Tíminn - 04.01.1976, Qupperneq 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 4. janúar 1976.
Aöalstræti 62, Akureyri, um aidamótin
Litum fyrst á Aðalstræti 62,
Akureyri. Jón Sveinsson fyrrv.
bæjarstjóri taldi sig hafa heim-
ildir fyrir þvi að húsið hefði ver-
ið byggt 1846.
Hallgrimur Kristjánsson gull-
smiður byggði húsið og bjó i þvi
ásamt Einari syni sinum, sem
bjó þar áfram eftir lát föður sins
og var eigandi þess fram yfir
aldamót. En hann leigði
Magnúsi Kristjánssyni siðar
ráðherra húsið frá þvi fyrir eða
um 1890 og til 1903 eða 1904.
Magnús fékk að byggja
geymslu- og skepnuhús ofar á
lóðinni og átti það meðan hann
bjó i húsinu. Meðal annarra,
sem búið hafa i húsinu eru Odd-
ur Björnsson prentsmiðjueig-
andi, Jón Gunnlaugsson bæjar-
gjaldkeri, Jón Sigurðsson og
Þorvaldur sonur hans, sem var
bankagjaldkeri. Vorið 1930
keypti Ármann Dalmannsson
eignina af Þorvaldi og hefur bú-
ið þar siðan og prýtt umhverfið
með trjágróðri.
Myndin er tekin um aldamót-
in, þegar Magnús Kristjánsson
bjó i húsinu, og voru þar til
heimilis þeir sem á myndinni
sjást. Þeir eru talið frá vinstri:
Jakob Karlsson lengi af-
greiðslumaður við Eimskip,
bróðursonur Magnúsar.
A hestinum Skjóna Friðrik
sonur Magnúsar (lézt barn að
aldri).
Kristján Karisson siðar
bankastjóri Islandsbanka bróð-
ir Jakobs.
Magnús Kristjánsson siðar
þingmaður og ráðherra.
.—— ---— — —
Byggt og búið
í gamla daga 105
Aöalstræti 52, Akureyri, byggt 1840
Dómhildur Jóhannesdóttir
kona Magnúsar.
Barnið, sem hún leiðir er Jó-
hanna, dóttir þeirra hjóna.
Guðný Jóhannsdóttir móðir
Jakobs og Kristjáns.
Jóhanna Björnsdóttir.
Á tröppunum Sigriður Haf-
liðadóttir.
Barnið, Kristin dóttir
Magnúsar og Dómhildar.
Hestarnir eru reiðhestar
hjónanna, Skjóni Magnúsar,
traustur úrvalsgæðingur og
Rauðka Dómhildar.
Virðum næst fyrir okkur að-
eins eldra hús, Aðalstræti 52,
byggt 1840. Þar bjó eitt sinn Jón
Kr. Stefánssön (Jón Christinn
Stephánsson) timburmeistari,
er byggði mörg hús á Akureyri.
Var lengi bæjarfulltrúi, starfaði
og mikið að bindindismálum.
Jón var umsjónarmaður trjá-
ræktarstöðvarinnar við kirkj-
una gömlu á Akureyri og annað-
ist trén af mikilli alúð. Jón var
fæddur á Yztabæ i Hrisey. A
myndinni er Jón og fjölskylda
hans.
Þriðja gamla alkunna húsið
þarna i innbænum er Friðbjarn-
arhús, Aðalstræti 46. Það var
reist um miðja 19. öld af Frið-
birni Steinssyni bóksala og
bæjarfulltrúa. Þarna, á heimili
Friðbjarnar, var fyrsta góð-
templarastúkan stofnuð 10.
janúar 1884. Húsið er varðveitt
af samtökum templara á Akur-
eyri. Séra Bolli Gústafsson
teiknaði myndina af húsinu.
Myndastyttan t.v. er af Frið-
birni Steinssyni. Reisuleg ösp
t.h. og brekkan að baki.
Hótel hafa lengi sett svip á
gömlu Akureyri, innbæinn, sem
við nú köllum. Fyrst elzta Hótel
Akureyri (Baukurinn) sem
brann 1901, og siðar gamla
Hótel Akureyri, sem hér er birt
mynd af, mikið og fagurt timb-
urhús, byggt 1902, en brann 1955.
Þeir prýddu með svölum og
turnum i gamla daga ekki siður
en nú. Þetta veglega hótel varð
að lokum, a.m.k. að nokkru,
leigt út sem ibúðarhúsnæði.
Hótelrekstur fluttist út i miðbæ,
þar sem athafnasemin varð
mest er timar liðu.
Myndir þessar ásamt skýr-
ingum eru fengnar að láni i
Minjasafni Akureyrar.