Tíminn - 10.12.1975, Qupperneq 18
18
TÍMINN
Miðvikudagur 10. desember 1975.
Viðar lék með
lærisveinum
sinum
VIÐAR SÍMONARSON/ landsliðsþjálfari, í handknatt-
leik, lék með lærisveinum sínum, þegar landsliðið lék
æfingaleik gegn danska 2. deildar liðinu Greve í Idrett-
ens Hus í Glostrup, en þar búa landsliðsmenn okkar og
æfa, á meðan þeir eru í æfingabúðunum í Danmörku.
Viðar lék æfingaleikinn, þar sem landsliðsmennirnir úr
Víkingi, Björgvin Björgvinsson, Viggó Sigurðsson og
Páll Björgvinsson, ásamt ólafi H. Jónssyni og Axel
Axelssyni, voru ekki komnir frá V-Þýzkalandi. Viðar
sýndi sína gömlu takta og skoraði eitt mark í leiknum,
sem landsliðið vann — 32:31.
Friðrik Friðriksson, vinstri-
handarskyttan úr Þrótti, var
drýgstur við að senda knöttinn i
netið hjá Dönunum — hann
skoraði 9 mörk i leiknum, en hin
mörkin skoruðu þeir Jón Karls-
son 7, Gunnar Einarsson 7,
Stefán Gunnarsson 5, Árni Ind-
riðason 3 og Viðar Simonarson
eitt.
Andinn er góður hjá landsliðs-
hópnum, sem leikur gegn Dön-
um á fimmtudaginn, en siðan
tekur landslið tslendinga og
Dana þátti fjögurra liða keppni,
sem tvö sterk félagslið frá aust-
antjaldslöndum taka einnig þátt
i.
Landsliðshópurinn, sem er nú
i æfingabúðunum i Danmörku,
er skipaður þessum leikmönn-
um:
Ólafur Benediktsson, Val
Guðjón Erlendsson, Fram
Friðrik Friöriksson, Þrótti
Árni Indriðason, Gróttu
Sigurbergur Sigsteinsson, Fram
Björgvin Björgvinsson, Vikingi
Ólafur H. Jónsson, Dankersen
Páll Björgvinsson, Vfkingi
Viggó Sigurösson, Vlkingi
Stefán Gunnarsson, Val
Axel Axelsson, Dankersen
Jón Karlsson, Val
Gunnar Einarsson, Göppingen
Ingimar Haraldsson, Haukum
Eins og sagt hefur verið frá,
gat ólafur Einarsson ekki feng-
ið sig lausan frá V-Þýzkalandi,
þar sem hann á að leika með liði
sinu — Donzdorf — um næstu
helgi.
— og skoraði
mark, þegar
landsliðið
sigraði danska
liðið Greve í
æfingaleik
32:21
Badminton
á fulla ferð
KEPPNISTIMABILIÐ er
að hefjast af fullum
krafti hjá badminton-
mönnum okkar. Fyrsta
opna badmintonmótið
verður haldið f Laugar-
dalshöllinni 21. desem-
ber, og verður það haldið
á vegum T.B.R. Keppt
verður i öllum greinum
karla og kvenna í meist-
ara- og A-flokki, svo og
tviliðaleik „old boys".
Opið unglingamót á vegum
T.B.R. ieinliðaleik verðursiðan
haldið i KR-húsinu 27. desem-
ber. Auk hinna venjulegu ungl-
ingaflokka verður keppt i flokki
yngri en 12 ára.
Þátttökutilkynningar fyrir
bæði mótin verða að hafa borizt
til Hængs Þorsteinssonar i sima
35770 fyrir 15. desember.
VIÐAR SIMONARSON... skor-
aði mark með landsliðinu.
GEIR GAF EKKI
KOST A SÉR
Eftir að Geir Hallsteinsson
hafði sýnt snilldarleik gegn
Oppsal-liðinu á sunnudaginn,
var hann spurður að þvi, hvort
hann endurskoðaði ekki afstöðu
sina til landsliösins og gæfi
kost á sér — þannig að hann færi
til Danmerkur og æfði og léki
með landsliðinu, sem er að
undirbúa sig fyrir OL-leikinn
gegn Júgóslövum. Þvi miður sá
Geir sér ekki fært að fara til
Danmerkur, þar sem hann er
hlaðinn störfum hér heima. —
SOS
ERLENDUR VALDIMAHSSON.
á heimsmælikvarða.
knnglukastarmn snjaili, sem er
Nýtt knattspyrnuspil komið á markaðinn:
Ég fékk hugmyndina
eina síðsumarnótt"
sagði Ragnar Lór, sem fann upp nýja knattspyrnuspilið
NtJ ER komiö á markaðinn nýtt
knattspyrnuspil, sem á örugglega
eftir að veröa vinsælt. Teiknarinn
kunni, Ragnar Lár, fann þetta
spil upp og hannaði. — Hugmynd-
ina að spilinu fékk ég eina slð-
sumarnótt, þegar ég lá uppi I
rúmi og var að hugsa. Myndin af
spilinu birtist þá allt I einu I huga
minum. Ég hentist fram úr rúm-
inu og festi myndina á blað, sagði
Ragnar.þegar viö spurðum hann,
hvernig hann heföi fengið hug-
myndina af knattspyrnuspilinu,
sem er stórsnjöil.
Það er ekki aö efa, að þetta spil
á eftir aö ná miklum vinsældum,
þvi aö það er einfalt og allir —
ungir sem gamlir — hafa örugg-
lega gaman af þvi. Leikreglur
spilsins, sem er kallaö „Fótbolta-
spilið”, eru þessar:
Knettinum er stillt upp á miðju-
reit vallarins. Keppendur kasta
teningnum, og byrjar sá leikinn
RAGNAR LAR.... sést hér með
spilið sitt, sem Frlmerkjamið-
stöðin h.f. hefur dreift um allt
land.
sem fær hærri tölu. Fyrsta kastið
gildir þó ekki i keppninni sjálfri.
Siðan ræður teningurinn hvert
knötturinn fer. Tölurnar næst
þeim reit, sem knötturinn er á,
ráða hvaöa stefnu knötturinn tek-
ur. Keppendur hafa sinn litinn
hvor, og kastar sá keppandi
teningnum, sem hefur þann lit
(reit), sem knötturinn er á hverju
sinni. Ef knötturinn lendir i
miöjureitum aftur, þá heldur sá
áfram, sem var með knöttinn (og
teninginn). Þegar mark er skor-
að, hefst leikur að nýju frá mark-
reitnum.
Keppendur geta leikið þar til
annarhvor hefur t.d. skorað 5
mörk, og skipt þá um mark (hálf-
leikur). Slðan getur síðari hálf-
leikur einnig miðazt við 5 mörk.
Að þvi loknu er markafjöldinn úr
hvorum hálfleik fyrir sig lagður
saman. Einnig má leika eftir
klukku, t.d. vekjaraklukku,
skeiðklukku eða skákklukku, t.d.
5 eða 10 minútur hvorn hálfleik.
Hugmyndarikir keppendur
geta einnig sett á svið mót, t.d. Is-
landsmót, og keppt þá fyrir hönd
hinna ýmsu félaga — SOS