Tíminn - 24.12.1975, Qupperneq 8

Tíminn - 24.12.1975, Qupperneq 8
8 TÍMINN Miðvikudagur 24. desember 1975. Islendingur kennir Aröbum sjósókn ERU DUGLEGIR EN VANKUNNANDI segir Baldvin Gíslason, sem leiðbeinir fiskimönnum við Rauðahaf Baldvin Gislason á heimili sinu í Ilafnarfirði. Tfmamynd Róbert. mmm Góður fengur. Sjómaður ber aflann á land, stóra skötu og tvo fiska sem við kunnum ekki að nafngreina. Fjölmargir islenzkir sjómenn hafa starfað og starfa við að kenna sjómennsku og fiskveiðar víða um heim á vegum Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sam- einuðu þjóðanna (FAO). Einatt starfa menn þessir meðal þjóða þar sem atvinnulif er frumstætt og allar aðstæður gjörólikar þvi sem þeir eiga að venjast, en is- lenzku sjómennirnir búa samt sam áður að svo staðgóðri þekk- ingu á sjómennsku og veiðum, að sjómenn, sem fiska við strendur heitabeltislanda og veiða fisk- tegundir, sem eru um margt ólik- ar þeim, sem eru við Islands- strendur — og öll ytri skilyrði allt önnur — geta fjölmargt af þeim lært. Varla þarf að taka fram, að veiðitæki og aflabrögð taka mikl- um framförum á þeim stöðum, þar sem islenzku sjómennirnir leggja leið sina um og kenna nú- timalegar aðferðir i sjósókn. Einn þeirra manna, sem starfa að þessum málum, er Baldvin Gisla- son,sem undanfarna mánuði hef- ur leiðbeint fiskimönnum við Rauðahaf. Hann dvelur nú hér á landi með fjölskyldu sinni i jóla- frii og náði Timinn tali af honum. Baldvini sagðist svo frá, að hann hafi starfað i Norður-Jemen og væri búsettur i borginni A1 Hudaydah, og er nú liðinn hálfur sjöundi mánuður siðan hann flutti þangað. Fleiri íslendingar eru á svipuðum slóðum. t sömu borg bjó áður önnur islenzk fjölskylda, sem nú er farin heim og i Frönsku-Sómaliu, hinum megin við Rauðahafið, býr önnur fjöl- skylda islenzk og nokkrir ís- lendingar búa austar við Ind- landshaf. Baldvin sagðist kunna starfi sinu vel, þótt við mikla erf- iðleika væri að striða, sérstaklega fyrst i stað. Hitinn er ofsalegur, 45 stig dag eftir dag. Með Baldvini eru kona hans og tvö börn, 9 og 10 ára. Kunna þau dvölinni vel, og ganga börnin i einkaskóla, sem er dýr á okkar mælikvarða þvi skólagjöldin eru 2000 dollarar fyrir hvern nem- enda á ári. t skólanum eru aðeins Hafnarskilyrði eru engin I fiskiþorpum Suður-Jemen. Hér eru bátar að koma að landi, og er fjöldi manns i sjó upp undir axlir við hlið annars bátsins, og bera þeir aflann á land. Mávagerið við ströndina bendir til þess að nægilegt æti sé i Rauðahafinu. sjö nemendur og fer kennslan fram á ensku. Frumstæð sjósókn — I upphafi var starfið mikið fólgið i þvi að ferðast með strönd- inni, allt suður til Mokka, kaffi- borgarinnar frægu, syðst á Rauðahafsströndinni og siðan aðra eins leið i hina áttina. 1 fiski- þorpunum kenni ég fiskimönnum notkun veiðarfæra og fylgist með þeim veiðarfærum, sem þeir eru með. Um tima var ég með vél- stjóra með mér, og við gerðum við mótora, aðallega utanborðs- mótora, en þarna eru eingöngu notaðir smábátar. Aðallega fiska menn þarna i lagnet, mest smá- fisk, en stærri fisk húkka þeir. Þá draga þeir slóðann með önglum á eftir sér. Þannig fá þeir stærri fisk. Á þessum slóðum er margt um góðan átfisk. Þessi fiskur er ólikur þeim tegundum sem við þekkjum viðlsland. Þarna veiðist bæði kóngs- og drottningarfiskur, báðar tegundirnar góðar til átu. Einnig veiðast fiskar likir karfa — og eitruð skata. Hún er þó ekki eitruð að éta, heldur hefur hún eiturbrodd á halanum sem hún stingur og dregpur með. Einnig veiðist töluvert af skjaldböku, sumar allt að 300 kg. að þyngd. Skjaldbakan fæst i troll. Við er- um þarna með 40 tonna bát með trolli. Um miðjan nóvember yfir- tók ég bátinn og verð ég eitthvað með hann næstu mánuði. Mest höfum við verið með rækjutroll til þessa, en fiskitroll er til um borð og fer ég að nota það eftir ára- mótin þegar ég fer utan aftur. Rannsóknir og leiðbeiningar Reynið þið að endurbæta hefð- bundnar veiðiaðferðir fremur en að kenna eitthvað nýtt? — Það þýðir ekki að rasa að neinu. Þetta verður að koma smám saman.og við reynum jöfn- um höndum að endurbæta þær veiðiaðferðir sem notaðar eru á hverjum stað og jafnframt kenna nýjar aðferðir. Starfið felst að miklu leyti i þvi að vinna að rann- sóknastörfum, finna fiskimið og athuga hvar bezti fiskurinn er. En nú eftir áramótin mun ég og sam- starfsmenn minir fara að leggja að jöfnu að koma með fisk að landi og rannsóknastörf. En yfir- leitt hefur fiskinum verið hent i sjóinn aftur þegar við erum að at- hugunum. Fiskifræðingur er allt- af um borð i stóra bátnum og veg- ur hann og mælir aflann, og gerð- ar eru skýrslur og veiðikort. En fiskurinn þolir bókstaflega enga geymslu á þessum slóðum vegna hitans. Við höfum reynt að hafa is um borð, og verði maður sólar- hring i róðrinum, þá er rétt að það

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.