók, en hvert orð er skjalfest og satt. Dr. Jakob Jónsson Lif við dauðans dyr LIF VIB DAUÐANS DYR Jakob Jóns son Dr. Jakob segir hér frá reynslu sinni sem sjúkrahússprestur. Hann fjallar um mótlætið, heilsuleysið og sjúkrahúsið, um dauðann og þá einnig hinn umdeilda dauða, um heimsækjendur, sorg og huggun og loks um heilbrigðina og lifs- hamingjuna. Þessi bók fjallar um vandamál, sem snerta hvern einasta mann, hvort heldur er sjúkan og sorgmæddan eöa geislandi af lifsfjöri og krafti. Þetta eru hugleiðingar manns mikillar trúar- reynslu, rnanns, sem segir hispurslaust frá, vekur til um- hugsunar og skilnings á miklu vandamáli. SALTFISKUR OG SÖNGLIST Haraldur Guðnason Saltfiskur og sönglist Iiér er sagt frá Skarðsselsbræðr- um, Bergsteini á Yrjum, Hreiðari i Hvammi og Jóni i Skarðsseli og af- komendur þeirra raktir. „Djöfull- inn i helviti gefi þér tóbak” heitir þáttur um séra Loft á Krossi og þáttur er uin Erlend Helgason i Heysholti, sem varð þjóðsagnaper- sóna þegar i lifanda lifi. — Saltmengaðar frásagnir eru af nokkrum gamalkunnum Vestniannaeyingum: Matthiasi Finnbogasyni, Guðmundi ögmundssyni, fyrsta vitaverði í Eyjum, Lauga i Mandal, Þórði formanni Stefánssyni, Jó- hanni i Stíghúsi, Friðrik i Bataviu, Hannesi Hreinssyni og loks Helga Jónssyni faktor i Garðinum. Pétur Eggerz Hvað varstu að gera öll þessi ár? Pétur Eggerz hefur i starfi sinu gengiö meðal þeirra, sem leitaö hafa fjár og frama, þeirra manna, sem máttur valdsins hefur freist- að. En hvers virði er valdið, féð og frægðin? Er lifs- hamingjuna þar að finna? Þessum og öðrum álika spurningum leitast þessi snjalli höfundur við að svara i bók sinni, sem er skopleg lýsing hins Ijúfa lifs, háð og spé um þá lífsblekkingu sem aðeins virðist eftirsókn eftir vindi. Pétur gagnrýnir „kerfið” f þessari bók, dregur dár að þvi, sem þar fer aflaga, setur gæðamat þjóðfélagsins undir smásjá og sér I gegnum blekkingarvefinn. Enn sem fyrr hittir hann beint i mark, undan hárbeittum penna hans sviður. ispgggpS jíii'Au s»ajc- Ólafur Tryggvason Á jörðu hér „Hverjum þeim, sem við erfiðleika á að striða, munu bækur hans örugg hjálp. Það kann að vera, að manni, sem lifið leikur við, sé ekki nauðsynlegt aö lesa þær, en færi svo að lifið hætti leik sinum, væri gott að vita, að þessar bækur eru til” Þetta hefur Kristján frá Djúpa- læk að segja um bækur Ólafs. — Það er eins og hulinn kraftur og máttur læknandi orku þessa mikla mannvinar fylli hverja siðu þessar- ar bókar. Barbara Cartland Ást og metnaður Brora lávarður er vanur að stjórna og ráða ferðinni og þvi veröur hann fyrst og fremst reiður, þegar fegurðardisin Melia Melchester slitur trúlofun þeirra. Og þegar hann hittir hina ungu Jane Mac Leod, sem svipað er ástatt fyrir, fær lávarðurinn eina af sinum stór- snjöliu hugmyndum. —Stór- skemmtileg og eldfjörug ” ástar- saga. Gattland Ifyog MitjYáÖUl' 'XKuh** úunlu -{dlOdísivmi!]^ Theresa Charles Erfðaskráin Ný og spennandi ástarsaga eftir metsöluhöfundinn vinsæla. — Það var uánast tilviljun að Nixy Warren gerðist hjúkrunarkona og það voru einnig tilviljanir að hún liafði tvivegis orðið ástfangin af röngum karlmönnum, — og slikt var hún ákveðin í að láta ekki cndurtaka sig. En svo kom Harvey Mayfield, ungur og glæsilegur, og lifið er sannarlega fullt af æsi- spennandi tilviljunum. Faðir minn — Bóndinn Gisli Kristjánsson ritstýrði Faóir minn Fjórtán þættir um stór- brotna og á ýmsan hátt fyrir- ferðarmikla bændahöfð- ingja, skráðir af börnum þeirra: Guðmundur Þor- bjarnarson, Stóra-Hofi, eftir Hákon Guðmundsson — Bjarni Jensson, Ásgarði, eftir Torfa Bjarnason — Kristinn (iuðlaugsson, Núpi eftir Unni Kristinsdóttur — Gisli Jónsson. ilofi, eltir Gunnlaug Gislason — Þórarinn Jónsson, Iljaltabakka, eft- ir Hjalla Þórarinsson — Friðrik Sæmundsson, Efri IIól- um, el'tir Sæmund Friðriksson — Þ. Magnús Þorláksson, Blikastööum, eftir Helgu Magnúsdóttur — Jón Konráðs- son, Bæ. eftir Björn Jónsson — Guðbjartur Kristjánsson. Iljarðarlelli. eftir Gunnar Guðhjartsson — Björn Þorkels- son,llnefilsdal.eftir Þorkel Björnsson — Jakob II. Lindal. Lækjamóti, eftir Sigurð Lindal — Sverrir Gislasou, Hvammi, eftir Ólaf Sverrisson — Jón Sigurðsson, Yzta- felli, eftir Jónas Jónsson — Helgi Jónsson, Seglbúðum. eftir Jón Ilelgason. — Allir voru þessir bændur brautryðj- endur, liver með sinuni sérslaka hætti. og allir voru þeir héruðshöfðingjar. kraftmiklir kjarnakarlár. sem settu sterkan svip á samtið sina. SKUGGSJÁ — BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS — SÍMI 50045

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.